Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Page 21

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Page 21
Fjörutíu ár í forvígi Félag íslenzkra símamanna, sem er eitt elzta bandalagsfélag B. S. R. B. og hið fjórða í röðinni að félagatali, minntist 40 ára afmælis síns 26. febr. s. 1. með góðum fagnaði að Hótel Borg, og komu þar saman um 300 manns. Meðal gesta þar var Ólafur Björnsson prófessor, formaður B. S. R. B., og árnaði hann félaginu heilla í ræðu. — í tilefni af afmælinu voru einnig hátíðahöld víðar um landið. Félag ísl. símamanna hefur að mörgu leyti lengi verið forustufélag um málefni opinberra starfs- manna og fyrir samheldni sína og árvekni komið ýmsu góðu til leiðar, svo til fyrirmyndar hefur verið og uppörvunar. Eitt síðasta afreksverk þess er það, að fyrir tveim árum fékk það því fram- gengt, að stofnað var starfsmannaráð Landssím- ans, og er því með staðfestri reglugerð falið að vera ráðgefandi aðili með stjórn stofnunarinnar um allt, er lýtur að hagsmunamálum starfs- fólksins og skipulagsmálum, þ. á. m. um manna- ráðningar. Er hér um stórlega athyglisverða ný- breytni hérlendis að ræða, sem vonandi á eftir að breiðast út til allra ríkisstofnana og bera vitni forustu símamanna. Þá er þess og vert að geta, að Símablaðið er einnig 40 ára um þessar mundir, og er nýlega komið út myndarlegt afmælisblað. Ber blaðið, bæði aldur þess og innihald, órækt vitni um fé- lagsþroska símafólks. — Asgarður vill óska síma- fólki til faamingju með félag sitt og málgagn. í tilefni af félagsafmælinu komu saman allir formenn F. í. S. frá öndverðu, en þeir eru þrettán talsins og allir á lífi. Var þá tekin af þeim myndin, sem hér fylgir. Fremri röð: Guðmundur Sigmundsson, Sigurð- ur Dahlmann, Andrés G. Þormar (form. samtals 11 ár, lengst allra), Ottó B. Arnar (fyrsti form.), Gunnar Schram, Gunnar Bachmann og Halldór Skaptason. Aftari röð: Guðmundur Jónsson, Jón Kárason (núv. form.), Steingrímur Pálsson, Ágúst Sæmundsson, Guðmundur Jóhannesson og Theó- dór Lilliendahl. — Fjórir þessarra manna. (Á. S., G. B., G. Sigm. og O. B. A.) eru nú horfnir úr þjónustu Landssímans. ÁSGARÐUR 19

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.