Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Side 31

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Side 31
III. Vinnutími o. fl. 1. 16. þing B. S. R. B. skorar á ríkisstjórn og Alþingi að ákveða að greitt verði álag á alla nætur- og helgidagavinnu opinberra starfsmanna. Tryggt verði að öll eftir-, nætur- og helgidaga- vinna sé greidd. 2. Þá ítrekar 16. þingið samþykkt síðasta þings, þar sem stjórn bandalagsins var falið að beita sér fyrir því, að reglum um vinnutíma starfsmanna ríkis og bæja verði breytt þannig: a) Vinnutími þeirra starfsmanna sem nú vinna 48 klst. á viku eða meira verði styttur. b) Grunnkaupshækkanir og launabætur nái til yfirvinnu. c) Vaktavinnumenn fái frí tvo virka daga fyrir hvern stórhátíðardag, sem þeir vinna, ef þeir fá ekki hliðstæða greiðslu í peningum. 3. I sambandi við lausn þessara mála felur þingið sambandsstjórn að leita samráðs við þau félög, sem hér eiga helzt hlut að máli. IV. Samningsréttur. 16. þing B. S. R. B. telur óviðunandi, að opin- berum starfsmönnum sé meinaður réttur til að semja um laun sín og kjör með hliðstæðum hætti og aðrar launastéttir. Telur þingið svo al- varlega skerðingu mannréttinda ósamboðna ís- lenzka lýðveldinu. Þessvegna heitir þingið á ríkisstjórn og Al- þingi að afnema þegar í stað allar takmarkanir á slíkum samningsrétti opinberra starfsmanna og ganga síðan til samninga við fulltrúa B. S. R. B. um launakjör starfsmanna ríkisins. í slíkum launasamningum yrðu þessi atriði tekin sérstaklega til greina m. a.r a) Laun séu a. m. k. sambærileg við það sem tíðkast á frjálsum vinnumarkaði, svo að ríkið geti jafnan tryggt sér hæfa starfskrafta. Lægstu laun verði jafnan lífvænleg, og bið- tími til fullra lairna verði eigi meiri en tvö ár. b) Við röðun í launaflokka verði leitast við að taka í vaxandi mæli tillit til starfa fremur en stofnana. Þá verði og tekið fullt tillit íil aukinna menntunarkrafa frá því gildandi launa- lög voru sett. c) Launasamningar verði gerðir til nokkurra ára, en jafnhliða verði tryggt, að laun samkv. þeim breytist í fullu samræmi við breytingar á grunnkaupi annarra stétta, ef þær nema a. m. k. 5% samkvæmt mánaðarlegum athugunum Hagstofu íslands. V. Launalög. Verði ekki fallizt á óskoraðan samningsrétt starfsmanna ríkisins um launakjör, en í þess stað unnið að endurskoðun og setningu nýrra launalaga, felur þingið stjórn bandalagsins og fulltrúum í launamálanefnd að leggja áherzlu á þessi atriði m. a.: a) Aðiljum bandalagsins gefist fullur kostur þess að koma tillögum sínum á framfæri við endurskoðunarnefndina og ræða þær við hana. b) Tillit verði tekið til fyrri almennra ályktana frá þingum bandalagsins (t. d. 12. og 13. þing- inu) og tillagna frá milliþinganefndum þess að svo miklu leyti sem þær eiga enn við (sbr. og tillögur þær, sem koma fram í aðalályktun þessa þings um samningsrétt). c) Þingið beinir þeirri áskorun til bandalags- stjórnar, að gefnu tilefni, að allir þeir starfs- menn ríkisins, er þess óska, og vinna aðalstarf sitt í þágu þess, verði teknir inn á launalög og skipað þar í ákveðna flokka, eftir þeim reglum, sem eðlilegar teljast, og taki laun samkvæmt því. VI. Aðild að nefnd. 16. þing B. S. R. B., ítrekar áskorun fyrri þinga, að ríkisstjórn og Alþingi veiti B. S. R. B. aðild að kauplagsnefnd og verðlagsnefnd landbúnaðar- afurða. VII. Aukaþing. Þingið felur bandalagsstjóminni að kalla sam- an aukaþing eigi síðar en 1. marz 1955 og leggja fyrir það nákvæma skýrslu um viðhorfið í launa- málum og dýrtíðarmálum með sérstöku tilliti til samþykkta þessa þings í þeim málum. Dýrtíðar- og skattamál. I. Verðlags- og dýrtíðarmál. 16. þing B. S. R. B., varar við afleiðingum þeirrar verðbólguþróunar, er nú á sér stað í efnahagsmálum landsins, en þær hljóta að verða nýtt kapphlaup milli kaupgjalds og verðlags, ef ekki er spyrnt við fæti. Heitir bandalagið stuðningi sínum við hverjar þær ráðstafanir, er til þess eru fallnar að stöðva þessa óheillavænlegu þróun, enda sé um slíkar ráðstafanir haft fullt samráð við hagsmunasam- tök launþega í landinu. Þingið vill vekja sérstaka athygli á eftirfarandi atriðum, sem þarfnast skjótrar úrlausnar, og skorar því á Alþingi það, er nú situr, að taka íil meðferðar og afgreiðslu: 1. Setningu laga um fasteignaveðlán til íbúða- bygginga á vegum byggingasamvinnufélaga, íbúða til eigin nota og íbúðabygginga á veg- um bæjarfélaga. Verði tryggt að lán þessi nemi allt að % hlutum byggingakostnaðar og lánstími eigi skemmri en 35 ár á meginhluta láns til hverrar íbúðar. ÁSGARÐUR 29

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.