Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Page 33
2. Að hlutast til um að gerðar verði þjóðhags-
áætlanir um fjárfestingu með líku sniði og
tíðkast í nágrannalöndum vorum.
3. Að breyta lögum um söluskatt á þá lund, að
hann verði eigi innheimtur nema einu sinni
af hverri vörutegund, og afnuminn af allri
nauðsynlegri þjónustu.
II. Skattamál.
16. þing B. S. R. B., telur að stigið hafi verið
spor í rétta átt með breytingu þeirri, sem gerð
var á skattalögum á síðasta Alþingi, en telur
nauðsyn bera til að ljúka sem fyrst endurskoðun
skatta og útsvarslaganna, og skorar því á mþn.
í skattamálum að hraða störfum svo sem verða
má.
Þingið ítrekar sérstaklega fyrri samþykktir
bandalagsins um eftirtalin atriði:
1. Allir persónuskattar verði lagðir á í einu
lagi og greiddir á sama stað. Tekið verði upp
staðgreiðslukerfi hliðstætt því, sem er í ýms-
um öðrum löndum.
2. Þar sem eftirlit með framtölum annarra en
launamanna er algjörlega ófullnægj andi, ber
brýna nauðsyn til þess að gerðar séu þegar
í stað nauðsynlegar ráðstafanir til þess að
herða eftirlit með skattaframtölum allra þeirra,
sem einhvern rekstur hafa með höndum.
Starfskjör.
1. 16. þing B. S. R. B. felur stjórn bandalagsins
að beita sér fyrir því, að felld verði niður eða
stórlega minnkuð yfirvinnuskylda sú, sem
lögin um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins ákveða.
2. 16. þing Ð. S. R. B. felur stjórn bandalagsins
að beita sér fyrir því, að orlof opinberra
starfsmanna verði ekki skemmra en 18 dagar
eftir eins árs starf. Ennfremur, að í þeim
bæjarfélögum, þar sem ákvæði um orlof hafa
ekki verið sett, verði það gert nú þegar, og
fái bæjarstarfsmennirnir ekki skemmra orlof
en starfsmenn ríksins.
3. Sumir opinberir starfsmenn verða að sæta því,
að vinna skyldustörf sín að nokkru í nætur-
vinnu. Felur 16. þing B. S. R. B. bandalags-
stjórninni að beita sér fyrir því, að nætur-
vinnan verði aldrei meiri en þriðjungur fasta
vinnutímans.
4. 16. þing B. S. R. B. lýsir ánægju sinni yfir því
að lög lífeyrissjóðanna hafa verið tekin til
endurskoðunar, væntir þess að henni verði
hraðað eftir föngum.
5. Nokkrir starfshópar hafa með samningum eða
hefð náð betri kjörum í einstökum greinum
en lögin um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna og reglugerðir, sem þeim fylgja,
gera ráð fyrir. Telur 16. þing B. S. R. B. tví-
mælalaust að þessir starfshópar eigi að halda
þeim kjörum, þrátt fyrir ákvæði nefndra laga
og reglugerða, sem kunna að ganga skemmra.
Komi önnur skoðun í ljós við framkvæmd
þessara laga og reglugerða, felur þingið
sambandsstjórninni að standa fast á rétti
nefndra starfshópa.
6. 16. þing B. S. R. B. felur stjórn bandalagsins
að vera vel á verði um það, að lögin um rétt-
indi og skyldur opinberra starfsmanna og
reglugerðir sem þeim fylgja, verði framkvæmd
starfsmönnum í vil, eftir því sem frekast er
kostur. Ennfremur, að í bæjarfélögum, þar
sem þessum málum er ekki fyllilega skipað,
verði settar reglugerðir, sem tryggi starfs-
mönnum ekki lakari rétt en ríkisstarfsmenn
hafa.
7. B. S. R. B. telur það eitt af hagsmuna- og
kjaramálum sambandsfélaganna að hver
starfsmaður í bæjarþjónustu eigi aðgang að
lífeyrissjóði á sama hátt og starfsmenn ríkis-
ins.
Starfsmannafélögum flestra bæjanna hefir
ekki tekizt að fá bæjarstjórnir til þess að
stofna lífeyrissjóði þrátt fyrir jafnvel áratuga
baráttu fyrir því máli.
Þingið samþykkir því að fela stjórn B. S.
R. B. að veita hinum einstöku starfsmanna-
félögum stuðning á þann hátt að skrifa bæjar-
stjórnum áskorun frá bandalaginu um að
stofna lífeyrissjóði, er taki gildi um næstu
áramót.
8. 16. þing B. S. R. B. felur stjóm bandalagsins
að vinna að því við Alþingi, ríkisstjórn og
bæjarstjórnir að núgildandi lögurn og reglu-
gerðum verði breytt í það horf að lögreglu-
mönnum og brunavörðum sé heimilt að láta
af störfum með fullum eftirlaunum, eftir að
þeir hafa náð 55 ára aldri, enda sé starfsaldur
þeirra orðinn 25 ár.
Skipulagsmól.
16. þing B. S. R. B. 1954 beinir því til banda-
lagsfélaganna að skipulagsmál bandalagsins verði
tekin til umræðu í félögunum, og verði tekið
til ýtarlegrar athugunar, hvort ekki sé tímabært
að bandalagið verði myndað af stærri skipulags-
legum heildum en nú er, þar sem því verður
við komið.
Alyktar þingið að kosin skuli milliþinganefnd
3ja manna, sem falið verði það hlutverk að ann-
ast um að hafnar verði umræður hjá einstökum
félögum bandalagsins um höfuðatriði þessarar
ÁSGARÐUR 31