Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Síða 35
skipulagsbreytingar og jafnframt að vinna að
því, að samstarf verði tekið upp með félögunum
um frekari undirbúning að framkvæmd hennar,
ef grundvöllur reyndist fyrir því.
Milliþinganefndin skal vinna að þessu verkefni
í samráði við stjórn bandalagsins til næsta þings.
Menningarmál.
1. 16. þing B. S. R. B. lýsir yfir því, að það
telur útgáfu allskonar glæpa- og æsingarita
þjóðinni til vansæmdar og tjóns.
Það skorar á Alþingi að samþykkja fram-
komið frumvarp um, að á hverju slíku riti sé
getið nafns ábyrgðarmanns og útgefanda, og
einnig sé komið í veg fyrir að þau séu seld
nema í bókabúðum.
Jafnframt skorar þingið á stjórnarvöldin og
barnaverndarráð að fylgja fast fram rétti sínum
til að hafa eftirlit með slíkri útgáfustarfsemi og
gera upptæk öll þau blöð og tímarit, innlend
sem erlend, er siðspillandi áhrif hafa á börn og
unglinga, enda séu ekki gerðar vægari kröfur
í þessu efni en nú gilda um kvikmyndir.
2. Eftirlit verði hert með kvikmyndum og
ábyrgð komið fram á hendur þeim kvikmynda-
húsum, sem sýna börnum eða unglingum bann-
aðar myndir.
3. 16. þing B. S. R. B. vísar því til stjórnar
bandalagsins til athugunar, hvort möguleiki
væri á að bandalagið gæfi út árbók.
Fjárhagsmál.
1. 16. þing B. S. R. B. samþykkir að ráða fram-
kvæmdastjóra frá næstu áramótum, til að ann-
ast daglegan rekstur bandalagsins ásamt fræðslu-
starfsemi, blaðaútgáfu o. fl.
2. 16. þing B. S. R. B. samþykkir að hækka
félagsgjöld til bandalagsins úr kr. 15,00 í kr.
20,00 og taki hækkunin gildi frá næstu ára-
mótum.
3. 16. þing B. S. R. B. samþykkir að fela stjórn
bandalagsins að sækja nú þegar til Alþingis um
styrk til fræðslu- og menningarstarfsemi banda-
lagsins, hliðstæðan þeim, sem veittur er Alþýðu-
sambandi íslands og fleiri sambærilegum hags-
munasamböndum.
4. 16. þing B. S. R. B. leggur til að fulltrúar
utan af landi fái greidd fargjöld til og frá þingi
og kostnaðaráætlun verði gerð í samræmi við
það.
17. þingið - aukaþing
(Fyrri fundur).
Á 16. þingi bandalagsins var samþykkt ályktun,
þar sem lagt var fyrir stjórn bandalagsins að
kalla saman aukaþing eigi síðar en 1. marz 1955.
I tilefni af þessu var 17. þing bandalagsins kvatt
saman til fundar hinn 28. febrúar 1955. Var
þingið haldið í hinum glæsilega sal Melaskólans
í Reykjavík.
Formaður bandalagsins, Olafur Björnsson,
prófessor, setti þingið. Forsetar voru kjörnir
Helgi Hallgrímsson, Björn L. Jónsson og Maríus
Helgason. Ritarar: Aðalsteinn Norberg, Ársæll
Sigurðsson, Guðjón Gunnarsson og Karl Hall-
dórsson.
I nefndanefnd hlutu kosningu: Andrés G.
Þormar, Þórður Á. Þórðarson, Matthías Guð-
mundsson, Guðjón Guðmundsson, Pálmi Jósefs-
son, Sveinbjörn Oddsson og Lúðvík C. Magnús-
son.
Formaður bandalagsins flutti skýrslu stjórnar-
innar. Rakti hann gang launamálsins frá síðasta
þingi og lýsti þeim kjarabótum, sem opinberir
starfsmenn hefðu fengið á því tímabili. Launa-
uppbót var hækkuð úr 10—17% í 20% hjá starfs-
mönnum ríkisins, en í 23% hjá starfsmönnum
Reykjavíkurbæjar. Greiðir ríkið uppbætur
þessar frá 1. janúar 1954, en Reykjavíkurbær
frá 1. október 1954. Kröfunni um fulla vísitölu-
uppbót fékkst ekki framgengt. Þá ræddi formaður
um dýrtíðarmál almennt.
f dýrtíðarmálanefnd þingsins voru kjörnir:
Guðjón B. Baldvinsson, Sigurbjörn Þorkelsson,
Hjörtur Kristmundsson, Jón Þórðarson, Halldóra
Eggertsdóttir, Ingvar Brynjólfsson og Karl Hall-
dórsson.
Þingið samþykkti eftirfarandi ályktanir:
I. Aukaþing B. S. R. B. haldið í Melaskóla 28.
febrúar 1955 lýsir yfir því, að launabætur þær,
sem fengizt hafa, eru allskostar ófullnægjandi,
og fullnægja enganveginn þeim lágmarkskröf-
um, sem 16. fulltrúaþing B. S. R. B. bar fram.
II. Aukaþing B. S. R. B. haldið í Melaskólanum
28. febrúar 1955, lýsir yfir samúð sinni með
kjarabaráttu verkalýðsfélaganna. Jafnframt lýsir
þingið yfir þeirri skoðun sinni, að þær ráðstaf-
anir séu beztar, sem auka kaupmátt launanna.
III. Þingið ákveður að fresta þingfundum fyrst
um sinn, og felur jafnframt forsetum þingsins, í
samráði við bandalagsstjóm, að kalla þingið
saman til framhaldsfunda innan tveggja mánaða.
Allmiklar umræður urðu á þinginu um launa-
og dýrtíðarmál.
ÁSGARÐUR 33