Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1955, Síða 40
Meðalalýsi-
Fóðurlýsi
MEDALALÝSI, bæði ÞORSKALÝSI
og UFSALÝSI í eftirgreindum umbúð-
um:
Flöskur, innihald 325 grm., 24
og 48 fl. kassa.
Dósir, innihald 2,5 kg., 6 dósir
í kassa.
Brúsar, innihald 21 kg.
Tunnur, innihald 105 kg.
Tunnur, innihald 193 kg.
LÚÐULÝSI í dósum, innihald 2,5 kg.
FÓÐURLÝSI í eftirgreindum umbúð-
um:
Dósir, innihald 2,5 kg., 6 dósir
í kassa.
Brúsar, innihald 21 kg.
Tunnur, innihald 105 kg.
Tunnur, innihald 180 til 195 kg.
Vitamin innihald lýsisins:
Þorskalýsi yfir 1000 A 100 D
Ufsalýsi yfir 2000 A 200 D
Lúðulýsi yfir 50000 A
Fóðurlýsi yfir 1000 A 100 D
Sendum gegn póstkröfu til kaupenda
úti á landi. Fyrirspurnum svarað í síma
5212. — Afgreiðsla lýsisins er á Granda-
vegi 42.
LÝSS H. F.
Hafnarhvoli, P. O. Box 625.
Reykjavík.
VI. KAFLI
Skyldur starfsmanna.
28. gr.
Starfsmanni er skylt að rækja starf sitt með alúð
og samvizkusemi í hvívetna. Hann skal gæta kurteisi,
lipurðar og réttsýni í starfi sínu. Hann skal forðast
að hafast nokkuð það að í starfi sínu eða utan þess,
sem er honum til vanvirðu eða álitshnekkis eða varnað
getur rýrð á það starf eða starfsgrein, er hann vinnur
við.
29. gr.
Skylt er starfsmanni að hlýða löglegum fyrirskip-
unum yfirmanna um starf sitt.
30. gr.
Starfsmenn skulu koma stundvíslega til starfa, hvort
heldur er að morgni eða eftir hlé. Skrifstofustjórar og
aðrir yfirmenn skulu fylgjast með stundvísi starfs-
manna. Hafa skal stimpilklukkur í skrifstofum og
vinnustofum, þar sem því verður við komið, og halda
skrá um, hvernig starfsmenn koma til vinnu.
Starfsmanni er skylt að vinna án endurgjalds yfir-
vinnu allt að tvöföldum þeim tíma, er hann hefur
verið frá starfi án gildra forfalla, eða hlíta því, að
dregið sé af launum sem því nemur.
Nú sýnir starfsmaður óstundvísi og vanrækslu í
starfi sínu og lætur ekki skipast við áminningu yfir-
boðara, og varðar það brottvikningu um stundarsakir
eða fyrir fullt og allt, ef miklar sakir eru.
31. gr.
Skylt er starfsmönnum að vinna yfirvinnu, sem yfir-
boðarar telja nauðsynlega. Þó er engum starfsmanni,
nema þeim, er gegnir lögreglustörfum eða annarri ör-
yggisþjónustu, skylt að vinna meiri yfirvinnu í viku
hverri en nemur þriðjungi af lögmætum vikulegum
vinnutíma.
32. gr.
Hverjum starfsmanni er skylt að gæta þagmælsku
um atriði, er hann fær vitneskju um í starfi sínu
og leynt skulu fara samkv. lögum, fyrirmælum yfir-
boðara eða eðli málsins. Þagnarskyldan helzt þótt
látið sé af starfi.
33. gr.
Skylt er starfsmanni að hlíta breytingum lögum
samkvæmt á störfum hans og verkahring frá því, er
hann tók við starfi, enda hafi breytingin ekki áhrif
til skerðingar á launakjörum hans eða réttindum.
Sama er um breytingar, er yfirmaður ákveður, en
þeirri ákvörðun má skjóta til ráðherra.
VII. KAFLI
Um aukastörf.
34. gr.
Heimilt er að fela starfsmanni að vinna fyrir sann-
gjarnt endurgjald aukastörf í þágu ríkisins, enda valdi
það ekki vanrækslu á þeim störfum, er stöðu hans
fyl£ja.
Aður en starfsmaður stofnar til atvinnurekstrar,
hyggst að taka við starfi í þjónustu annars aðila en
ríkisins gegn varanlegu kaupi eða ganga í stjórn
atvinnufyrirtækis, ber honum að skýra því stjómvaldi,
er veitti stöðuna, frá því. Innan tveggja vikna skal
starfsmanni skýrt frá því, ef áðurnefnd starfsemi telst
ósamrýmanleg stöðu hans, og honum bannað að hafa
hana með höndum. Bera má slíkt bann undir ráðherra.
Rétt er að banna starfsmanni slíka starfsemi sem
í 2. málsgrein segir, ef það er síðar leitt í ljós, að hún
megi ekki saman fara starfi hans í þjónustu ríkisins.
38 ÁSGARÐUR