Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Page 11
Fréttir frá stjórn B.S. R. 6.
Orlof opinberra starfsmanna.
Eftir „desemberverkfall“ verklýSsfé-
laganna 1955, þegar þau fengu 20%
hækkun á orlofsfé, kom fráfarandi banda-
lagsstjórn því á framfæri við ríkisstjórn-
ina, að opinberir starfsmenn fengju hlut-
fallslega aukningu á sumarleyfum.
Þegar síðasta bandalagsþing var haldið
lá það fyrir, að ríkisstjórnin hafði fallizt
á kröfur bandalagsins fyrir þá starfs-
menn, sem unnið höfðu skemur en 15 ár,
og lagt fram frumvarp á Alþingi í sam-
ræmi við það, en taldi ekki ástæðu til
þess að auka sumarleyfi þeirra, sem
lengur höfðu unnið og þegar höfðu hlotið
24 daga orlof.
Bandalagsþingið fól bandalagsstjórn að
vinna að því að þessir starfsmenn fengju
sitt orlof lengt í 27 virka daga.
Bandalagsstjórnin fylgdi þessari tillögu
eftir í fjármálaráðuneytinu og fjárhags-
föng eru á, og er því starfi enn ekki lokið.
En fullkomið samræmi kemst ekki á um
launagreiðslur karla og kvenna nema
með lagabreytingu. En til þess að undir-
búa þá löggjöf, svo vel sé, er enn mikið
starf fyrir höndum.
Fyrir Alþingi liggur þingsályktunar-
tillaga um skipun jafnlaunanefndar til að
gera athugun á, hvernig launagreiðslum
til kvenna er háttað, bæði á frjálsum
vinnumarkaði svo og hjá ríki og bæjar-
félögum. Er þess að vænta, að skipun
slíkrar nefndar verði til þess, að launa-
mál kvenna verði tekin til alvarlegrar
athugunar og ekki hætt fyrr en það verð-
ur fáránleg fortíðarsaga, að greidd séu
laun eftir því, hvort karl eða kona er að
starfi.
nefnd Alþingis með þeim árangri, að sam-
þykkt var, að menn með 15 ára starfs-
aldur fengju 27 virka daga í sumarfrí.
25 þús. króna styrkur til bandalagsins.
18. þing bandalagsins lagði áherzlu á,
að stjórn bandalagsins ynni áfram að því
við Alþingi og ríkisstjórn, að bandalagið
nyti styrks úr ríkissjóði til starfsemi
sinnar, hliðstætt því, sem Alþýðusam-
bandið hefur hlotið, en óskum Bandalags-
ins í því efni hafði áður verið synjað.
Eftir bréfaskriftir og viðtöl við fjár-
málaráðherra og fjárveitinganefnd Al-
þingis, fengust 25 þús. kr. inn á fjárlög
ársins 1957, og er sama upphæð á fjár-
lögum yfirstandandi árs.
Hækkun á bygg ngarlánum.
Samkvæmt samþykkt síðasta bandalags-
þings, vann bandalagsstjórnin að því
strax að afloknu bandalagsþingi að fá
hækkun á byggingarlánum lífeyrissjóða
opinberra starfsmanna. Sá árangur fékkst
í þessu máli, að Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins hækkaði lánin frá árs-
byrjun 1957 að telja úr 225 í 300 kr. á
hvern rúmmetra. Jafnframt var íbúðar-
stærð til þess að ná hámarksláni lækkuð
úr 440 í 400 m3.
Síðar var svo ákveðið að verja tals-
verðri fjárupphæð til hækkunar á lán-
um þeirra, sem fengið höfðu lán á árun-
um 1956 og 1955 og enn voru í vandræð-
um með að ljúka byggingum sínum. Var
byggingarsamvinnufélögum skrifað um
ráðstöfun þessa, og mun um 3 milljónum
króna hafa verið varið til hækkunar á
eldri lánum samkv. þessu.
Nýlega hefur enn verið ákveðið að
hækka lánin úr 300 í 325 kr. á m3 og
ÁSGARÐUR 9