Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.05.1958, Blaðsíða 21
Félög bæjarstarfsmanna eru flest fá-
menn og ung að árum, þau hafa orðið að
heyja baráttu við bæjarstjórnir fátækra
bæjarfélaga, sem oftast nær hafa fremur
litið á hvað væri vinsælt meðal kjósenda
almennt, en hvað væri eðlilegt lifibrauð
handa starfsmönnum bæjarfélagsins.
Þó að langt sé í land þangað til sá
hugsunarháttur er að fullu horfinn, að
opinberir starfsmenn séu ómagar, þá hefir
þó aukizt skilningurinn á því að þeir eru
líka borgarar og þurfa líka að lifa, þó
að þeir rói ekki til fiskjar né afli heyja
og hirði skepnur.
Það vakti því athygli og ánægju þegar
landsþing Sambands ísl. sveitarfélaga
1955 beindi tilmælum til stjórnar sam-
bandsins, að hún hefði forgöngu um sam-
ræmingu launakjara starfsmanna sveitar-
og bæjarfélaga. Stjórnin hófst þegar handa
um undirbúning, og á fulltrúaráðsfundi
sambandsins 1956 var henni falið að hafa
forgöngu um þetta mál og leita sam-
starfs við stjórn B. S. R. B.
Stjórn B. S. R. B. tilnefndi af sinni
hálfu til þess að vinna að þessu máli, þá
Sveinbjörn Oddsson form. Starfsmanna-
Guðjón B. Baldvinsson deildarstjóri:
Launakjör starfs-
manna í kaupstöðum
og kauptúnum
fél. Akraneskaupstaðar, Júlíus Björns-
son, varaform. Starfsmannafél. Reykja-
víkurbæjar og Guðjón B. Baldvinsson.
Saga þessa máls og starf nefndarinnar
verður ekki rakið hér, en í stuttu máli
varð árangur sá, að samin voru drög' að
samræmdri launasamþykkt fyrir starfs-
menn kaupstaðanna.
Launastigi er hinn sami og nú gildir
í stærstu bæjunum. Það sjónarmið réði
að sömu laun skyldi greiða hvar sem
væri á landinu, eins og gert er hjá ríkinu,
ennfremur að ekki skyldi mismuna í laun-
um eftir kynjum. Flokkun eftir störfum
í launastiga frá X. til XIV. launafl. er
algerlega í samræmi við það, sem gildir
hjá Reykjavíkurbæ, Hafnarfirði, Kefla-
vík og hjá ríkinu samkv. launalögum.
Þegar ofar kom í stigann vandaðist
málið vegna þess að þá eru til ótal frá-
vik. Ymsir starfsmenn hafa fleiri en eitt
starf með höndum, forstjórn ýmsra bæjar-
fyrirtækja er misjafnt metin til launa,
til eru stór og þýðingarmikil bæjarfyrir-
tæki, sem krefjast sérhæfðra starfskrafta
í framkvæmdastjórn og við skrifstofu-
störf. Þetta verður ekki metið eða niður-
raðað af fáum mönnum á fundi í Reykja-
vík, þó að allir séu af vilja gerðir. Hér
verður kunnugleiki að koma til. Þess var
því gætt að hafa rúmt um hendur. Þrír
fulltrúaflokkar gefa sæmilegt svigrúm til
ÁSGARÐUR 19