Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1965, Page 5

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 15.03.1965, Page 5
Sveinn Björnsson, verkfrceðingur: Akvörðun launahlutfalla með kerfisbundnu starfsmati Á síðasta þingi B. S. R. B. ríkti nokkur áhugi á því, að félögum sambandsins yrði gefinn kostur á, að kynnast því, sem nefnt hefur verið kerfisbundið starfsmat". Ritstjóri blaðsins leitaði til Sveins Björns- sonar, forstjóra Iðnaðarmálastofnunar ríkis- ins, um grein varðandi þetta efni, en Sveinn er manna fróðastur um það og hefur á undan- förnmn árum kynnt þessa nýju leið til lausn- ar launamála bæði í ræðu og riti. Sveinn tók málaleituninni vel og fer grein hans hér á eftir. Nokkurs misskilnings hefur gætt hjá ýms- um ríkisstarfsmönnum vegna samþy-kktar, sem gerð var á bandalagsþingi s.l. haust, sem var á þá leið, að stjórn B. S. R. B. beitti sér fyrir kerfisbundnu starfsmati við samn- inga við ríkisstjórnina. Hafa sumir ætlað, að notað verði þannig starfsmat við næstu kjara- samninga, en eins og kemur fram í grein- inni hér á eftir, er ein veigamesta forsendan fyrir kerfisbundnu starfsmati, að báðir aðilar komi sér niður á ákveðna þætti starfsmatsins, en um slíkt hefur ekki verið að ræða, því að í þau skipti, sem Kjararáð hefur fitjað upp á slíkum vinnuaðferðum við samninga- nefnd ríkisstjórnarinnar, hefur ekki verið um neinar undirtektir að ræða. Það skal tekið fram að reynt verður eftir föngum að birta í hverju hefti blaðsins ein- hverja viðlíka grein og hér fer á eftir, þar sem saman fer fróðleikur og gagnsemi. Blaðið þakkar Sveini Björnssyni góðar undirtektir og skjóta úrlausn. Inngangur. Það geta væntanlega allir orðið sam- mála um, að það sé nokkrum vandkvæð- um bundið að ákveða launahlutföll fyrir ólík störf. Þetta er í senn gamalt vanda- Svemn Bjövnsson. mál og nýtt, en eftir því, sem verkaskipt- ing verður fjölþættari reynir sífellt meira á, að þetta fari vel úr hendi. Að vísu heyr- ist stöku sinnum nefnt það sjónarmið, að hér sé í rauninni um ekkert vandamál að ræða. Algjör launajöfnuður sé það eina rétta. I rauninni liggur það fyrir utan til- gang þessarar greinar að vega og meta þá spurningu, hvort gera skuli verulegan eða lítinn mun á launum fyrir mismunandi vandasöm og erfið störf. En því er á þetta minnst, að það vandamál að ákvarða launahlutföll er því aðeins til staðar, að verulegur munur sé gerður á launum í áðurgreindum skilningi. Ritstjórn Asgarðs hefur óskað þess, að greinarhöfundur tæki saman nokkurn fróðleik um kerfisbundið starfsmat. Að baki þessari ósk liggur, að vænta má, áhugi á því að endurbæta, ef unnt er, þá aðferð, sem notuð hefur verið við ákvörð- un launahlutfalla opinberra starfsmanna og að þeim skapist tækifæri til að kynn- ast og íhuga í þessu skyni þá leið, sem fólgin er í kerfisbundnu starfsmati. Enda þó orðið starfsmat kunni að koma mönnum fyrir sjónir sem nýyrði, ÁSGARÐÚR 5

x

Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja
https://timarit.is/publication/1581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.