Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 10
10 Fréttir 16. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFÓKUS Á HJARTA LANDSINS 16. september 2021 FIMMTUDAGUR
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari.
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi.
Ein torfærasta fjallaleið á Íslandi er Gæsavatnaleið en
hún liggur frá Tómasarhaga á Sprengisandsleið norð-
an Vatnajökuls að Drekagili í Dyngjufjöllum. Flestir
klöngrast Gæsavatnaleið akandi og er þá lagt upp frá
skála Ferðafélags Íslands í Nýjadal, en þeir hörðustu
þræða hana á nokkrum dögum gangandi eða á fjalla-
hjólum. Á leiðinni er farið um Gæsavötn, yfir Dyngju-
háls og fram hjá Kistufelli uns komið er að Urðarhálsi.
Þetta er jökulsorfin grágrýtisdyngja sem nær 1.025 m
hæð og er eins og nafnið gefur til kynna stórgrýtt sem
gerir 8 km langa leiðina yfir hálsinn að einum helsta
farartálma Gæsavatnaleiðar. En það borgar sig að mjak-
ast upp Urðarháls því efst er risastór sigketill sem er með
helstu náttúruundrum Íslands. Þetta er svokallaður fall-
gígur (e. pit crater) sem verða til í dyngjum þegar berg-
bráð tæmist úr þeim og skilur eftir storkið hraunþak
sem síðan fellur saman. Sigketillinn á Urðarhálsi er
engin smásmíði, eða 1.100 m langur, 800 m breiður og
hátt í 100 m að dýpt. Hann er jafnfram langstærsti fall-
gígur á Íslandi þótt hann eigi lítið í þekktustu fallgíga
jarðar á Havaí. Úr lofti sést hvernig gígurinn á Urðar-
hálsi er eins og stansaður í stórgrýtta dyngjuna með
þverhníptum brúnum sem geta verið varasamar, ekki
síst í vetrarferðum.
Það er gaman að ganga í kringum sigketilinn á Urðar-
hálsi og virða fyrir sér gímaldið í návígi. Útsýnið frá
brúnum hans er af dýrari gerðinni og sést vel í risavaxna
Trölladyngju í norðvestur, austan við hana Dyngjufjöll
og enn lengra í austur Snæfell og Kverkfjöll. Í suðri er
Vatnajökull með Bárðarbungu og enn nær Kistufell og
vestar Tungnafellsjökull.
Eftir gönguna á Urðarhálsi er haldið áfram austur
Gæsavatnaleið að næsta farartálma, svokölluðum Flæð-
um. Þar f læðir yfirborðsvatn af jöklinum út á svarta
sanda, einkum síðdegis þegar hlýtt er í veðri. Á margra
kílómetra kafla þarf oft að aka nánast viðstöðulaust
í jökulvatni til að forðast að festast í aurbleytu. Flæð-
urnar geta þó þornað upp og þá byrgja sandstormar oft
útsýni. Smám saman er komið að Holuhrauni og síðan
ekið meðfram því að Drekagildi í Dyngjufjöllum, rétt
hjá Öskju. Gæsavatnaleið tekur daginn akandi og vel
það, og því kærkomið að hvíla ökutækið og skella sér í
göngu á grjóthörðum Urðarhálsi. ■
Grjótharður Urðarháls
Urðarháls er
stórgrýtt dyngja
með sigkatli
sem jafnframt
er stærsti fall-
gígur landsins.
Hér er horft til
norðausturs
en ef vel er að
gáð sést hópur
fjallahjóla-
fólks neðarlega
á myndinni.
MYNDIR/ÓMB
Hjólað yfir Flæðurnar í átt að Urðarhálsi, en þennan dag voru þær að mestu þurrar og því auðveldar yfirferðar.
Kistufell í baksýn.
Á Gæsavatnaleið er landslagið víða eins og á tunglinu, ekki síst við Urðarháls.