Fréttablaðið - 16.09.2021, Blaðsíða 13
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Netapótek Lyavers
Frí heimsending um land allt!*
Í Netapóteki Lyavers
getur þú fundið þína
lyfseðla, valið samheitalyf
og séð lyaverðið þitt.
Nýttu þér lágt lya- og
vöruverð á lyaver.is
lyaver.is
Suðurlandsbraut 22
Afhendum
samdægur
s
á höfuðbo
rgarsvæðin
u
mán–lau e
f pantað
er fyrir kl. 1
3:00.
Opna lyagáttina
Apótekið
heim til þín
*Frí heimsending ef pantaðir eru tveir lyfseðlar
eða verslað er fyrir meira en 9.900 krónur.
Í lýðræðissamfélagi leitast menn
jafnan við að leggja réttlæti eða
sanngirni til grundvallar laga-
setningu. Eðli máls samkvæmt
geta menn verið ósammála um
hvað telst vera réttlátt og sann-
gjarnt. Þessi hugtök er því ekki
unnt að reikna út í excelskjali.
Almenn umræða er helsti
leiðarvísirinn fyrir löggjafann
við mat á því hvort löggjöf er í
samræmi við þetta grundvallar-
sjónarmið.
Tveggja áratuga þóf
Þegar Morgunblaðið birti á
dögunum frétt um stefnu Við-
reisnar í sjávarútvegsmálum var
orðið sanngirni í gæsalöppum
sett í fyrirsögn. Gæsalappir um
sanngirnishugtakið í þessu sam-
hengi sýna vel eðli þeirra deilna,
sem staðið hafa um fiskveiðilög-
gjöfina.
Árið 2000 komst nefnd, með
fulltrúum allra f lokka og helstu
hagsmunasamtaka undir forystu
Jóhannesar Nordal, fyrrverandi
seðlabankastjóra, að þeirri
niðurstöðu að setja þyrfti ákvæði
í stjórnarskrá um gjaldtöku
fyrir tímabundinn afnotarétt af
þjóðareign til þess að fullnægja
kröfum um réttláta og sanngjarna
löggjöf.
Á Alþingi hefur þessi niðurstaða
verið í þófi síðan.
Réttlæti og hagkvæmni
Á því kjörtímabili, sem nú er að
ljúka, stóðu stjórnarflokkarnir
þrír gegn því að kvöð um tíma-
bindingu yrði fest í lög. Áður en
kjörtímabilið hófst voru Fram-
sókn og VG hins vegar fylgjandi
slíkri breytingu.
Frá aldamótum hefur minni-
hluti á Alþingi í 17 ár nýtt aðild að
samsteypustjórnum til að hindra
framgang tillagna auðlinda-
nefndar um tímabindingu. Í 4 ár
frá 2009 til 2013 kom sundurlyndi
þáverandi tveggja stjórnarflokka
um önnur efni í veg fyrir að sátta-
tillaga um tímabindingu næði
fram að ganga.
Núverandi ríkisstjórn hefur
hafnað tillögum um gjald fyrir
tímabundinn afnotarétt með
þeim rökum að fyrirsjáanleiki
sé nauðsynleg forsenda fyrir
hagkvæmni í rekstri sjávarútvegs-
fyrirtækja.
Tvenns konar óvissa
Gæsalappir Morgunblaðsins
Sanngirni í gæsalöppum
benda til þess að röksemdir ríkis-
stjórnarinnar séu reistar á þeirri
trú að réttlæti og hagkvæmni geti
ekki farið saman. Skoðum það.
Gildandi lagareglur segja að
úthlutun veiðiheimilda myndi
ekki eignarrétt eða óafturkallan-
legt forræði. Samkvæmt orðanna
hljóðan er því unnt að svipta
allar útgerðir veiðiheimildum án
fyrirvara, nema dómstólar veiti
uppsagnarfrest. Í því tilviki veit
enginn hver hann kann að vera.
Fyrirsjáanleikinn byggist
því hvorki á stjórnarskrá né
almennum lögum. Hann er algjör-
lega háður tvenns konar pólitískri
óvissu:
Annaðhvort þeirri að einn
f lokkur geti nýtt sér aðild að
ríkisstjórn til að koma í veg fyrir
breytingar eða hinni að sundur-
lyndi annarra f lokka um óskyld
mál leiði til hins sama.
Fyrirsjáanleiki með
lögum eða lukku?
Veðmálið um þessar pólitísku
forsendur hefur gengið upp í tvo
áratugi. Og það getur gengið upp
til eilífðar. En það er engin lagaleg
trygging fyrir því að svo verði.
Fyrirsjáanleikinn byggist því
alfarið á pólitískri lukku en ekki
lagareglu.
Kjarni málsins er sá að endur-
gjald fyrir samning um tuttugu
ára nýtingarrétt tryggir mun
betur en gildandi löggjöf fyrir-
sjáanleika og hagkvæmni. Um leið
myndi sú nýskipan mála full-
nægja betur viðteknum sjónar-
miðum um réttlæti og sanngirni.
Kenningin um að hagkvæmni
og réttlæti séu andstæður er ein-
faldlega ekki á rökum reist.
Samþjöppun og markaður
Því er haldið fram að markaðs-
verðmyndun á tímabundnum
aflaheimildum leiði til of mikillar
hagræðingar og samþjöppunar í
rekstri sjávarútvegsfyrirtækja.
Nú er það svo að verðmyndun á
uppboðsmarkaði er ekki forsenda
fyrir tímabundnum heimildum.
Hún er bara, rétt eins og á öðrum
sviðum, einfaldasta leiðin til að
finna sanngjarnt verð. Hafa þarf
hugfast að þetta er endurgjald
fyrir afnot af sameign en ekki
skattur.
Í gildandi löggjöf sætir framsal
af laheimilda margs konar tak-
mörkunum til að hindra of mikla
hagræðingu og samþjöppun.
Viðnám gegn frekari sam-
þjöppun getur verið skynsamlegt.
En nærtækara er að ná því marki
með breytingu á gildandi reglum
um takmörkun á framsali og
stærð fyrirtækja en með andstöðu
við verðmyndun á markaði. Það er
þekkt, gegnsæ og sanngjörn leið.
Er ekki sá tími kominn?
Er ekki sá tími kominn að tryggja
megi sanngirni og fyrirsjáanleika
í sjávarútvegi með öðru en gæsa-
löppum? n
Kenningin um að hag-
kvæmni og réttlæti séu
andstæður er einfald-
lega ekki á rökum reist.
FIMMTUDAGUR 16. september 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ