Fréttablaðið - 16.09.2021, Page 42
Langdreginni bið eftir atlögu
leikstjórans Denis Ville-
neuve að Dune er loksins að
ljúka. Myndarinnar hefur
víða verið beðið með kvíða-
blandinni óþreyju enda fyrri
tilraunir málsmetandi manna
til þess að kvikmynda þetta
tímamótaverk Franks Her-
berts runnið bókstaflega út í
sandinn.
Leikstjórinn Denis Villeneuve ræðst
ekki á sandskaflinn þar sem hann
er lægstur með djarfri og stjörnum
prýddri tilraun sinni til þess að
laga margbrotna vísindaskáldsögu
Franks Herberts að hvíta tjaldinu.
Margir telja þetta þegar fullreynt
enda hafa ekki minni spámenn en
Alejandro Jodorowsky, Ridley Scott
og sjálfur David Lynch rennt stoð-
um undir þá hugmynd að ómögu-
legt sé að kvikmynda söguna.
Jodorowsky gerði metnaðar-
fulla atrennu að Dune á áttunda
áratugnum en þar sem hann stóð
fastur á því að myndin yrði að vera
eitthvað á milli tíu til tólf klukku-
stunda löng runnu áform hans út í
sandinn. Eðlilega kannski.
Ridley Scott kannaði síðar mögu-
leikana á kvikmyndaaðlögun Dune
en eftir margra mánaða undirbún-
ingsvinnu hætti hann við og sneri
sér að Balde Runner. Sem betur fer
kannski.
Þá rataði bókin í hendur Davids
Lynch sem komst mun lengra en
hinir tveir þar sem Dune rataði eftir
mikla eyðimerkurgöngu í bíó 1984.
Því miður kannski þar sem áhorf-
endur og gagnrýnendur sameinuð-
ust um að slátra myndinni. Lynch til
málsbóta höfðu framleiðendurnir
tekið fram fyrir hendurnar á honum
á endasprettinum þannig að honum
auðnaðist ekki að koma sinni sýn á
verkið alla leið, enda hefur hann
þvegið hendur sínar af myndinni
og afneitað henni með öllu.
Rosalegur listamaður
Villeneuve lét fortíðina ekki aftra
sér. Sem betur fer kannski þar
sem fyrstu viðbrögð gagnrýnenda
benda til þess að honum ætli að
takast að stíga sandölduna með
stæl.
„Ég er mjög peppaður fyrir þess-
ari mynd þótt ég sé ekki neinn
Dune-sérfræðingur,“ segir Haf-
steinn Sæmundsson, sem heldur
úti hlaðvarpinu Bíóblaður. „Ég hef
ekki séð upprunalegu myndina og
hef ekki lesið bókina en ég er mjög
spenntur fyrir þessari mynd og það
er aðallega út af leikstjóranum,“
segir Hafsteinn um Villeneuve.
„Hann er rosalegur. Hann gerði
þrjár myndir í röð sem ég dýrka,
Prisoners, Sicario og Arrival, og ég
var mjög hrifinn af þeim öllum,“
segir Hafsteinn og er þá kominn
að öðrum snertif leti Blade Runner
og Dune en 2017 gerði Villeneuve
framhald af Ridley Scott-klassík-
inni með Blade Runner 2049.
Á hælum Blade Runner
„Ég er reyndar ekki mesti Blade
Runner-maðurinn og er svona
alltaf að reyna að tengja við fyrstu
myndina en hún nær mér aldrei
alveg almennilega. Ég virði þessa
mynd samt. Fyrir það sem hún er
búin að gera fyrir sci-fi. Lúkkið á
henni og tónlistin líka. Þetta er allt
brjálað en ég var meiri Alien-maður
þegar Ridley Scott er annars vegar.
Svo kemur þessi nýja og ég sé
hana í bíó. Mér fannst hún f lott.
Alveg sjúklega f lott mynd en hún
náði ekki að grípa mig,“ segir bíó-
blaðrarinn sem horfði aftur á Blade
Runner 2049 fyrir nokkrum dögum
og varð þá einhvern veginn agn-
dofa.
Denis Villeneuve stígur sandölduna
Timothée
Chalamet og Re-
becca Ferguson
í hlutverkum
vonarneistans
Pauls Atreides
og Lady Jessicu í
Dune.
MYND/WARNER
BROS.
Villeneuve stillir
upp þéttum
leikhópi þar
sem meðal ann-
arra Ferguson,
Zendaya, Javier
Bardem og
Chalamet láta til
sín taka.
MYND/WARNER
BROS.
Francesca Annis og Kyle MacLachlan í Dune sem Lynch hafnaði.
MYND/UNIVERSAL
Denis Villeneuve. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn
@frettabladid.is
„Mér f innst hún bara algjört
listaverk og varð bara enn þá
spenntari fyrir Dune eftir að ég sá
hana aftur.“
100% háspenna
„Alveg 100 prósent,“ segir Hafsteinn
um spenninginn sem hann finnur
fyrir í kringum Dune og hefur verið
að stigmagnast síðan Covid frestaði
ítrekað fyrirhugaðri frumsýningu í
Bandaríkjunum 2020 til 22. október
2021.
Þar fyrir utan hefur skáldsagan
vitaskuld verið helgirit vísinda-
skáldskaparnörda síðan hún kom
út 1965, auk þess sem spor Lynch
í sandinum magna upp kvíða-
blandna eftirvæntinguna.
„Ég finn það bara að það er
rosamikil spenna hjá kvikmynda-
áhugamönnum. Líka bara að fá
eitthvað nýtt sem er ekki Marvel en
er samt stórt. Þannig að ég persónu-
lega er spenntastur fyrir þessari
mynd af öllum sem koma á árinu.
Þetta verður bara gaman.“
Hafsteinn fær örlítið forskot á
sæluna á forsýningu í kvöld en
almennar sýningar hefjast á föstu-
daginn. „Covid er náttúrlega búið að
eyðileggja svolítið fyrir svona stór-
myndum að einhverju leyti en ég er
að vona að fólk flykkist á þessa í bíó.
Mér finnst frábært að Sambíóin
hafi fengið að sýna myndina fimm
vikum fyrir frumsýningu í Banda-
ríkjunum og þú getur þá ekki farið
og sótt hana á netinu. Þú verður að
fara í bíó. Þannig að ég er mjög von-
góður. Ég er eiginlega of spenntur
fyrir þessari mynd,“ heldur Haf-
steinn áfram og hlær.
Óvissa í hálfleik
„Það sem mér finnst líka áhugavert
við myndina og lofa góðu er, að eins
og ég skil þetta, þá ákvað Villeneuve
að taka bókina öðruvísi tökum en
David Lynch. „Lynch kvikmyndaði
alla bókina en Villeneuve tekur
bara fyrri helminginn og það er víst
þannig að í byrjun myndarinnar
kemur Dune Part I á tjaldinu. Ef ég
skil þetta rétt.
Þannig að þetta er bara fyrri hluti
sem getur verið kostur og galli,“
segir Hafsteinn og bendir á þann
augljósa ókost að einhverjir geti
fyllst efasemdum um að þeir fái
þá almennilegan endi. „Og ef þessi
mynd floppar þá fáum við væntan-
lega aldrei númer 2.
Kosturinn er, eins og ég býst við
að þetta verði, að þá fær myndin
allavega kannski að anda aðeins.
Hann er þá ekki að troða of miklu
efni í eina mynd. Það er allavega
mín von.“
Þá segir Hafsteinn að varla þurfi
frekari vitnanna við en stikluna úr
myndinni til þess að keyra vænting-
arnar um góða mynd upp. „Þú sérð
þar að þetta lúkkar brjálæðislega. Ég
þarf örugglega að leggja mig inn á
spítala ef hún er léleg, sko. Ég á eftir
að fara í geðrof eða eitthvað. Hún
má ekki vera léleg.“ ■
Ég þarf örugglega að
leggja mig inn á spítala
ef hún er léleg, sko.
Hafsteinn
Sæmundsson
26 Lífið 16. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 16. september 2021 FIMMTUDAGUR