Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 4
Morgunblaðið/Hari Jarðhitagarður Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar í vetrarham. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrirtækin Carbfix og Climeworks leggja til að við breytingar á raf- orkulögum verði heimilt að fella nið- ur flutningsgjald af raforku í þeim tilvikum sem hægt er að tengja starfsemi beint við virkjanir, eins og til dæmis Hellisheiðarvirkjun þar sem þessi fyrirtæki starfa eða undir- búa starfsemi. Koma þessar tillögur fram í um- sögnun fyrirtækjanna við stjórnar- frumvarp um breytingar á raforku- lögum og lögum um stofnun Landsnets sem nú er til umfjöllunar í atvinnuveganefnd Alþingis. Um- sagnarfrestur er liðinn og bárust sextán erindi. Í mörgum þeirra eru lagðar til breytingar, meðal annars um að krafa verði aukin um hagræð- ingu í flutningi og dreifingu raforku. Carbfix ohf. vinnur að hreinsun á útblæstri Hellisheiðarvirkjunar og förgun á koldíoxíði og brennisteins- vetni með dælingu niður í jörðina þar sem efnin breytast í berg. Fyrir- tækið er að undirbúa hliðstæða starfsemi við Nesjavallavirkjun. Svissneska fyrirtækið Climeworks AG er að reisa verksmiðju í jarðhita- garði Orku náttúrunnar við Hellis- heiðarvirkjun til að fanga koltvísýr- ing úr andrúmslofti, samkvæmt aðferðum Carbfix, og afhenda síðar- nefna fyrirtækinu til förgunar. Fulltrúi Climeworks segir í um- sögn um frumvarpið að fyrirtækið muni kaupa rafmagn, hita og kæli- vatn beint frá Hellisheiðarvirkjun og sé að huga að því að reisa stærri verksmiðju af sama toga hér á landi. Climeworks hefur sent umsókn til Orkustofnunar um beintengingu við Hellisheiðarvirkjun, á grundvelli raforkulaga. Gæti það átt rétt á 60% afslætti af úttektargjaldi og jafnvel meira. Leggur fulltrúi fyrirtækisins til að útfærsla á heimild til beinteng- ingar við virkjun verði bætt. Skýrt verði að afslátturinn geti orðið allt að 100%, þannig að ekki verði greitt flutningsgjald þegar starfsemin hef- ur enga tengingu við flutningskerfið og nýtur engrar þjónustu þess. Vilja niðurfellingu flutningsgjalds - Fyrirtækin sem tengjast beint við Hellisheiðarvirkjun vilja meiri afslátt en nú er heimilt að veita 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er ákveðin viðurkenning á því sem við erum að gera,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa Rauða krossins. Starfsemi farsóttarhúsa og sóttkvíarhótela hér á landi hefur vakið athygli út fyrir landsteinana að undanförnu. Hafa Gylfa og hans fólki borist óskir að utan um leið- beiningar við uppsetningu og rekst- ur slíkra stofnana auk þess sem fjöl- miðlar hafa sýnt starfseminni áhuga. „Vinir okkar í Færeyjum hafa til dæmis fengið allar upplýsingar varðandi uppsetningu farsóttarhúsa. Þeir settu í kjölfarið sitt farsóttar- hús nánast eins upp og okkar á Rauðarárstíg. Þá hefur alþjóða Rauði krossinn sömuleiðis leitað eft- ir upplýsingum hjá okkur svo hægt væri að setja upp sams konar hús í öðrum löndum,“ segir Gylfi. Hann segir að dæmi séu um það í öðrum löndum að starfsfólki hefð- bundinna hótela sé falið að breyta þeim í farsóttarhótel. Það hafi ekki alltaf gefist vel. „Það fólk er auðvitað ekki sérfræðingar í sóttvörnum og þar af leiðandi hafa komið upp smit á þessum hótelum, stundum í miklum mæli. Það er auðvitað það sem menn vilja forðast. Víða erlendis hafa gestir fengið að hittast, til að mynda í sundlaugar- görðum, og í kjölfarið hafa komið upp smit. Við hugsum fyrst og fremst um að sóttvarnir séu í lagi. Það gildir bæði um farsóttarhús og sóttkvíarhótel. Þar er sprittað oft á dag og farið yfir snertifleti eftir alla umferð; ef gestur gengur um gang- ana er farið á eftir honum og sótt- hreinsað. Enn sem komið er hefur enginn starfsmaður sýkst í vinnunni hjá okkur eða þurft að fara í sóttkví. Ég tel að það sé nokkuð gott afrek en á þessum tíma höfum við haft eitthvað um 200 starfsmenn og sjálf- boðaliða hjá okkur.“ Fjölmiðlar sýna þessum góða árangri áhuga. Gylfi nefnir að- spurður sem dæmi að breska rík- isútvarpið, BBC, hafi sett saman umfjöllun um farsóttarhúsið hér og önnur víða um heim. Þá hafi út- varpsstöð í Kólumbíu fjallað um starfsemina hér. Í gær voru um 200 gestir á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni. Á Hótel Lind voru 27 í einangrun og 14 í sóttkví. Auk þess voru rétt tæplega tíu manns í sóttvarnarhúsi á Egils- stöðum. Gylfi segir að umfang starf- seminnar sveiflist til eftir stöðunni hverju sinni, fjölda smita og komu ferðamanna. „Þannig að við erum tilbúin að bæta við plássum ef á þarf að halda,“ segir hann. Farsóttarhúsin þykja vera til fyrirmyndar - Horft til Íslendinga varðandi rekstur farsóttarhúsa ytra Morgunblaðið/Árni Sæberg Starfsemi Gylfi Þór Þorsteinsson við störf sín á sóttkvíarhótelinu í Þórunn- artúni. Vel þykir hafa tekist til við rekstur farsóttarhúsa hér á landi. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Minnisblöð Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis, sem mörg eru fræg orðin að endemum, munu verða vistuð á Þjóðskjalasafni Ís- lands innan fárra ára. Þar verða þau flokkuð eins og önnur gögn op- inberra aðila. „Nei, það er ekkert farið að ber- ast af þeim til okkar og á ekki að berast strax,“ segir Hrefna Ró- bertsdóttir þjóðskjalavörður. Hún segir að minnisblöð Þórólfs, sem nema tugum talsins og hafa falið í sér ýmis tilmæli um samkomutak- markanir, séu vistuð hjá embætti landlæknis og í heilbrigðisráðu- neytinu. „Pappírsgögn eiga að skil- ast hingað eftir 30 ár en rafræn gögn eftir fimm ár. Við viljum helst í samtímanum, þar sem gögn verða til á rafrænan hátt, fá þau til okkar á rafrænu formi,“ segir Hrefna og bætir við að síðustu kannanir Þjóð- skjalasafns bendi reyndar til þess að opinberir að- ilar þurfi að bæta sig í raf- rænum skilum á gögnum. Hún segir aðspurð að viðbúið sé að mikið muni berast til safnsins af skjölum varðandi kórónuveirufar- aldurinn. Hrefna kveðst þó ekki sjá fyrir sér að efnið verði flokkað sér- staklega þar að lútandi. „Líklegra er að haldið verði innra skipulagi hverrar stofnunar. Menn eiga að geta fundið með auðveldum hætti það sem snýr að Covid.“ Minnisblöð Þórólfs á Þjóðskjalasafnið - Covid-skjöl ekki flokkuð sérstaklega Þórólfur Guðnason Dagskrá: Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins Önnur mál Vakin er athygli á að allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Stjórn Gildis–lífeyrissjóðs. Ársfundur Gildis verður haldinn í dag, fimmtudaginn 15. apríl klukkan 17:00. Vegna sóttvarnarráðstafana verður fundurinn að fullu rafrænn. Nánari upplýsingar á www.gildi.is. Gildi–lífeyrissjóður Rafrænn ársfundur 2021 ▪ ▪ ▪ Lífeyrissjóður www.gildi.is Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Ísland er skuldbundið til þess að greiða fyrir alla skammta sem það hefur samið um að fá frá AstraZe- neca, líka þá sem verða ekki notaðir vegna takmarkana sem kunna að vera settar á notkun bóluefnisins. Kemur þetta fram í samningi Ís- lands við bóluefnafyrirtækið, sem heimildamaður Morgunblaðsins inn- an úr stjórnkerfinu hefur barið aug- um, og væntir hann þess að hið sama gildi um samning Íslands við bólu- efnaframleiðandann Janssen. Notkun bóluefnis AstraZeneca er einungis leyfð hér á landi fyrir þá sem eru 70 ára og eldri en sóttvarna- læknir hefur sagt útlit fyrir að þeir sem eru 65 ára og eldri verði einnig bólusettir með efninu. Enn er til skoðunar hvort einhverjar takmark- anir verði gerðar á notkun bóluefnis Janssen en 2.400 skammtar af því komu til landsins í gærmorgun. Danir tóku í gær ákvörðun um að hætta notkun bóluefnisins alfarið vegna mögulegra tengsla þess við af- ar sjaldgæfa blóðtappa. „Við höldum okkar striki þangað til annað kemur í ljós. Þessi ákvörðun Dana hefur ekki áhrif á ákvörðun Íslendinga,“ sagði Hjördís Guðmundsdóttir, upplýs- ingafulltrúi almannavarna, í gær. Trúnaður um efni samninga Nefndarmenn velferðarnefndar hafa fengið að sjá bóluefnasamninga sem Ísland hefur gert og eru bundn- ir trúnaði. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, óskaði eftir aðgengi að þeim og var þeirri ósk hafnað þar sem hún er ekki formlega skráður nefndarmaður en tók sæti í nefndinni tímabundið. AFP Bóluefni Nefndarmenn velferðarnefndar hafa fengið að sjá samningana. Greiða þarf fyrir efni sem nýtist ekki - Skuldbinding í bóluefnasamningum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.