Morgunblaðið - 15.04.2021, Qupperneq 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Meistaradeild karla
8-liða úrslit, seinni leikir:
Liverpool – Real Madrid ......................... 0:0
_ Real Madríd áfram, 3:1 samanlagt.
Dortmund – Manchester City................. 1:2
_ Man City áfram, 4:2 samanlagt.
50$99(/:+0$
Danmörk
Úrslitakeppnin, 2. riðill:
Bjerringbro/Silkeborg – Kolding..... 34:26
- Ágúst Elí Björgvinsson varði 1 skot í
marki Kolding og var með 14% vörslu.
_ GOG 4 stig, Bjerringbro/Silkeborg 3,
SönderjyskE 2, Kolding 0.
Frakkland
Chartres – Aix...................................... 26:27
- Kristján Örn Kristjánsson lék ekki með
Aix vegna meiðsla.
Vináttulandsleikur kvenna
Hvíta-Rússland – Úkraína .................. 29:21
Króatía – Holland .................................24:23
.$0-!)49,
Evrópudeild karla, Euroleague
CSKA Moskva – Panathinaikos.......... 93:86
Liðin sem fara í úrslitakeppnina:
1 Barcelona, 2 CSKA Moskva, 3 Anadolu
Efes, 4 Olimpia Mílanó, 5 Bayern Münc-
hen, 6 Real Madrid, 7 Fenerbahce, 8 Zenit
Pétursborg.
Liðin sem hafa lokið keppni:
9 Valencia, 10 Baskonia, 11 Zalgiris Kau-
nas, 12 Olympiacos, 13 Maccabi Tel Aviv,
14 Lyon-Villeurbanne, 15 Alba Berlín, 16
Panathinaikos, 17 Rauða stjarnan, 18
Khimki Moskva.
NBA-deildin
Minnesota – Brooklyn........................ 97:127
Indiana – LA Clippers ..................... 115:126
Toronto – Atlanta ............................. 103:108
Charlotte – LA Lakers ...................... 93:101
Utah – Oklahoma City ....................... 106:96
Phoenix – Miami ................................. 106:86
Portland – Boston............................. 115:116
Efstu lið í Austurdeild:
Philadelphia 37/17, Brooklyn 37/17, Mil-
waukee 33/20, Atlanta 30/25, Boston 29/26,
Miami 28/26, Charlotte 27/26, New York
28/27, Indiana 25/28, Chicago 22/31.
Efstu lið í Vesturdeild:
Utah 41/14, Phoenix 39/15, LA Clippers 38/
18, Denver 34/20, LA Lakers 34/21, Port-
land 31/23, Dallas 29/24, Memphis 27/25,
San Antonio 26/26, Golden State 26/28.
57+36!)49,
_ Landsliðsmarkvörðurinn Viktor
Gísli Hallgrímsson var valinn maður
leiksins hjá GOG þegar danska liðið
vann pólska liðið Wisla Plock í Evr-
ópudeildinni í handknattleik. GOG
greindi frá þessu á Facebook-síðu
sinni en eins og fram kom í blaðinu í
gær varði Viktor tvö vítaköst í leikn-
um. Alls varði hann 13 skot og var með
33% markvörslu. GOG hafði betur
30:27 en liðin eigast eftir að mætast
aftur.
_ Keppni á Íslandsmótinu í blaki hefst
á ný á miðvikudaginn. Leikjum sem
féllu niður 25. mars til 15. apríl er af-
lýst en ákveðið að öðru leyti að ljúka
þeim leikjum sem eftir voru í deild-
unum.
_ Liban Abdulahi, landsliðsmaður
Sómalíu í knattspyrnu, er genginn til
liðs við Þórsara á Akureyri og leikur
með þeim í 1. deildinni í sumar. Abdu-
lahi er 25 ára gamall miðjumaður,
fæddur og uppalinn í Hollandi, og hef-
ur lengst verið leikmaður Telstar í B-
deildinni en var síðast í röðum Kon-
inklijke í C-deildinni. Þar á milli lék
hann með Jönköping í Svíþjóð. Abdu-
lahi hóf að leika með landsliði Sómalíu
í árslok 2019 og á tvo landsleiki.
Eitt
ogannað
Spænska liðið Real Madríd og
enska liðið Manchester City
tryggðu sér í gærkvöldi sæti í und-
anúrslitum Meistaradeildar Evrópu
karla í knattspyrnu. Real Madríd
sló enska liðið Liverpool út úr
keppninni og Manchester City sló
þýska liðið Borussia Dortmund út
úr keppninni. Real mætir Chelsea í
undanúrslitum og Manchester City
mætir því París Saint Germain sem
sló Evrópumeistarana í Bayern
München út á þriðjudagskvöldið.
Liverpool og Real Madríd gerðu
markalaust jafntefli í Bítlaborginni
í gær. Real var í góðri stöðu eftir
að hafa unnið fyrri leik liðanna 3:1
á Spáni í síðustu viku. Hefði Liver-
pool tekist að skora þá, má búast
við leikurinn hefði orðið líflegur.
En þar sem Liverpool skoraði ekki
þurftu Madrídingar ekki að hafa
miklar áhyggjur af stöðunni.
Real Madríd er sigursælasta lið
keppninnar frá upphafi og hefur
þrettán sinnum sigrað í Evr-
ópukeppni meistaraliða og Meist-
aradeildinni. Real vann fjórum
sinnum á fimm ára tímabili frá
2014 til 2018. Árið 2018 mættust
þessi sömu lið einmitt í úrslitum og
Liverpool sigraði í keppninni ári
síðar. Zinedine Zidane, knatt-
spyrnustjóri Real Madríd, stýrði
liðinu til sigurs í keppninni 2016-
2018.
Manchester City vann Dortmund
2:1 á hinum fræga leikvangi
Westfalenstadion í gær en hafði
einnig unnið fyrri leikinn 2:1 á
heimavelli. Rimma liðanna var
meira spennandi en úrslitin gefa til
kynna. Eftir býsna jafnan leik í
Manchester skoraði City sig-
urmarkið á lokamínútunum. Í gær
komst Dortmund yfir með marki
Jude Bellingham á 15. mínútu. Á
þeim tímapunkti var Dortmund því
með yfirhöndina í rimmunni eftir
að hafa skorað mark á útivelli. Sú
staða stóð þar til á 55. mínútu þeg-
ar Riyad Mahrez jafnaði úr víta-
spyrnu fyrir City. Phil Foden skor-
aði sigurmarkið á 75. mínútu með
skoti rétt utan vítateigs. kris@m-
bl.is
Real og City
í undanúrslit
- Liverpool og Dortmund úr leik
AFP
Í Þýskalandi Ungstirnin Erling Braut Håland og Phil Foden í leikslok.
Sian Massey-Ellis var aðstoðardóm-
ari á leik Tottenham og Manchester
United í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu um síðustu helgi en
samt sást hún ekki í útsendingu frá
leiknum sem sýnd var í Íran. Í hvert
skipti sem sjónvarpsvélarnar beind-
ust að Massey-Ellis skiptu tækni-
menn íranska sjónvarpsins um-
svifalaust yfir á loftmyndir af
leikvanginum. Daily Mail segir að
ástæðan fyrir þessu sé sú að Mass-
ey-Ellis hafi verið of léttklædd fyrir
íranskt sjónvarp en hún var í stutt-
ermatreyju og stuttbuxum.
Of léttklædd fyrir
sjónvarp í Íran
AFP
Reynd Sian Massey-Ellis hefur
dæmt í úrvalsdeildinni í nokkur ár.
Knattspyrnumaðurinn Arnór Sig-
urðsson var valinn í lið umferð-
arinnar í rússnesku úrvalsdeildinni
hjá vefmiðlinum WhoScored í vik-
unni. Arnór átti mjög góðan leik
fyrir félagslið sitt CSKA Moskvu
þegar það vann 2:0-heimasigur
gegn Rotor Volgograd um síðustu
helgi en hann lagði upp fyrra mark
liðsins fyrir Chidera Ejuke.
Arnór hefur leikið nítján leiki í
rússnesku úrvalsdeildinni á tíma-
bilinu þar sem hann hefur skorað
tvö mörk og lagt upp þrjú fyrir liðs-
félaga sína.
Arnór í liði
umferðarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Moskva Arnór Sigurðsson er í
toppbaráttu með liði CSKA.
Kvennalandsliðið í handknattleik
heldur í dag til Slóveníu en fram
undan er fyrri leikurinn gegn Slóv-
eníu í umspili þjóðanna um laust sæti
í lokakeppni HM sem fram fer á
Spáni í desember.
Langt ferðalag er fram undan hjá
íslenska hópnum í dag. Frá Keflavík
verður flogið til Frankurt í Þýska-
landi. Þaðan verður flogið til Zagreb
í Króatíu. Frá Zagreb verður
tveggja tíma rútuferð til Ljubljana,
höfuðborgar Slóveníu.
Ekki er útlit fyrir að íslenski hóp-
urinn skili sér á áfangastað fyrr en
eftir miðnætti aðfaranótt föstudags.
Liðið fær aðeins einn dag til að ná úr
sér ferðaþreytunni því leikurinn í
Slóveníu er á laugardaginn. Ekki er
þetta ákjósanlegt fyrir jafn mik-
ilvægan leik og þennan en á hinn
bóginn eru íslensku landsliðin ekki
óvön því að fara í strembin ferðalög
fyrir mikilvæga leiki. Liðið mun ná
einni æfingu í keppnishöllinni á
föstudeginum.
Farið verður sömu leið heim til Ís-
lands og þá fer liðið á hótel í sóttkví
en undirbýr sig um leið fyrir síðari
leikinn sem verður á Ásvöllum í
Hafnarfirði á miðvikudaginn.
Landsliðið æfði að Varmá í Mos-
fellsbæ í gær og var það síðasta lið-
sæfingin áður en haldið verður utan.
Landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson
tilkynnti jafnframt í gær hvaða sex-
tán leikmenn fara til Slóveníu. Æf-
ingahópurinn samanstendur af tutt-
ugu og einum leikmanni og hægt
verður að gera breytingar á sextán
manna hópnum fyrir síðari leikinn
ef ástæða þykir til.
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Vend-
syssel
Saga Sif Gísladóttir, Val
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, Kristianstad
Ásdís Guðmundsdóttir, KA/Þór
Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV
Sachsen
Eva Björk Davíðsd., Stjörnunni
Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV
Helena Rut Örvarsd., Stjörnunni
Karen Knútsdóttir, Fram
Lovísa Thompson, Val
Mariam Eradze, Val
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram
Rut Jónsdóttir, KA/Þór
Sigríður Hauksdóttir, HK
Thea Imani Sturludóttir, Val
Tímafrekt ferðalag fram undan
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Varmá Helena Rut, Eva Björk, Lovísa, Ragnheiður og Sigríður á æfingunni í Mosfellsbænum í gær.