Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 56
Dj Dóra Júlía
dorajulia@mbl.is
Góðan og gullfallegan daginn. Það er svo skemmtilegt að
rekast á eitthvað jákvætt og uppbyggilegt á samfélags-
miðlum. Ég rakst á Instagram-aðganginn Gleðiskruddan
sem veitti mér mikla gleði.
Forsprakkar framtaksins eru þær Marit Davíðsdóttir
og Yrja Kristinsdóttir og ég spjallaði aðeins við þær um
þetta skemmtilega verkefni.
Gleðiskruddan var lokaverkefni Maritar og Yrju úr já-
kvæðri sálfræði á meistarastigi árið 2020. Þeim þótti
vanta fræðslu og verkfæri fyrir börn og foreldra þeirra til
að nota við að auka sjálfsþekkingu, trú á eigin getu, bjart-
sýni og vellíðan.
Undirbúningurinn hefur aukið vellíðan þeirra
Þær vildu kynna börnum hugmyndafræði jákvæðrar
sálfræði og bjuggu því til Gleðiskrudduna – sem er dag-
bók fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Dagbókin hefur því
verið í vinnslu síðan í janúar 2020 og mikið hefur verið
lagt í hana. Að þeirra sögn hefur undirbúningur dagbók-
arinnar aukið vellíðan þeirra beggja á þessum skrítnu
tímum.
Dagbókin verður prentuð út í takmörkuðu upplagi
snemmsumars 2021. Á dögunum var opnuð Instagram-
síða fyrir Gleðiskrudduna þar sem þær deila ýmsum fróð-
leik tengdum efni bókarinnar.
Síðastliðna helgi vakti Instagramsíðan mikla athygli
þegar fylgjendur voru beðnir um að deila jákvæðum fyr-
irmyndum sínum – en samkvæmt þeim er einn þáttur í
því að efla trú á eigin getu og byggja upp jákvæða sjálfs-
mynd að finna sér jákvæðar fyrirmyndir sem hvatningu.
Hlýnaði í hjartastað yfir öllum náungakærleikanum
„Við höfðum varla undan að deila öllum uppá-
stungunum sem okkur bárust. Okkur hlýnaði sannarlega
í hjartastað yfir öllum náungakærleikanum og góðvildinni
sem átti sér stað,“ segja þessar flottu konur.
Þær eru sannfærðar um að Gleðiskruddan muni veita
börnum og ungmennum verkfæri sem geta nýst þeim í að
takast á við það mótlæti sem þau verða fyrir á lífsleiðinni
á sem uppbyggilegastan máta.
Gleðiskrudduna má finna bæði á Instagram og Face-
book. Þar er að finna bæði fræðslu og fróðleik sem nýtist
fólki á öllum aldri. Einnig hafa þær opnað vefsíðuna gled-
iskruddan.is en þar má finna upplýsingar um dagbókina
ásamt námskeiðum og fyrirlestrum sem eru í boði.
Ótrúlega skemmtilegt verkefni hér á ferð sem dreifir
jákvæðni og gleði. Vel gert, Gleðiskruddan!
Gleðiskrudda sem
dreifir jákvæðni
Skjáskot/Instagram-síða Gleðiskruddunnar
Yrja og Marit Gleðiskrudd-
an var lokaverkefni þeirra
í jákvæðri sálfræði.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Fögur fjallasýn
Eyesland gleraugnaverslun
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
010
1
CUTLINE.
. 5 GL
Hjá okkur færð þú mikið úrval af útivistar- og íþróttagleraugum, með og án sjónglerja.
Fjölskyldubingó mbl.is verður á sínum
stað á í kvöld klukkan 19:00 þar sem
þau Siggi Gunnars og Eva Ruza sjá til
þess að færa fjölskyldum landsins
bingótölurnar beint heim í stofu.
Í síðustu viku mætti söngvarinn Jón
Jósep Snæbjörnsson og tók lagið fyrir
þátttakendur fjölskyldubingósins.
Í kvöld verður breyting á vananum
en tónlistaratriði kvöldsins verður al-
gjörlega óvænt. Þau Siggi og Eva fá
ekki einu sinni að vita hver mætir í
sett. Það verður því spennandi að
fylgjast með en lofað er mikilli
skemmtun fyrir þátttakendur.
Þátturinn í kvöld er síðasti þátt-
urinn fyrir sumarfrí en fjölskyldu-
bingó mbl.is mun mæta aftur í haust.
Það er því gaman að líta aðeins til baka
og skoða þá mögnuðu flytjendur sem
verið hafa með okkur í vetur.
Valdimar mætti ásamt gítarleik-
aranum Erni Eldjárn.
Páll Óskar mætti og hélt uppi góðu
stuði.
Krassasig sá um tónlistina í fimmta
bingóinu sem var haldið.
Bogomil Font sá um ljúfa tóna í fjöl-
skyldubingóinu.
Dúóið Sycamore Tree mætti og
söng fyrir þátttakendur.
Rapparinn Cell7 mætti og tók lagið.
Söngkonan Klara Elias tók lagið 5
á Richter.
Jóhanna Guðrún mætti í jóla-
bingóið.
Tónlistarkonan GDRN heillaði
þjóðina.
Bríet tók lagið Rólegur kúreki fyrir
þátttakendur.
„Ég hlakka mikið til kvöldsins, en
svona kvíðablandin tilhlökkun, bæði
vegna þess að þetta er síðasti bingó-
þátturinn fyrir sumarfrí og svo vegna
þess að ég veit ekkert hvað ég er að
fara út í. Ég fékk bara símtal frá
framleiðendum þáttarins þar sem þau
báðu mig að verða ekki brjálaður því
þau ætluðu ekkert að segja mér hver
eða hverjir gestir kvöldsins verða. Ég
vona að sem flestir verði með okkur í
kvöld, ég held að þetta verði skemmti-
legt!“ segir Siggi Gunnars bingóstjóri.
Ásamt þeim Sigga og Evu verður
furðu-DJ-inn í setti, tóm gleði og fullt
af stórglæsilegum vinningum.
Allar upplýsingar um þátttöku og út-
sendingu má finna með því að fara inn á
heimasíðu bingósins á www.mbl.is/
bingo. Allar fyrirspurnir vegna bingós-
ins er hægt að senda á bingo@mbl.is.
Síðasta bingóið
fyrir sumarfrí
Siggi Gunnars Færir fjölskyldum
landsins bingó beint heim í stofu.