Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 44

Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021 ✝ Guðrún Magn- úsdóttir fædd- ist í Flögu í Flóa 9. ágúst 1919. Hún lést 26. mars sl. á elliheimilinu Grund við Hringbraut, næstelst níu syst- kina. Foreldrar hennar voru hjónin Vigdís Stefáns- dóttir, fædd 13. október 1891, dáin 14. mars 1977, og Magnús Árna- son, fæddur 18. október 1887, dáinn 23. desember 1973. Systkin Guðrúnar voru: Árni, Stefanía, Brynjólfur, Sigríður, Guðríður, Grímur, Anna og bjuggu þar í rúm 20 ár. Á bú- skaparárum sínum þar stund- uðu þau allmikla garðyrkju. Einnig var Guðrún leikin við saumavélina og prjónaði á prjónavél fyrir fólk og seldi. Bjarni vann lengst af fjarri heimilinu, en Guðrún gætti bús og barna. Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur í september 1964 að Meistaravöllum 15, þar sem þau höfðu fest kaup á íbúð. Guð- rún vann um tíma hjá Bæj- arútgerð Reykjavíkur, starfaði einnig sem dagmamma, en réðst síðan sem starfsstúlka að Elli- heimilinu Grund og starfaði þar ein 20 ár. Hún lauk lauk síðan síðustu ævidögum sínum á sömu deild og hún hafði starfað á. Útförin fer fram frá Grafar- vogskirkju í dag, 15. apríl, klukkan 15.00. Vegna aðstæðna verður aðeins allra nánasta fjöl- skylda við útförina. Unnur. Auk þess ólst upp með þeim fóstursonur, Stefán Jónsson. Öll eru nú látin. Guðrún giftist 9. október 1943 Bjarna Ágústssyni frá Hróarsholti, fæddum 24. desem- ber 1914, dánum 12. september 1997, og eignuðust þau fimm börn. Þau eru: Vigdís Magnea, Ágúst, Kristín, Árni og Hjördís Björg. Barnabörnin eru átta og langömmubörnin 10. Guðrún og Bjarni hófu bú- skap á Lundi á Eyrarbakka og „Hún mamma vaknaði ekki í morgun.“ Þetta voru orðin sem konan mín kallaði til mín þar sem ég var að koma úr sturtunni 26. mars sl. Það er undarlegt að eiga ekki eftir að hitta hana oftar í þessu lífi. Þó veit ég vel að hún var orðin 101 árs og hálfu ári betur. Oft höfum við setið saman bæði og rifjað upp eitthvað frá hennar bernskudögum og einnig síðar á lífsleiðinni. Samband okkar varð stöðugt sterkara eftir því sem árin hafa liðið. Bjarna hafði ég aftur á móti kynnst lítils háttar áður, þar sem leiðir okkar lágu saman í vinnuferðum úti á landi, án þess að ég vissi að þar væri kominn til- vonandi tengdafaðir minn. Sátum við þá oft saman á spjalli eftir vinnudag, hann á krananum hjá Vita- og hafnamálum, en ég í sjálf- virku símstöðvum Landssímans. Guðrún og Bjarni voru bæði fædd og uppalin hvort á sínum bænum í Hróarsholtshverfinu í Flóa, hann í Hróarsholti við rúmgóð húsa- kynni en hún í Flögu þar sem aft- ur á móti allt var minna, tvímennt í hverju rúmi og fjölskyldan stór. Guðrún lýsti því sem hreinu æv- intýri að hafa átt heima í hverfinu, en þar var margt fólk á þessum tíma, líf og fjör. Þetta voru einir fjórir bæir í hnapp og stutt í næstu bæi. Mikið af ungu fólki sem safnaðist saman þegar tími var til og skemmti sér við leik og dans. Guðrún ljómaði alltaf af gleði þegar hún lýsti unglingsár- unum, enda er fallegt í Flóanum og þar hefur áreiðanlega verið á margan hátt gott að vera meðan mannlíf stóð í blóma. Guðrún kunni ógrynni af ljóðum sem hún nam af Vigdísi móður sinni þegar þær voru saman að mjólka í fjós- inu, sem og heimalærdóminn sem mamma hennar las með henni, vegna sjónskekkju sem háði henni fyrstu árin áður en hún fékk gler- augu. Guðrún var frekar stjórn- söm kona og fylgdist vel með öllu sem gerðist í kringum hana hvort sem var við matarborðið eða utan dyra. Mér er minnisstætt atvik frá fyrstu ökuferðinni okkar sam- an, þegar við nálguðumst gatna- mót þar sem var biðskylda. Þá gellur allt í einu í Guðrúnu: „Sig- urður! – hér er skilyrðislaust stans.“ Þetta hefði svo sem ekki þurft að vera undarlegt nema vegna þess að Guðrún var aldrei með bílpróf. Það voru skemmtilegar stundirnar við matarborðið á Meistó og ávallt var þar nóg um að tala, gjarnan sögur úr sveitinni eða af Bakkanum. Guðrún og Bjarni giftu sig 1943 í Hróarsholti þar sem haldin var mikil brúð- kaupsveisla og mér er sagt að stofugólfið í húsinu hafi svignað þegar dansinn dunaði sem hæst undir harmonikuleik Braga Hlíð- berg, en Guðrún og hann voru systrabörn. Árið 1979 var Flaga komin í eigu nokkurra systkina Guðrúnar og var þá stundaður þar heyskap- ur nokkur sumur. Á ég mjög góð- ar minningar þaðan með fjöl- skyldu minni ásamt öllu því góða og glaðlynda fólki. Nokkru síðar var tekið út úr landinu pláss fyrir sumarbústaði, þar sem fólk hittist fyrst í júlí með miklum söng, grilli, glens og gamni. Guðrún kunni alltaf vel við sig í fjölmenni og var þá hrókur alls fagnaðar, það sakna hennar allir mikið, en hún lifði lengst allra sinna systkina. Blessuð sé minning hennar. Sigurður Alfonsson. Elsku Guðrún amma mín sofn- aði í síðasta sinn fimmtudags- kvöldið 25. mars, rúmlega 101 árs að aldri. Bjarki Þór, sonur minn, vill meina að húsið sem afi var að smíða handa þeim í lífinu að hand- an, og hann sýndi henni stundum í draumunum hennar, hafi verið tilbúið og hann hafi sótt hana í svefni, en amma var sannfærð um að Guð væri búinn að gleyma henni. Amma var stórkostlegur karakter, hún var dugleg, ákveðin og þrjósk. Hún var með kröfur á fólkið sitt og sagði alveg umbúða- laust það sem henni fannst: „Kannt þú að sjóða kartöflur, Guðrún?“ „bakaðir þú þessar vöfflur, alveg frá grunni!“ og „þú þarft að mosahreinsa stéttina fyr- ir framan húsið þitt!“ eru setning- ar sem ég man eftir að hafa heyrt. Við þróuðum með okkur góða vin- áttu þegar ég varð eldri, hún átti aldrei í vandræðum með að brydda upp á spjalli hvort sem það var við mig eða syni mína. Það var alveg ótrúlegt hvað hún var lunkin að spyrja og spjalla og setja sig inn í það sem var í gangi í lífi þeirra sem voru í kringum hana og minnið hennar! Maður minn! Fílar fölna við hliðina á ömmu minni. Það kom líka alveg fyrir að við vorum ósammála og „rifumst“ en það risti aldrei djúpt, við erum jú báðar þrjóskar konur. Vinkonum mínum fannst frekar furðulegt að ég rifist við 100 ára gamla ömmu mína en hún sagði það sem henni fannst svo svakalega ósykurhúðað að maður bara gat ekki annað en svarað. Sem betur fer er ég ekki langrækin og fann þörf til að fara til hennar fljótt aftur ef okkur sinnaðist eitthvað og var þá bara spjallað eins og ekkert hafði í skorist. Þegar ég hugsa til baka finnst mér besta tímabilið okkar hafa verið þegar hana vantaði að- stoð við að fá augndropa tvisvar á dag. Þá fór ég daglega til hennar á kvöldin í marga daga, stoppaði ekki endilega lengi í hvert skipti en upp úr því komst mjög gott skrið og taktur á heimsóknir mín- ar til hennar. Á þeim tíma fannst mér stundum eins og hún væri að gera upp lífið sitt. Við spjölluðum um það sem hafði gengið á í henn- ar lífi, það sem hún sá eftir eða hvað henni fannst að hún hefði getað gert betur og hvernig allt hafði verið hér áður fyrr. Sumu sem okkur fór á milli hef ég komið áfram, annað fær bara að hjúfra sig í hjartanu mínu. Eitt eftir- minnilegasta spjallið var þegar hún var að tala um sig og dauðann sem endaði þannig að ég spurði hana umbúðalaust: „Jæja, amma mín! Og hvenær hefðir þú þá vilj- að deyja?“ Amma mín hugsaði sig um í smástund og sagði svo: „Upp úr níræðu.“ Ég veit að elsku amma mín var södd lífdaga. Hennar samferða- fólk var allt farið. Hún var tilbúin. Henni fannst alveg röðin vera komin að sér. Ég er alveg ótrú- lega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast henni svona vel eftir að ég varð fullorðin. Ég kveð því ekki bara ömmu mína heldur líka vinkonu mína. Ömmu vil ég þakka samfylgd- ina, fyrir að vera gagnrýnin, fyrir að kenna mér að aldur er afstæð- ur og fyrir að vera fyrirmynd fyrir elju, dugnað og sjálfstæði. Ég á eftir að sakna hennar. Guðrún. Í dag kveðjum við hana Guð- rúnu frænku. Ég kynntist henni fyrst þegar ég dvaldi sem smá- stelpa hjá Stefaníu systur hennar á Eyrarbakka. Þá var stundum farið austurúr til að heimsækja Guðrúnu og hennar stóru fjöl- skyldu á Lundi. Mér fannst það nokkuð löng gönguferð vestan úr Kirkjuhúsi og alltaf svolítið ævin- týralegt að koma þangað því Litla-Hraun var alveg í bakgarð- inum. Guðrún og mamma voru bræðradætur og eftir að Guðrún og Bjarni fluttu til Reykjavíkur var gott samband á milli fjöl- skyldna okkar. Eftir að mamma lést, fyrir aldur fram, heimsótti Guðrún afa og ömmu reglulega og sinnti þeim vel. Þegar ég síðar flutti í Vesturbæinn ásamt fjöl- skyldu minni bjuggum við nálægt Guðrúnu og Bjarna á Meistara- völlunum og þá mynduðust á milli okkar ómetanleg tengsl og mikil vinátta. Það var alltaf gaman að líta inn til þeirra og áður en vitað var af var búið að drífa fram alls kyns kræsingar sem Guðrún hafði bakað sjálf, kleinur, hafrakex, flatkökur og stundum heilu tert- urnar. Dætur mínar lærðu fljótt að stinga sér inn til Guðrúnar og Bjarna og vissu að þar var alltaf hægt að fá einhverja hressingu. Guðrún var einstaklega minnug og fylgdist vel með öllum okkar sameiginlegu skyldmennum af Hurðarbaksættinni og gat sagt af þeim skemmtilegar sögur. Þegar ég eignaðist barnabörn voru þau alltaf til í að koma með mér í heimsókn til Guðrúnar og fræðast af henni um gamla tíma. Hún sagði okkur margar skemmtilegar sögur af uppvexti sínum í stórum barnahópnum í Flögu. Minnisstæð er sagan þeg- ar hún átta ára gömul var sett upp á hest og send að Kolsholti til að sækja rúsínur, en fjölskyldurnar í Flögu og Kolsholti höfðu fest kaup á einum kassa af rúsínum saman. Á heimleiðinni varð á vegi hennar bóndi úr sveitinni sem var að koma af hestamannamóti nokkuð hífaður. Hann hafði dottið af baki og þurfti aðstoð við að gyrða hestinn. Guðrún var smeyk við að fara af baki því hún vissi að hún kæmist ekki á bak aftur sjálf. En hún gerði eins og henni var sagt og hjálpaði hann henni svo á bak aftur og launaði ríkulega. Peningarnir sem hún fékk að launum dugðu fyrir fínum skóm á bæði hana og Stefaníu systur hennar. Guðrún náði háum aldri og hélt reisn sinni til hinstu stundar. Það var mér ómetanlegt að eiga hana að og ég er þakklát fyrir allar stundirnar sem við fjölskyldan áttum með henni. Ég kveð hana með söknuði en veit líka að hún er hvíldinni fegin. Fjölskyldunni allri sendi ég hlýjar kveðjur. Guðný Helga Gunnars- dóttir og fjölskylda. Guðrún Magnúsdóttir Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Elskulegi maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi TRAUSTI Ó. LÁRUSSON, f.v. framkvæmdarstjóri lést á Líknardeild Landspítalans 12. apríl. Í ljósi Covid verður tilhögun jarðarfarar auglýst síðar. Hanna M. Kjeld Auður Traustadóttir Guðmundur Á. Tryggvason Anna Kristín Traustadóttir Sigrún Traustadóttir Elín Ósk Guðmundsdóttir Ómar Bendtsen Trausti Guðmundsson Ása Bergsdóttir Sandholt Svava Dís Guðmundsdóttir Friðjón Ástmundsson Bjarni Guðmundsson Vaka Dagsdóttir og langafabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BERGLJÓT GUÐJÓNSDÓTTIR, Kórsölum 1, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu Sléttuvegi 31. mars. Bestu þakkir til starfsfólks heimilisins. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sesselja Jóhannesdóttir Birgir Arnar Birgisson Eyrún Jóhannesdóttir Einar Aðalsteinn Jónsson börn og barnabörn Ástkær og elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG HERVÖR GUÐJÓNSDÓTTIR, Hebba frá Hesti, lést í faðmi fjölskyldunnar á Hrafnistu, Hraunvangi, föstudaginn langa 2. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Bylgjuhrauni 2. hæð á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir einstaka umönnun, hjartahlýju, skilning og nærgætni við fjölskylduna. Guðmundur Knútur Egilsson Bryndís Guðmundsdóttir Árni Sigfússon Magnús Guðmundsson Kajsa Arena Ragnheiður E. Guðmundsd. Gunnar Salvarsson Guðjón Gísli Guðmundsson María G. Guðmundsdóttir Steingrímur Sigurgeirsson barnabörn og langömmubörn Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ANNA BALDVINSDÓTTIR, Lambastöðum, lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð, Borgarnesi, 8. apríl. Útför hennar mun fara fram frá Álftaneskirkju laugardaginn 17. apríl klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana verða eingöngu nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir útförina en athöfninni verður streymt á kvikborg.is. Skúli Jónsson Jóhanna Skúladóttir Baldur Jónsson Baldvin Skúlason Valgerður Árnadóttir Guðmundur Skúlason Óskar Skúlason Þóra Olsen Ásta Skúladóttir Sigurður Óli Ólason Hjalti Skúlason barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR LÁRA ÁRNADÓTTIR, lést 6. apríl í faðmi fjölskyldunnar. Útför fer fram frá Akureyrarkirkju miðviku- daginn 21. apríl klukkan 13. Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat. Árni Þorsteinsson Andrea Ólafsdóttir Guðlaug Þorsteinsdóttir Aðalsteinn Pétursson barnabörn, barnabarnabörn og aðrir ástvinir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.