Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 54

Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 54
Ferðalög á MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021 Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Kíktu til okkar í góðan mat og notalegt andrúmsloft Borðapantanir á www.matarkjallarinn.is • Nauta Carpaccio • Tígrisrækjur Nobashi • Langtímaeldað Andalæri • Jarðarber & Basil Tilboðsverð 5.990 kr. Fullt verð: 9.490 kr. DRAUMAVEISLA TILBOÐ Ljúffenga draumaveislan okkar er á tilboði sunnudaga til fimmtudaga út apríl Heitir fossandi lækir hverfa í svart- an sand á víðáttum vatnaskila Norður- og Suðurlands. Litríkt hverasvæði í öllum regnbogans lit- um leynist hátt í hlíð en sunnar gnæfir líparítfjallið Skrauti yfir Tví- litaskarði. Tignarlegir jöklar standa vörð hvor sínum megin. Heillandi staður í hjarta hálendisins sem er þó fáum kunnur. Þetta er Vonar- skarð. Vonarskarð er án efa meðal fá- mennustu staða á Íslandi. Það ligg- ur milli Tungnafellsjökuls og Vatna- jökuls í um 900-940 m hæð yfir sjó. Skarðið er 12-13 km breitt milli jökla og 15-20 km á lengd. Mynni Vonarskarðs að norðan er ýmist tal- ið vera milli Fljótsborgar og Gæsa- hnjúks eða Fljótsborgar og Tinda- fells en að sunnan milli Svarthöfða og Fremsta-Bálkafells. Skarðið er gróðurlaust að kalla en náttúrufar þess er þó harla fjöl- breytt. Sérstaklega er það jarðhiti sem setur svip á skarðið en sunn- arlega í vesturhlíðum þess er all- mikið líparítsvæði með litauðugum skriðum og hefur einn hnjúkur þar verið nefndur Skrauti og hjá honum Tvílitaskarð. Í vesturhlíð skarðsins undir Eggju er stórt hverasvæði með afar litríkum útfellingum. Í hlíðunum undir hverasvæðinu eru mosateygingar með strjálum há- plöntugróðri sem eflaust á jarðhit- anum tilvist sína að þakka. Þar heit- ir Snapadalur og dregur nafn sitt af þeim gróðursnöpum sem þar er að finna. Í Snapadal eru vatnsmiklir heitir lækir sem gefa ferðamönnum færi á baði. Botn Vonarskarðs er sléttur hið syðra og á söndunum fram af Snapadal rís stakur píramídalag- aður hnjúkur sem heitir Deilir. Þar úti á sandsléttunum eru vatnaskil milli Norður- og Suðurlands. Sytrur og lækir sem falla úr austri og vestri safnast saman á sandinum sem getur virst allur í vatni. Vötnin sem falla suður af eru efstu upptök Köldukvíslar og þau sem falla til norðurs eru upptakakvíslar Skjálf- andafljóts. Vatnaskilin eru á móts við Deili og gefa honum nafn. Um það bil í miðju skarði gengur fram lágur háls sem endar í Valafelli og austan standa hvassir móbergs- kollar sem heita Hníflar. Skarðið á hálsinum heitir Gjósta eða Gjóstu- skarð og þangað er akfær vegur af vegi norðan Tungnafellsjökuls. Frá Gjóstu er um klst. gangur í Snapa- dal að heitu lækjunum. Frá skála Ferðafélags Íslands í Nýjadal er stikuð leið inn brúnir Nýjadals, þar heitir Mjóháls, og í skarðið milli Eggju og Laugakúlu og er þá skammt niður að hvera- svæðinu. Hægt er að fara þessa leið á einum degi fyrir lausgangandi ferðalanga. Fyrstu sagnir um ferðir á þessum slóðum er að finna í Landnámu. Þar segir að Bárður sonur Heyangurs-Bjarnar hafi numið land í Bárðardal og búið á Lundarbrekku. „Þá markaði hann at veðrum, at landviðri váru betri en hafviðri ok ætlaði af því betri lönd fyrir sunnan heiði. Hann sendi sonu sína suður um gói. Þá fundu þeir góibeitla ok annan gróður. En annat vor eftir, þá gerði Bárðr kjálka hverju kykvendi, því er gengt var, og lét hvat draga sitt fóðr og fjárhlut. Hann fór Von- arskarð, þar er síðan heitir Bárð- argata. Hann nam síðan Fljóts- hverfi ok bjó að Gnúpum. Þá var hann kallaðr Gnúpa-Bárður.“ Þessa leið frá Lundarbrekku og suður að Gnúpum í Fljótshverfi kallar Haraldur Matthíasson Bárð- argötu og lýsir henni í árbók FÍ 1963. Haraldur telur nafnið Von- arskarð nafngift Bárðar sem bendir til að hann hafi komist í hann krappan norðan jökla. Þegar kemur suður í skarðið fer að sjást til kenni- leita á Suðurlandi. Ekki er ósenni- legt að sú sýn hafi fyllt hann eld- móði og hleypt í hann kjarki um að nú mundi takmarkinu náð. Engar heimildir eru til um ferðir um Von- arskarð fyrr en á 19. öld. Þegar Björn Gunnlaugsson fór ásamt Sig- urði fylgdarmanni sínum norður Vonarskarð og austur á land. Björn, spekingurinn með barnshjartað, kenndi stærðfræði, stjörnufræði og ýmsar greinar náttúruvísinda við Bessastaðaskóla. Elskaður og virtur af nemendum sínum. Hann varð frumkvöðull í nútímalegri kortagerð á Íslandi. Seint á 19. öld kom svo Þorvaldur Thoroddsen í Vonarskarð og gerði jarðfræðiúttekt á því og má það heita fyrsta nútímarann- sóknin á svæðinu. Á okkar tímum er fáfarið um Vonarskarð þótt svartir sandar, lit- rík fjöll, heitir lækir og hverir og tignarlegir jöklar geri skarðið að einu best varðveitta leyndarmáli á hálendi Íslands. Á vetrum fara jeppamenn stundum í gegnum Vonarskarð í vetrarríki en á sumrin koma þar stöku gönguhópar. Gönguferð í Vonarskarð er þó ekki erfitt verkefni og líklega við hæfi flestra sem stunda útivist. Heimildir: Leifur Þorsteinsson, árbækur FÍ. palli@fi.is Vonarskarð, perlan að baki jöklanna Heitir fossandi lækir hverfa í svartan sand á víðáttum vatnaskila Norður- og Suðurlands. Litríkt hverasvæði í öll- um regnbogans litum leynist hátt í hlíð en sunnar gnæfir líparít- fjallið Skrauti yfir Tvílita- skarði. Tignarlegir jöklar standa vörð hvor sínum megin. Heillandi staður í hjarta hálendisins sem er þó fáum kunnur. Þetta er Vonarskarð. Ljósmynd/Leifur Þorsteinsson Vonarskarð er einn fáfarnasti staður á hálendi Íslands. Hverasvæði í Vonarskarði. Í Vonarskarði ríkir sannkölluð óbyggðastemning og öræfakyrrð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.