Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími
8:00-16:30
Er ekki kjörið að grilla umhelgina?
Frábært úrval af kjöti á grillið – Kíktu við!
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
World Art Day, alþjóðlegur hátíðar-
dagur myndlistar, er í dag og tekur
Ísland nú í fyrsta sinn þátt í honum
eða nánar tiltekið Samband ís-
lenskra myndlistarmanna, SÍM.
Vekur sambandið, í tilefni dagsins,
sérstaka athygli á listamannarekn-
um rýmum hér á landi og því ötula
starfi sem unnið er í þeim í þágu
myndlistar. Frá 1. apríl hafa sérstök
kynningarmyndbönd með enskum
texta fyrir nokk-
ur slík rými verið
birt á vegum
SÍM á In-
stagram, Face-
book og YouTube
og verða mörg
opin í dag í tilefni
dagsins.
Alþjóða-
samband mynd-
listarmanna
(IAA/AIAP),
samstarfsaðili UNESCO, stendur
fyrir þessum degi en dagsetningin
15. apríl engin tilviljun því þann dag
árið 1452 fæddist sjálfur Leonardo
da Vinci, einn af mestu snillingum
myndlistarsögunnar, og segir í til-
kynningu frá verkefnastjóra World
Art Day að hann sé táknmynd
heimsfriðar, tjáningarfrelsis, sköp-
unar og þeirra áhrifa sem myndlist
hefur á önnur svið lífsins.
Á sjötta tug
Hildur Elísa Jónsdóttir er verk-
efnisstjóri World Art Day hér á
landi og segir hún listamannarekin
rými hér á landi á sjötta tug. Í þeim
sé unnið fjölbreytt starf í þágu
myndlistar og menningar. Spurð
hvort þessi áhersla á listamanna-
rekin rými komi að utan, frá skipu-
leggjendum World Art Day, segir
hún svo ekki vera. Hún sé að frum-
kvæði SÍM. „Það er kannski sér-
staklega augljóst hér á Íslandi hvað
listamannarekin rými vinna mikil-
vægt starf. Myndlistarsenan á Ís-
landi væri töluvert fátækari ef ekki
væri fyrir öll þessi rými,“ segir
Hildur og nefnir sem dæmi Kling &
Bang, Gallerí Úthverfu á Ísafirði og
Deigluna á Akureyri. „Þau lyfta upp
grasrótinni og endurspegla mynd-
listarsenu hvers tíma þar sem
stjórnendur rýmanna eru sjálfir
myndlistarmenn ásamt því að koma
með ferska myndlistarmenn,
strauma og stefnur að utan. Þá hafa
félagasamtök myndlistarmanna og
listamanna á borð við Nýlistasafnið
og Gilfélagið átt stóran hlut í að
móta og leggja grunninn að list-
rænni stefnu opinberra safna á Ís-
landi í dag en listamannareknu rým-
in veita opinberu stofnununum líka
örlítið aðhald,“ bendir Hildur á.
Listamannarekin rými lifi mislengi
en séu þó, eins og staðan er, á sjötta
tug – ef ekki fleiri.
Meðfram kynningunni á starfi
listamannarekinna rýma deilir SÍM
myndum frá listamönnum innan fé-
lagsins á instagram- og facebook-
síðum sínum en það mun halda
áfram eftir daginn í dag. Með þessu
vill SÍM kynna verk félagsmanna
sinna, fólkið sem myndar samtökin,
og þann mikla fjölbreytileika sem
einkennir þann hóp.
Konfettísprengja
Hildur er beðin að nefna dæmi
um rými sem verða opin í dag og
nefnir hún meðal annars sýninguna
Fallandi trjám liggur margt á
hjarta sem verður opin milli 12 og
18 í fyrrnefndu Kling & Bang, þar
er m.a. boðið upp á bjór á krana
sem hluta af sýningunni. Þá verður
Nýlistasafnið með leiðsögn um sýn-
ingu Katie Paterson, leiðsögnin
hefst með verkinu „100 Billion
Suns“ eftir hana, konfettísprengju
sem skýtur 3.216 litríkum pappírs-
snifsum upp í loft, smækkaðri út-
gáfu af björtustu sprengjum al-
heimsins.
Gallery Port verður opið 12-18 og
í Gallerí Úthverfu á Ísafirði mun
myndlistarmaðurinn Nína Ivanova
bjóða upp á leiðsögn klukkan 16 um
sýningu sína sem er sú þriðja í röð
sjö örsýninga undir yfirskriftinni
CARBON-KOLEFNI vísindi
listanna – listin í vísindunum í
glugga Gallerís Úthverfu. Harpa
Björnsdóttir mun opna sýninguna
Bláma í Galleríi Hjarta í Hjarta
Reykjavíkur, Laugavegi 12b, og
Jonna Sigurðardóttir opna sýningu í
Mjólkurbúðinni á Akureyri sem
verður opin milli kl. 17 og 19.
Hildur segir markmið World Art
Day fyrst og fremst að fagna og
gleðjast yfir myndlistinni, hinum
skapandi greinum sem og starfi
myndlistarmanna.
Markmiðið að fagna og
gleðjast yfir myndlistinni
Í glugga Nina Ivanova er höfundur þriðju örsýningarinnar af sjö í Gallerí Úthverfu.
- Athygli vakin á mikilvægu starfi listamannarekinna rýma á World Art Day
Hildur Elísa
Jónsdóttir
Bandaríski leikarinn Hank Azira
sem er hvítur á hörund talaði í
rúma þrjá áratugi fyrir indverska
karakterinn Apu í teiknimyndunum
um Simpson. Azira hefur nú beðið
„alla Indverja“ afsökunar á því en
hann hætti að ljá Apu rödd í fyrra.
Azira kom fram í hlaðvarpsþætti
þar sem hann bar fram afsökun
sína en hann sagði jafnframt að
leikarar hefðu verið ráðnir í hlut-
verkin í góðri trú en nú mætti sjá að
sú skopmynd sem dregin sé upp af
ólíkum kynþáttum, þar sem hann til
að mynda hafi hermt eftir fram-
burði Indverja, hafi stutt við „kerf-
islægan rasisma“ í Bandaríkjunum.
Vinsæll Apu í einum Simpson-þættinum.
Baðst afsökunar á
túlkun sinni á Apu
Einkasýning
Halldórs Krist-
jánssonar, Ræt-
ur, verður opnuð
í dag, miðviku-
dag, kl. 18 í
Flæði sem er á
Vesturgötu 17 í
Reykjavík. Á
sýningunni má
sjá röð fígúra-
tívra olíu-
málverka þar sem mannsformið og
rætur renna saman í eitt, að því er
fram kemur í tilkynningu. „Það eru
svo augljós tengsl milli hins nátt-
úrulega heims og okkar mannanna.
Við eigum það til að hugsa um nátt-
úruna sem eitthvað óskylt okkar
heimi. En öll skil þar á milli eru
merkingarlaus í ljósi þess að mað-
urinn og allt sem honum fylgir er
hluti af náttúrunni. Hér birtist
mannsformið samofið náttúru upp
úr undirmeðvitund listmálarans,“
segir um sýninguna sem lýkur 20.
apríl.
Halldór sýnir
Rætur í Flæði
Halldór
Kristjánsson
Blaðamannafélag Svíþjóðar (SJF)
hefur endurútgefið bókina Överleva
deadline – Handbok för hotade
journalister eftir Stieg Larsson. Í
bókinni, sem kom fyrst út árið 2000,
deilir Larsson eigin reynslu og góð-
um ráðum eftir að hafa sætt aðkasti
fyrir rannsókn sína og skrif um upp-
gang hægri öfgaafla í Svíþjóð á
tíunda áratug síðustu aldar.
„Það er mikið vandamál hversu
hátt hlutfall félagsmanna okkar sæt-
ir hótunum og ofbeldi fyrir störf
sín,“ hefur SVT eftir Ulriku Hyll-
er5t, formanni félagsins, og tekur
fram að sökum þessa eigi bókin því
miður enn brýnt erindi. „Bókin er
ekki aðeins frábær handbók, heldur
lýsir hún vel andrúmsloftinu og sam-
heldninni í fjölmiðlabransanum fyrir
20 árum. Ég er sannfærð um að fé-
lagar okkar finni kraft og kjark þeg-
ar þeir lesa að hatur og hótanir í
garð fjölmiðlafólks er ekki nýtt
vandamál og við höfum staðist þess-
ar raunir áður.“
Í frétt SVT kemur fram að töl-
fræðiupplýsingar hafi verið upp-
færðar í bókinni til að endurspegla
þær breytingar sem orðið hafa á síð-
ustu 20 árum auk þess sem skrifaður
hefur verið nýr formáli. Jafnframt
hefur verið rýnt í ráðleggingar Lars-
son til að sjá hvort þær standist tím-
ans tönn. Hyllert bendir sem dæmi á
að tækninni hafi fleygt hratt fram og
því hafi þurft að uppfæra ráðin með
hliðsjón af því. „Þess ber hins vegar
að geta að í upprunalegu útgáfunni
ráðlagði Larsson blaðamönnum að
vera sparsamir í tölvupóstsend-
ingum,“ segir Hyllert. Aðeins
félögum í Blaðamannafélagi Svíþjóð-
ar stendur til boða að kaupa prent-
aða útgáfu bókarinnar, en allir geta
nálgast rafræna útgáfu bókarinnar á
vef félagsins: www.sjf.se.
Mynd af stieglarssonfoundation.se
Hatur Rithöfundurinn Stieg Lars-
son með eintak af bókinni Det eviga
hatet: om nynazism, antisemitism,
och Radio Islam eftir Per Ahlmark.
Handbók fyrir
hataða blaðamenn
- Bók Larsson frá 2000 endurútgefin