Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 28
Þeistareykjavegur
Húsavík
Mývatn
Þeistareykir
Laxárdalur
Hólasandur
Keldu-
hverfi
Reykjaheiði
Gæsafjöll
Lamba-
fjöll
Fyrirhugað slitlag frá
Þeistareykjum að
Kísilvegi á Hólasandi
Ljósmynd/Landsvirkjun
Þeistareykjastöð Virkjunin er 90 megavött og var tekin í notkun í tveimur áföngum 2017 og 2018. Umhverfið er stórbrotið og eflaust verður mikil umferð ferðamanna um svæðið í framtíðinni.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á síðustu tveimur sumrum, 2019
og 2020, hefur Landsvirkjun byggt
upp nýjan 19 kílómetra veg,
Þeistareykjaveg syðri, frá Þeista-
reykjum að Kísilvegi á Hólasandi.
Með þessari vegtengingu kemst á
heilsársleið á milli Þeistareykja og
Mývatnssveitar og mun vegurinn
auðvelda samrekstur aflstöðva
Landsvirkjunar á Norðausturlandi,
það er Þeistareykjastöðvar, Kröflu-
stöðvar og Gufuaflsstöðvarinnar í
Bjarnarflagi.
Um leið opnast spennandi hring-
leið fyrir ferðamenn inn á stór-
brotið svæði með eldgígum, hraun-
um, jarðsprungum og
hverasvæðum. Er ekki að efa að
þetta verður fjölsótt leið, rétt eins
og vegurinn frá Húsavík upp að
Þeistareykjum hefur verið frá því
hann var tekinn í notkun.
Það var á árunum 2011 til 2015
að unnið var að gerð virkjana-
vegar frá Húsavík að Þeista-
reykjum, Þeistareykjavegar
nyrðri, alls um 27 kílómetra leið.
Sést sem grá lína á meðfylgjandi
korti.
Samið við Árna Helgason
Sumarið 2014 var gengið frá
vegköntum og efnisnámum sem
nýttar voru til verksins. Endan-
legum frágangi vegar, með lagn-
ingu bundins slitlags frá Húsavík
að stöðvarhúsi, lauk sumarið 2015.
Þegar lagningu Þeistareykjavegar
syðri lýkur endanlega verður kom-
inn 46 kílómetra vegur frá Húsavík
langleiðina að Mývatni um ægifag-
urt landsvæði, sem öllum verður
frjálst að aka um.
Í síðasta mánuði óskaði Lands-
virkjun eftir tilboðum í lagningu
bundins slitlags á Þeistareykjaveg
syðri ásamt tilheyrandi efnis-
vinnslu á ofangreindan veg og voru
tilboð í verkið opnuð þann 22. mars
sl. Tvö tilboð bárust í verkið: Árni
Helgason ehf. bauð krónur
354.849.170 með vsk. og Borg-
arverk ehf. krónur 439.080.000 með
vsk. Kostnaðaráætlun var krónur
357.330.00 með vsk.
Landsvirkjun hefur lokið við mat
og samanburð á tilboðum í verkið
og er niðurstaðan sú að ákveðið
hefur verið að ganga til samninga
við Árna Helgason ehf. á Ólafsfirði
um verkið, samkvæmt upplýs-
ingum Ragnhildar Sverrisdóttur,
upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar.
Segir Ragnhildur að um sé að
ræða þrautreyndan verktaka á
sviði vegagerðar, en hann kom m.a.
að lagningu vegarins frá Húsavík á
sínum tíma.
Ráðgert er að framkvæmdir við
lagningu slitlags hefjist nú í júní-
mánuði og gerir verkáætlun ráð
fyrir því að verkinu ljúki um sum-
arið 2022 og verði þá almennri um-
ferð hleypt á veginn.
Á Þeistareykjum er jarðhita-
virkjunin Þeistareykjavirkjun, 90
megavatta. Þeistareykjastöð var
fyrsta jarðvarmavirkjunin sem
Landsvirkjun reisti frá grunni.
Stöðin var gangsett 17. nóvember
árið 2017, þegar fyrri 45 megavatta
vélasamstæðan var ræst, en 18.
apríl árið eftir var sú seinni sett í
gang. Við byggingu stöðvarinnar
var meginmarkmiðið að reisa hag-
kvæma og áreiðanlega stöð sem
tekur mið af umhverfi sínu og nátt-
úru, segir á heimasíðu Landsvirkj-
unar.
Miklir möguleikar á svæðinu
Jarðhitasvæðið við Þeistareyki
býður upp á mikla möguleika til
jarðvarmavinnslu, en áætluð orku-
vinnslugeta svæðisins er um 200
MW. Heimafólk á svæðinu átti
frumkvæði að nýtingu jarðhita-
auðlindar Þeistareykjasvæðisins,
en saga félagsins Þeistareykja nær
allt til ársins 1999. Landsvirkjun
eignaðist rúm 30% í fyrirtækinu
árið 2005 og allt félagið fimm árum
seinna.
Þeistareykir eru eyðibýli sunnar-
lega á Reykjaheiði. Þar er jarðhiti
mikill og var brennisteinn unninn
þar áður fyrr. Þeistareykir eru í
350 metra hæð yfir sjávarmáli
norðan undir Bæjarfjalli. Fyrstu
heimildir um byggð á Þeistareykj-
um eru í eignaskrám Múlakirkju í
Aðaldal og benda til þess að búið
hafi verið þar á 14. og 15. öld.
Talið er að föst búseta hafi byrj-
að þar árið 1318. Þar virðist hafa
verið nokkuð samfelld byggð á 16.
og 17. öld. Á 18. öld var búið þar
með hléum en jörðin fór alfarið í
eyði árið 1873.
Nýr vegur um stórbrotið svæði
- Í sumar verður lagt bundið slitlag á 19 kílómetra langan veg frá Þeistareykjum að Kísilvegi
- Landsvirkjun kostar verkið en vegurinn öllum opinn - Þeistareykjavegur verður alls 46 km
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
Fagfólk STOÐAR veitir nánari
upplýsingar og ráðgjöf.
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL
Vönduð og falleg sjúkrarúm fyrir heimili og stofnanir.
Örugg, fjölhæf og notendavæn fyrir allar þínar þarfir.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?