Morgunblaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021 HAL Jasper Morrison, 2012 Opið virka daga 8:00–18:00: Skeifunni 10, Reykjavík // Hafnarstræti 91–93, Akureyri // Hafnarstræti 2, Ísafirði // www.penninn.is CHAISE TOUT BOIS Jean Prouvé, 1941 CHAIR 66 Alvar Aalto, 1935 EAMES PLASTIC Charles & Ray Eames, 1950 Gæðasmíði, hönnun & MOCA Jasper Morrison, 2020 fer einstaklega vel saman Frá árinu 1950 hefur Vitra unnið með heimsþekktum hönnuðum í að hanna og framleiða húsgögn sem bæði endast lengi og gefa heimilinu sjarma og hlýleika. umhverfisvænleiki Stjórn Veitustofnunar Seltjarnar- ness kom saman til fundar á þriðju- daginn til að ræða viðbrögð við óhappi sem varð nýlega. Vart varð við bilun í dælunni SN-4 á Bygggarðstanga og í fram- haldinu var slökkt á henni. Dælan var dregin upp en við þá fram- kvæmd slitnaði dælurörið og dælu- búnaðurinn féll niður í holuna. Sérfræðingar voru kallaðir til ráðagerða og farið var yfir þær sviðsmyndir sem eru í stöðinni. Einnig var haldinn fundur með Orkuveitu Reykjavíkur og starfs- mönnum Veitna. Stjórn Veitustofnunar samþykkti tillögu sem lögð var fram um að reyna að fiska dælubrotið upp úr holunni hið fyrsta. Boðað verður til nýs fundar þegar frekari upplýs- ingar liggja fyrir, segir í fundar- gerð stjórnarinnar. Reyna að fiska dæl- una upp - Dælurör slitnaði og dælan féll niður Morgunblaðið/Golli Erlend hóp- bifreiðafyrirtæki sem hafa starfað hér á landi á bíl- um að utan og með erlenda bíl- stjóra geta ekki verið með bílana lengur en tíu daga í hverjum mánuði hér á landi, verði frum- varp Sigurðar Inga Jóhanssonar samgönguráðherra lögfest á Alþingi. Í færslu Sigurðar Inga um málið á Facebook í gær segir hann íslenska ferðaþjónustu hafa upplifað ógn af erlendri starfsemi hópbifreiða hér á landi. Dæmi séu um að erlend hóp- bifreiðafyrirtæki sem starfa hér, á erlendum bílum með erlenda bíl- stjóra, hafi ef til vill ekki næga þekk- ingu á aðstæðum sem varði öryggi og fleira. Leiða megi líkum að því að launakjör og önnur réttindi starfs- manna séu með öðrum hætti en hér á landi. Því muni umfangsmikil starfsemi aðila á erlendum núm- erum skaða samkeppnisstöðu inn- lendra fyrirtækja að sögn hans. Starfsemi tak- mörkuð við 10 daga í mánuði Sigurður Ingi Jóhannsson Fyrstu tonnunum var dælt í tanka Vilhelms Þorsteinssonar EA, nýs skips Samherja, á kolmunnamiðunum suður af Færeyjum í fyrrinótt. Á ann- an tug íslenskra skipa var í gær við veiðar á gráa svæðinu og var góð veiði, en beðið hefur verið eftir því að kolmunninn gengi úr lögsögu Bret- lands norður á bóginn og inn á al- þjóðlega hafsvæðið. „Já já, skipið og búnaðurinn virka vel og þetta er allt að koma hjá okk- ur,“ sagði Guðmundur Jónsson, skip- stjóri á Vilhelm, um miðjan dag í gær. Kastað var um miðnætti í fyrri- nótt og eftir að hafa dregið í um sjö tíma var 240 tonnum dælt í tankana. Kastað var á ný undir hádegi í gær og búið var að draga í þrjá tíma þegar rætt var við Guðmund. „Það er einhver fiskur hérna, en ég veit ekki hvað þetta gerir,“ sagði skip- stjórinn. „Eigum við ekki að segja að þetta hafi verið ágæt byrjun, en þeir hinir voru margir að fiska enn betur. Við kvörtum þó ekki, við erum rétt að koma okkur af stað og mannskapurinn að komast í þjálfun á nýja skipinu.“ Guðmundur sagði að gott veður væri á miðunum, en mikil umferð skipa frá Íslandi, Færeyjum og Rússlandi á línunni syðst á gráa svæðinu. Þokkalegur kraftur Á heimasíðu Síldarvinnslunnar var í gær fjallað um vertíðina og segir þar að skip fyrirtækisins hafi fengið ágætan afla í fyrradag. Bjarni Ólafs- son AK fékk þá 550 tonn eftir að hafa togað í 15 tíma, Beitir NK fékk 450 tonn eftir 16 tíma og Börkur NK 400 tonn eftir 12 tíma. „Það er ljóst að kolmunnaveiðin er hafin og þokkalegur kraftur í henni,“ segir á heimasíðunni. „Ég held að menn geti bara verið bjartsýnir á góða veiði,“ var m.a. haft eftir Tóm- asi Kárasyni, skipstjóra á Beiti. aij@mbl.is Vertíð Vilhelm Þorsteinsson EA er á kolmunnaveiðum suður af Færeyjum. Fyrstu tonnin í tanka Vilhelms - Lifnar yfir á kolmunnamiðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.