Morgunblaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Háskóli Íslands, menntamálaráðu-
neytið, Samband íslenskra sveitar-
félaga og Samtök atvinnulífsins
hafa tekið höndum saman í því
skyni að stórefla tækifæri til starfs-
þjálfunar hér á landi. Lilja Alfreðs-
dóttir mennta- og menningar-
málaráðherra, Jón Atli Bene-
diktsson rektor Háskóla Íslands og
Eyjólfur Árni Rafnsson formaður
Samtaka atvinnulífsins handsöluðu
samkomuleg um þetta efni nýlega.
Einnig kemur Samband íslenskra
sveitarfélaga að málum.
Virkt samtal
„Öflug og sterk tengsl milli há-
skóla og atvinnulífs eru nauðsyn-
leg,“ segir Jón Atli Benediktsson.
„Háskóli Íslands er með þessu átaki
að leitast við að styrkja gæði náms
og kennslu þannig að skólinn svari
margvíslegum og síbreytilegum
þörfum samfélags og atvinnulífs.
Mikilvægt er að til staðar sé virkt
samtal milli Háskóla Íslands og at-
vinnulífs um þarfir þess síðast-
nefnda, svo námið okkar sé ávallt í
stakk búið til að laga sig að sí-
breytilegu umhverfi.“
Nemendum HÍ munu með þessu
bjóðast fleiri og fjölbreyttari tæki-
færi en áður til að kynnast störfum
sem tengjast verkefnum þeirra og
viðfangsefnum í Háskóla Íslands.
Þannig verða nemendur enn betur
undirbúnir til að takast á við verk-
efni framtíðar. Um er að ræða sex
ECTS-eininga starfsþjálfun á
haust- eða vorönn sem felur í sér
þjálfun nemenda í að vinna störf
undir handleiðslu sérfræðinga.
Verkefnin skulu tengjast námi
nemenda og reyna á þekkingu
þeirra og færni.
Tengsl við nýjustu vendingar
„Nemendur fá nú fleiri tækifæri
til að vera virkir þátttakendur í eig-
in þekkingarsköpun, taka ábyrgð
og sýna náminu skuldbindingu.
Fyrir fyrirtæki er þetta tækifæri til
að kynnast og komast í snertingu
við framtíðarmannauð og tengja
verkefni og lausnir starfsemi sinn-
ar við nýjustu vendingar í fræð-
unum,“ segir Jón Atli enn fremur.
Fyrirtæki, stofnanir og sveitar-
félög sem eru áhugasöm um að
taka þátt í verkefninu eru hvött til
að sækja um á vefsíðu Tengslatorgs
Háskóla Íslands eða í tölvupósti á
tengslatorg@hi.is.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Samstarf Frá vinstri: Jón Atli Benediktsson rektor HÍ, Eyjólfur Árni Rafns-
son formaður SA og Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra.
Öflug tengsl við at-
vinnulífið nauðsyn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Háskóli Mikilvæg aflstöð þekkingar
og þróunar í íslensku þjóðlífi.
Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533
HJÓLAFERÐIR FÍ • skráðu þig inn og drífðu þig út!
Sjáumst á fjöllum
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Hugmyndin að þessu fyrirtæki kviknaði í
samtali mínu við góðan vin þegar við vorum að
leita að einföldum búnaði fyrir flugæfingar á
tölvu. Þá rákumst við á búnað frá þessu fyrir-
tæki og þetta vatt upp á sig.“ Þessum orðum
fer Sighvatur Bjarnason flugstjóri um tilurð
fyrirtækisins CoM Flight Revisions sem hann
hefur sett á laggirnar í félagi við tvo fjárfesta,
feðgana Guðmund Má Ástþórsson og Ástþór
Reyni. Sighvatur á að baki langan feril sem
flugstjóri á ýmsar gerðir Airbus-farþegaþotna
en hann var í hópi fyrstu flugmanna sem flugu
undir merkjum WOW air og var flugstjóri hjá
félaginu allt þar til yfir lauk.
„Ég tel að það séu um 100 Íslendingar sem
hafi próf á Airbus og í dag eru varla fleiri en 15
þeirra starfandi við fagið. Það lamaðist allt við
útbreiðslu kórónuveirunnar,“ segir Sighvatur
en hann hafði ráðið sig til starfa sem flugstjóri
hjá Air Atlanta eftir fall WOW air en fyrr-
nefnda félagið hafði þá á prjónunum að taka í
gagnið A330-breiðþotur sem m.a. átti að nota í
pílagrímaflugi í arabaheiminum.
Að mati Sighvats er þörf fyrir búnað af
þessu tagi fyrir flugmenn til að halda sér við
og þá gefi þessi aðstaða einnig tækifæri fyrir
þá sem eru að afla sér réttinda.
„Flugið fer í fullan gang að nýju og þá verð-
ur þörf fyrir fólk með réttindi á þessar vélar. Í
einhverjum tilvikum þarf fólk að endurnýja
réttindin en aðrir hafa haldið þeim við og þessi
búnaður getur komið að góðum notum fyrir
báða hópa.“ Sighvatur bendir á að ekki sé
hægt að afla réttinda á herminn sem CoM hef-
ur sett upp, til þess þarf búnað af öðru og
stærra tagi en þessi hermir gerir þó allt sem
þarf til þess að fá góða æfingu á þær vélar sem
tilheyra A320-fjölskyldunni svokölluðu en það
eru A318-, A319-, A320- og A321-vélar úr
smiðju Airbus. Fyrr í þessari viku var greint
frá því að flugfélagið Play hygðist taka í notk-
un A321-NEO-vélar um mitt sumar. Sighvatur
segir að ákveðið hafi verið að ráðast í stofnun
CoM áður en það lá fyrir og að grundvöllur
fyrirtækisins byggi ekki á mögulegum um-
svifum Play, þótt þau feli í sér mjög jákvæð
tíðindi.
„Þessi starfsemi getur án efa nýst Play en
við teljum rekstrargrundvöll fyrir þessari
þjónustu óháðan því. Það felst mikil fjárfesting
í því fyrir öll flugfélög að þjálfa upp sínar
áhafnir og það getur sparað stórfé að nýta
búnað eins og þennan til undirbúnings áður en
áhafnir halda út í mun dýrari herma.“
Sighvatur er með þjálfunarréttindi frá Air-
bus og segir að jöfnum höndum muni flug-
menn geta leigt herminn til eigin æfinga en
einnig sótt leiðsögn til hans. Tæknin gefur færi
á því að prófa menn í alls konar aðstæðum og á
öllum flugvöllum heimsins sem tjáir að nefna.
„Þjónustan er enn í mótun og við erum að
leggja mat á eftirspurnina þessa dagana. Hér
sjáum við m.a. fyrir okkur að geta tekið á móti
ungu fólki sem er að velta fyrir sér hvort það
eigi að leggja flugið fyrir sig sem og öllu
áhugafólki.“
Það er svissneskt fyrirtæki sem hannar og
smíðar búnaðinn en ýmsir hlutar hans eru
sóttir til stórfyrirtækja á borð við Lockheed-
Martin. Þegar stofnendur CoM eru spurðir út
í fjárfestinguna sem liggur að baki búnaðinum
er Guðmundur Már til svars. Hann dregur
augað í pung og gefur lítið annað uppi en
þetta:
„Þetta kostar tugi milljóna.“
Ný aðstaða til þjálfunar á Airbus
- Fyrrum flugstjóri hjá WOW air stofnar fyrirtæki í kringum nýjan flughermi - Telur þörf á æf-
ingaaðstöðu fyrir flugmenn með próf á Airbus-þotur - Margir sýna nýjum búnaðinum áhuga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tækni Sighvatur Bjarnason við herminn nýja. Hann hefur verið settur upp í skrifstofuhúsnæði í
Garðabæ. Í honum má þjálfa á allar vélar Airbus sem tilheyra hinni svokölluðu A320-fjölskyldu.