Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 54
Ferðalög á
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Kíktu til okkar
í góðan mat og
notalegt andrúmsloft
Borðapantanir á
www.matarkjallarinn.is
• Nauta Carpaccio
• Tígrisrækjur Nobashi
• Langtímaeldað Andalæri
• Jarðarber & Basil
Tilboðsverð 5.990 kr.
Fullt verð: 9.490 kr.
DRAUMAVEISLA
TILBOÐ
Ljúffenga draumaveislan okkar er á tilboði
sunnudaga til fimmtudaga út apríl
Heitir fossandi lækir hverfa í svart-
an sand á víðáttum vatnaskila
Norður- og Suðurlands. Litríkt
hverasvæði í öllum regnbogans lit-
um leynist hátt í hlíð en sunnar
gnæfir líparítfjallið Skrauti yfir Tví-
litaskarði. Tignarlegir jöklar standa
vörð hvor sínum megin. Heillandi
staður í hjarta hálendisins sem er
þó fáum kunnur. Þetta er Vonar-
skarð.
Vonarskarð er án efa meðal fá-
mennustu staða á Íslandi. Það ligg-
ur milli Tungnafellsjökuls og Vatna-
jökuls í um 900-940 m hæð yfir sjó.
Skarðið er 12-13 km breitt milli
jökla og 15-20 km á lengd. Mynni
Vonarskarðs að norðan er ýmist tal-
ið vera milli Fljótsborgar og Gæsa-
hnjúks eða Fljótsborgar og Tinda-
fells en að sunnan milli Svarthöfða
og Fremsta-Bálkafells.
Skarðið er gróðurlaust að kalla
en náttúrufar þess er þó harla fjöl-
breytt. Sérstaklega er það jarðhiti
sem setur svip á skarðið en sunn-
arlega í vesturhlíðum þess er all-
mikið líparítsvæði með litauðugum
skriðum og hefur einn hnjúkur þar
verið nefndur Skrauti og hjá honum
Tvílitaskarð. Í vesturhlíð skarðsins
undir Eggju er stórt hverasvæði
með afar litríkum útfellingum. Í
hlíðunum undir hverasvæðinu eru
mosateygingar með strjálum há-
plöntugróðri sem eflaust á jarðhit-
anum tilvist sína að þakka. Þar heit-
ir Snapadalur og dregur nafn sitt af
þeim gróðursnöpum sem þar er að
finna. Í Snapadal eru vatnsmiklir
heitir lækir sem gefa ferðamönnum
færi á baði.
Botn Vonarskarðs er sléttur hið
syðra og á söndunum fram af
Snapadal rís stakur píramídalag-
aður hnjúkur sem heitir Deilir. Þar
úti á sandsléttunum eru vatnaskil
milli Norður- og Suðurlands. Sytrur
og lækir sem falla úr austri og
vestri safnast saman á sandinum
sem getur virst allur í vatni. Vötnin
sem falla suður af eru efstu upptök
Köldukvíslar og þau sem falla til
norðurs eru upptakakvíslar Skjálf-
andafljóts. Vatnaskilin eru á móts
við Deili og gefa honum nafn. Um
það bil í miðju skarði gengur fram
lágur háls sem endar í Valafelli og
austan standa hvassir móbergs-
kollar sem heita Hníflar. Skarðið á
hálsinum heitir Gjósta eða Gjóstu-
skarð og þangað er akfær vegur af
vegi norðan Tungnafellsjökuls. Frá
Gjóstu er um klst. gangur í Snapa-
dal að heitu lækjunum.
Frá skála Ferðafélags Íslands í
Nýjadal er stikuð leið inn brúnir
Nýjadals, þar heitir Mjóháls, og í
skarðið milli Eggju og Laugakúlu
og er þá skammt niður að hvera-
svæðinu. Hægt er að fara þessa leið
á einum degi fyrir lausgangandi
ferðalanga. Fyrstu sagnir um ferðir
á þessum slóðum er að finna í
Landnámu. Þar segir að Bárður
sonur Heyangurs-Bjarnar hafi
numið land í Bárðardal og búið á
Lundarbrekku. „Þá markaði hann
at veðrum, at landviðri váru betri
en hafviðri ok ætlaði af því betri
lönd fyrir sunnan heiði. Hann sendi
sonu sína suður um gói. Þá fundu
þeir góibeitla ok annan gróður. En
annat vor eftir, þá gerði Bárðr
kjálka hverju kykvendi, því er
gengt var, og lét hvat draga sitt
fóðr og fjárhlut. Hann fór Von-
arskarð, þar er síðan heitir Bárð-
argata. Hann nam síðan Fljóts-
hverfi ok bjó að Gnúpum. Þá var
hann kallaðr Gnúpa-Bárður.“
Þessa leið frá Lundarbrekku og
suður að Gnúpum í Fljótshverfi
kallar Haraldur Matthíasson Bárð-
argötu og lýsir henni í árbók FÍ
1963. Haraldur telur nafnið Von-
arskarð nafngift Bárðar sem bendir
til að hann hafi komist í hann
krappan norðan jökla. Þegar kemur
suður í skarðið fer að sjást til kenni-
leita á Suðurlandi. Ekki er ósenni-
legt að sú sýn hafi fyllt hann eld-
móði og hleypt í hann kjarki um að
nú mundi takmarkinu náð. Engar
heimildir eru til um ferðir um Von-
arskarð fyrr en á 19. öld. Þegar
Björn Gunnlaugsson fór ásamt Sig-
urði fylgdarmanni sínum norður
Vonarskarð og austur á land. Björn,
spekingurinn með barnshjartað,
kenndi stærðfræði, stjörnufræði og
ýmsar greinar náttúruvísinda við
Bessastaðaskóla. Elskaður og virtur
af nemendum sínum. Hann varð
frumkvöðull í nútímalegri kortagerð
á Íslandi. Seint á 19. öld kom svo
Þorvaldur Thoroddsen í Vonarskarð
og gerði jarðfræðiúttekt á því og
má það heita fyrsta nútímarann-
sóknin á svæðinu.
Á okkar tímum er fáfarið um
Vonarskarð þótt svartir sandar, lit-
rík fjöll, heitir lækir og hverir og
tignarlegir jöklar geri skarðið að
einu best varðveitta leyndarmáli á
hálendi Íslands. Á vetrum fara
jeppamenn stundum í gegnum
Vonarskarð í vetrarríki en á sumrin
koma þar stöku gönguhópar.
Gönguferð í Vonarskarð er þó ekki
erfitt verkefni og líklega við hæfi
flestra sem stunda útivist.
Heimildir: Leifur Þorsteinsson,
árbækur FÍ. palli@fi.is
Vonarskarð, perlan að baki jöklanna
Heitir fossandi lækir
hverfa í svartan sand á
víðáttum vatnaskila
Norður- og Suðurlands.
Litríkt hverasvæði í öll-
um regnbogans litum
leynist hátt í hlíð en
sunnar gnæfir líparít-
fjallið Skrauti yfir Tvílita-
skarði. Tignarlegir jöklar
standa vörð hvor sínum
megin. Heillandi staður í
hjarta hálendisins sem
er þó fáum kunnur.
Þetta er Vonarskarð.
Ljósmynd/Leifur Þorsteinsson
Vonarskarð er einn fáfarnasti staður á hálendi Íslands.
Hverasvæði í
Vonarskarði.
Í Vonarskarði ríkir sannkölluð
óbyggðastemning og öræfakyrrð.