Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Áður en höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur voru teknar í notkun vorið 2003 höfðu vaknað efasemdir um að vesturbyggingin myndi þola íslenskt veðurfar. Segja má að þær grunsemdir hafi verið staðfestar með ríflega 200 blaðsíðna matsgerð sem Orkuveitan lét vinna í tilefni af því fjártjóni sem hlotist hefur af þessum göllum. Vildi Orkuveitan fá úr því skorið hverjir, ef þá einhverjir, beri ábyrgð á því að endurnýja þarf alla útveggi vesturbyggingarinnar á Bæjarháls- inum þrátt fyrir úrbætur á árunum 2004, 2009 og 2015-2016. Matsgerðin var unnin af Eyþóri Rafni Þórhallssyni, byggingarverk- fræðingi og dósent við Háskólann í Reykjavík, og Tryggva Jakobssyni, byggingarfræðingi og múrarameist- ara, en þeir taka fram að vegna fyrri viðgerða sé verkið vandasamt. Veðurálag á vesturhliðinni Höfuðstöðvar Orkuveitunnar eru um 14 þúsund fermetrar og skiptast í tvö hús; fimm hæða ferhyrnda byggingu (austurhús) og sex hæða bogalaga byggingu (vesturhús) sem tengdar eru með glerhvelfingu sem hýsir m.a. lyftur og tengigang. Málið varðar vesturhúsið (sem er vinstra megin á myndinni hér til hliðar), nánar tiltekið austurhliðina. Samkvæmt matsgerðinni sýna svonefndar vindrósir að mest veð- urálag er á austurhliðinni en lítið álag á vesturhliðina. Skemmdir hafi fyrst og fremst verið á þremur hlið- um: norðausturenda, suðausturhlið, beggja vegna hvolfþaks, og einkum á suðausturenda og endavegg í suður. Benti viðmælandi blaðsins á að sterk austanátt og votviðri hafi reynt mik- ið á útveggi vesturhússins sem hafi ekki reynst þola álagið. Var útvegg- urinn úr álgluggakerfi með inn- byggðum gluggum sem hannaður og framleiddur var af danska framleið- andanum HS Hansen. Byko hafði milligöngu um kaup og alla útfærslu á kerfinu en uppsetning var í hönd- um ÞG Verks (sjá ramma). Stæðist ekki kröfur Matsgerðinni fylgja margar heim- ildir sem vitna um mat manna á ástandi hússins á hverjum tíma. Meðal annars er vitnað til lýsingar Hjalta Sigmundssonar, fulltrúa Línuhönnunar, á kerfinu en hann taldi ekki sýnt fram á að það stæðist framsettar kröfur meðal annars vegna vatns- og loftþéttleika. Þannig sagði í umsögn Hjalta 22. maí 2002 að mikið skorti á að nægar upplýsingar væru komnar fram „og einnig að alvarlegur misskilningur [væri] hjá verktaka um hönnun út- veggjaklæðninga. Ég vara sérstak- lega við að taka við klæðningum fyrr en lausnin hefur verið hönnuð og yf- irfarin,“ skrifaði Hjalti. Ekki leið á löngu þar til leka varð vart í vesturbyggingunni. Meðal annars er greint frá því í orðsend- ingu „frá eftirliti til OR“ að leki hafi komið fram á austurhlið vesturhúss í febrúar 2004 „samanber tilkynning- ar dags 5. og 11. febrúar til ÞG-verk- taka“. Í nóvember 2004 sagði svo í orðsendingu frá verkeftirliti til verk- kaupa að aðalorsök lekans væri talin vera sú að sementsbundnar plötur væru of litlar þannig að nægileg þétting fengist ekki með þéttilistum og samskeytin væru óþétt. Margoft gerðar athugasemdir „Á verktímanum voru margoft gerðar athugasemdir við að sem- entsbundnar plötur væru of litlar og að þétta þyrfti samskeyti platna. Eins og fram kemur í gögnum svör- uðu fulltrúar Byko því ávallt til að plöturnar væru í lagi […] Það hefur síðan komið í ljós að þessi frágangur var ekki ásættanlegur og áhyggjur/ athugasemdir uppsetningaraðila og eftirlits/byggingarstjóra voru á rök- um reistar,“ sagði í áðurnefndri orð- sendingu verkeftirlitsins. Byko svaraði þessum athuga- semdum 7. janúar 2005. Sagði þar m.a. að fulltrúar Byko og verkkaupa „hefðu skoðað ísetningu þessara platna og hafi það verið álit þeirra að plöturnar myndu sleppa til“. Skal ítrekað að langt er um liðið og er hér aðeins vitnað til skriflegra heimilda. Mögulega veita þær ekki tæmandi yfirlit yfir samskipti manna vegna þessara framkvæmda. Undirbúningi ábótavant Óskað var eftir því að matsmenn tækju tillit til lagfæringa á fasteign- inni árin 2004, 2009 og 2015-2016. Varðandi síðastnefndu viðgerðina telja matsmenn sérstakt að „fram- leiðandi kerfisins HS Hansen hafi ekki komið að hönnun lausna og eða úrbóta sem gerðar voru á kerfinu, þar sem þekking og reynsla á kerf- inu ætti að vera til staðar hjá fram- leiðanda. Það er niðurstaða mats- manna að vanda hefði mátt betur til undirbúnings viðgerða með ýtar- legri greiningavinnu og ráðlegt hefði verið að leita ráðgjafar erlendra sér- fræðinga í gluggakerfum,“ segja matsmennirnir um viðgerðina. Vekur þessi niðurstaða athygli en viðgerðin kostaði mikla fjármuni. Gallarnir verða ekki lagfærðir Jafnframt voru matsmenn spurðir hvort úrbóta væri þörf á útveggjum en ekki eingöngu gluggakerfi, utan- hússklæðingu og rakavarnarlagi. „Það er mat matsmanna að allir útveggir vesturhúss hafi verulega galla sem verða ekki lagfærðir með viðgerðum á núverandi kerfi. Orsak- ir gallanna má rekja til hönnunar kerfisins og að deililausnum hafi ekki verið nægilegur gaumur gefinn. Skortur var á prófunum samanber kröfur í útboðslýsingu,“ skrifa mats- menn sem telja ljóst að viðgerðir 2004 og 2016 hafi ekki skilað þeim árangri sem stefnt var að. Þ.e. að koma í veg fyrir frekari leka á glugga- og klæðningakerfi hússins. Telja matsmenn fullreynt að lag- færa núverandi glugga- og klæðn- ingakerfi á fullnægjandi hátt. Varðandi hönnun og efnisval út- veggja kemur fram í matsgerðinni að gluggakerfið hafi ekki verið próf- að fyrir uppsetningu, líkt og farið var fram á í verklýsingu. Þá sé eng- inn samþykkjandi skráður fyrir teikningum af gluggakerfinu. Stenst ekki íslenskar kröfur „Það er mat matsmanna, með hlið- sjón af þeim göllum sem fram hafa komið eftir byggingu hússins, að gluggakerfið í heild sinni stenst ekki íslenskt veðurálag og kröfur verk- lýsingar. Kerfið, í heild sinni, er eng- an veginn í samræmi við góðar venj- ur og vönduð vinnubrögð við byggingu mannvirkja með létt- byggðum útveggjum.“ Matsmenn eru jafnframt beðnir um að leggja mat á hvenær mats- beiðandi – Orkuveitan – hafi mátt verða gallanna vör. „Í gögnum málsins er tölvupóstur frá Guðna Eiríkssyni í Fjölhönnun til Byko og ÞG verktaka dags 11. febrúar 2004. Þar segir að leki sé í vesturhúsi. Tilgreindir eru mjög margir lekastaðir á mörgum hæðum. Á þessum tíma er ekki búið að taka út bygginguna. Matsmenn draga af því þá ályktun að gallar hafi komið fram fyrir úttekt á byggingunni sem framkvæmd var haustið 2004,“ skrifa matsmennirnir sem voru beðnir að leggja mat á kostnað við úrbætur á höfuðstöðvum Orkuveit- unnar. Niðurstaðan er að þær munu kosta tæplega 1.925 milljónir. Þar af kosti nýr útveggur tæplega 921 milljón króna og klæðning innan- húss og lagnir á útveggjum 364 milljónir. Aðvörunarljós loguðu snemma - Áhyggjur af smíðagöllum á húsi Orkuveitu Reykjavíkur komu upp á yfirborðið áður en húsið var vígt - Matsmenn segja gluggakerfi ekki hafa verið prófað í samræmi við reglur - Gagnrýna líka viðgerðir Morgunblaðið/ÞÖK Höfuðstöðvar Orkuveitunnar Austurhlið vesturbyggingarinnar (til vinstri) hefur lekið og það valdið myglu. Orkuveita Reykjavíkur samdi við ÞG Verk vegna upp- steypu á höfuðstöðvunum og vegna uppsetningar á meðal annars álgluggakerfi og gluggum. Í matsgerðinni, sem fjallað er um hér til hliðar, er vikið að athugasemdum ÞG Verks varðandi klæðninguna og er m.a. tiltekinn ýmis kostnaður vegna ágalla á hönnuninni. Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks, segir að- spurður að ekki hafi alltaf verið bruðgðist við athuga- semdum fyrirtækisins. Spurður hvað hann telji skýra það kveðst Þorvaldur reikna með að þeir sem tóku ákvarðanir um umrætt gluggakerfi hafi talið áhyggjurnar óþarfar. „Ég reikna ekki með að neitt annað hafi ráðið för,“ segir Þorvaldur. Hann áréttar að ÞG Verk hafi unnið umrætt verkefni fyrir verkkaupa samkvæmt fyrirmælum og hönnunargögnum. „Ef við teljum að það séu einhver vanhöld á útfærslum, eða eitthvað þurfi eða megi betur fara, þá bendum við auðvitað á það en við erum ekki ábyrgðaraðili. Við lögðum ekki til útveggjakerfið og höfðum enga aðkomu að vali á því og hvorki getum né megum taka ákvarðanir eða breyta hönnun og útfærslum,“ segir Þorvaldur. Hann vill að öðru leyti láta matsgerðina tala sínu máli. Þar komi hið rétta í ljós. Umræðan um gallana á höfuðstöðvum OR hafi á tímabili verið á villi- götum og skuldinni jafnvel að ósekju verið skellt á ÞG Verk. Hafi talið áhyggjur óþarfar EKKI ALLTAF BRUGÐIST VIÐ ÁBENDINGUM ÞG VERKS Þorvaldur Gissurarson Ódýrt fyrir alla Sæktu um lykil á orkan.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.