Morgunblaðið - 15.04.2021, Blaðsíða 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
GÓLFMOTTUR
LION LEOPARD RAINBOW
KOALA
Verð14.990,- stk.
„SLEPPTU MANNINUM, DÚLLI MINN, OG
MAMMA SKAL GEFA ÞÉR BEIN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að vera með
uppáhaldsmann-
eskjunni sinni.
ÞÚ ÁTT STÓRA SKÁL AF
SALATI Í ÍSSKÁPNUM!
OG ÉG SETTI
STÓRA HÁRKÚLU Í
INNISKÓINN ÞINN!!
HRÓLFUR, ÉG HEF SAGT ÞÉR
ÞAÐ Í MÖRG ÁR AÐ MÉR FINNST
ÉG FÖST Í ÞESSU LEIÐINDA
AFDALAÞORPI!
ÞÚ SAGÐIR ALLTAF AÐ ÞÚ
MYNDIR FÆRA FYRIR MIG
FJÖLL!
ÚTSALA
ÞAÐ ER NÚ
EKKI SVO
EINFALT,
ÁSTIN MÍN!
GÆTUÐ ÞIÐ EKKI BARA FLUTT
Í KRINGUM FJÖLLIN?
„ÞETTA SNIÐ ER KALLAÐ „AFSLAPPAГ.
ÉG SKAL GÁ HVORT ÞAÐ ER TIL SNIÐ
SEM HEITIR „STRESSBOLTI“.“
alls konar tilraunir við að súrsa og
sjóða niður grænmeti, gera eigið
jógúrt og ab-mjólk o.fl. Ég tek líka
syrpur í að prjóna. Mér hefði
örugglega vegnað vel sem hús-
freyju í sveit fyrr á öldum.
Útivistin er síðan lífsnauðsynleg.
Göngur í óbyggðum með góðum
vinum eru dásamlegar sem og að
skella sér í sjóinn hvar og hvenær
sem tækifæri gefst. Ég byrjaði á
sjósundsnámskeiði í janúar og get
svarið það að sjósundið er allra
meina bót og frábært til að halda
gleðinni. Síðastliðin ár hef ég tekið
upp á því að ganga á fjöll og t.d.
farið með frábærum hópi í eina ferð
á sumri þar sem við höfum gist,
borðað saman og gengið á
skemmtileg fjöll eins og Kristínar-
tinda og Lómagnúp. Ég hef líka
farið tvisvar á Hornstrandir sem
var mjög gaman og gefandi.“
Fjölskylda
Börn Kristínar eru Snædís
Edwald Einarsdóttir, f. 11.6. 2001,
nemi í rafmagnsverkfræði með
stjórnun við King’s College í
London, búsett í London, og Helgi
Edwald Einarsson, f. 25.6. 2004,
nemi við Verzlunarskóla Íslands,
búsettur í Reykjavík. Faðir þeirra
er Einar Karl Hallvarðsson, f. 6.6.
1966, ríkislögmaður og fyrrverandi
eiginmaður Kristínar.
Systkini Kristínar eru Jón
Haukur, f. 2.11. 1954, ökukennari,
búsettur á Seltjarnarnesi; Birgir,
f. 18.10. 1958, skólastjóri, búsettur
á Eyrarbakka; Helga, f. 7.3. 1961,
læknir og þýðandi, búsett í Hafn-
arfirði, og Eggert, f. 16.2. 1963,
matreiðslumeistari, búsettur í
Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Foreldrar Kristínar voru hjónin
Ágústa Úlfarsdóttir Edwald, f.
25.5. 1928 á Seyðisfirði, d. 6.8.
2018, húsmóðir og Jón Ormar
Edwald, f. 19.6. 1925 á Ísafirði, d.
16.4. 2013, lyfjafræðingur og
þýðandi.
Kristín
Edwald
Karoline Julie Aspelund
húsfreyja í Reykjavík, f. í Noregi
Carl P. Aspelund
trésmiður í Reykjavík, f. í Noregi
Sigrún Aspelund Edwald
húsmóðir á Ísafirði
Jón Samúelsson Edwald
kaupmaður og ræðismaður á Ísafirði
Jón Ormar Edwald
lyfjafræðingur og
þýðandi í Reykjavík
Þuríður Ormsdóttir
húsfreyja í Miðdalsgröf
Samúel Guðmundsson
bóndi í Miðdalsgröf í Gilsfirði
Guðrún Eiríksdóttir
húsfreyja í Götu
Karl Friðrik Jónsson
bóndi í Götu á Vopnafirði
Úlfar Karlsson
skósmiður, bjó á Seyðisfirði og í Reykjavík
Helga Jónína Steindórsdóttir
húsmóðir á Seyðisfirði og í Reykjavík
Guðrún Pálsdóttir
húsfreyja á Sauðárkróki
Steindór Jóhannesson
verslunarmaður á Sauðárkróki
Úr frændgarði Kristínar Edwald
Ágústa Úlfarsdóttir
Edwald
húsmóðir í Reykjavík
Á þriðjudaginn var hér í Vísna-horni gott bréf frá Þórði í
Skógum. Þar var vísa sem Magnús
Knútur Sigurðsson frá Seljalands-
seli orti um mann sem hafði verið
settur til þess að hafa hemil á gest-
um á þjóðhátíð í Eyjum en hafði áð-
ur verið orðaður við áfengi. Hér
kemur niðurlag bréfsins: „Magnús
fékk þessa kveðju handan um álinn:
Seljalands í selinu
situr Magnús Knútur.
Stendur undan stélinu
stærðar landakútur.“
Og lýkur hér bréfinu.
Ingólfur Ómar skrifaði mér: „Sæll
Halldór, ég má til með að luma að
þér einni veðurfarsvísu sem ég
gerði um daginn þegar góða veðrið
var og nú held ég að vorið sé á
næsta leiti.
Sindra ból og batnar tíð
burtu njóla víkur.
Vermir sólin völl og hlíð
vanga gjólan strýkur.“
Á sunnudag skrifaði Hólmfríður
Bjartmarsdóttir á Boðnarmjöð: „Um
miðjan mars setur heilagur Patrek-
ur varmasteininn í jörðina, svo byrji
að húsa frá veggjum og klettum og
klaki bráðnar neðanfrá“:
Nú fer að vora því klakinn er farinn að
klökkna.
Kúra spennt niðrí moldinni fræin mín
væn.
Varmasteinn kominn í veginn því hann
er að dökkna
Varlega pússar nú sandinn hafaldan
græn.
Jón Arnljótsson kveður:·
„Það er engin þörf að kvarta“ (St. frá
Hv.dal)
þiðnar bráðum gróðurmold.
Gil og fjallaskörðin skarta.
Skín nú sól um alla fold.
Indriði á Skjaldfönn spyr hvort
skortur sé á yrkisefni:·
Í eldgosvá og Covid-krísu
er hvergi feitt.
Menn ólmast við að yrkja vísu
um ekki neitt.
Þórður Júlíusson segir að Páli
Ólafssyni verði seint fullþakkað og
hefur lög að mæla:
Gott á hún Stjarna
að standa nú þarna
við stallinn og éta,
ekkert að vinna
meira né minna
en míga og freta.
Eins er því varið
ég vinn ekki parið
- menn vita að tarna, -
en áfengan sopann
og dýrari dropann
drekk ég en Stjarna.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af varmasteini heilags Patreks