Morgunblaðið - 15.04.2021, Page 63

Morgunblaðið - 15.04.2021, Page 63
MENNING 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® 94% 96% 99%BESTA MYNDIN Sýnd með íSlenSku og enSku tali 94% Vinsælasta mynd ársins í bíó á Heimsvísu! Stórmynd sem allir verða að sjá í bíó. Þ ann fjórða desember árið 1969 var Fred Hampton, foringi Svörtu pardusanna („Black Panther Party“) í Illinois-ríki, myrtur af laganna vörð- um á heimili sínu í Chicago aðeins 21 árs að aldri. Allt í allt var 80 byssu- skotum hleypt af og annar liðsmaður flokksins, Mark Clark, lét einnig lífið og nokkrir aðrir hlutu alvarleg meiðsli. Morðið var framið af sérsveit eftir fyrirmælum lögreglunnar í Chi- cago og bandarísku alríkislögregl- unnar (FBI). Alríkislögreglan hafði um hríð fylgst grannt með Hampton, eins og öðrum leiðtogum Svörtu par- dusanna, en vígið var liður í sam- hæfðri aðgerð á landsvísu gegn flokknum sem yfirmenn stofnunar- innar álitu róttæka ógn við þjóðarör- yggið. Þessir opinberu aðilar þurftu þó aldrei að sæta ábygð fyrir glæpina sem þeir fyrirskipuðu og engin furða að löggæsluaðilar líktust heldur her- setuliði í hugum svartra þar vestra. Ein helsta leið alríkislögreglunnar til að grafa undan flokksstarfi par- dusanna var að koma útsendurum sínum til að starfa innan flokksins. Einn þeirra var William O‘Neal, smáglæpamaður á táningsaldri sem var gómaður fyrir bílaþjófnað og að þykjast vera alríkislögreglumaður (írónískt). Hann fékk val um sex ára fangelsisvist eða að gerast njósnari innan vébanda pardusanna. O‘Neal reis hratt upp metorðastigann og varð yfirmaður öryggismála í Illi- nois-deild flokksins og starfaði því undir Hampton. O‘Neal er Júdas og Hampton frelsarinn í titli téðrar myndar en líkingin er úr ranni hins margfræga yfirmanns alríkislögregl- unnar, J. Edgar Hoover, en hann vildi ekki að neinn „messías“ kæmi upp í röðum pardusanna. Þessi sögu- lega frásögn er færð í form spennu- tryllis þar sem áhorfendur fá innsýn í gangverk njósnabáknsins og byltingarsinnaðra. Myndin hefst á inngangi þar sem sögulegu myndefni, m.a. úr frægri heimildarmynd Agnesar Varda, Black Panthers, er skeytt saman við leikið efni. Fyrst bregður fyrir La- keith Stanfield (Sorry To Bother You, Knives Out) í hlutverki svik- arans O‘Neal þar sem sjónvarps- viðtal hans frá 1989 úr heim- ildaþáttaröðinni Eyes on the Prize er endurskapað og skálduð upp ný spurning – „hvað myndir þú segja við son þinn um gjörðir þínar á áttunda áratugnum?“ Í framhaldinu er stikað yfir stefnumál byltingarsinnaða flokksins í myndflétturöð; þar á með- al með áherslu á vopnavæðingu gegn lögregluofríkinu en einnig á sam- félagslegt starf eins og öflun mennt- unar, fæðis og heilsugæslu sem par- dusarnir sinntu fyrir samfélag sitt. Martin Sheen bregður sér í (mjög svo afskræmt og ýkt) líki valdakarlsins Hoovers sem breiðir út fagnaðar- erindi sitt fyrir fullum sal undir- manna sinna en gegnt honum er teflt Daniel Kaluuya (Get Out) í hlutverki róttæka foringjans Hampton, þar sem hann mælir marxíska orðræðu sína „við munum ekki berjast gegn kapítalisma með svörtum kapítal- isma, heldur berjumst við gegn kapít- alisma með sósíalisma“. Hug- myndafræðilegar andstæður verksins eru skýrar frá upphafi og al- ríkslögreglan er sýnd í mjög annar- legu ljósi. Ein skemmtilegasta sena mynd- arinnar kynnir hrappinn O‘Neal til leiks. Kappinn, klæddur rykfrakka og hatti að hætti rökkurhetja fimmta áratugarins, skreppur inn á krá og leikur alríkislöggu, allt til þess að stinga af í bifreið fastagestanna. Þetta hlýtur að teljast einstaklega leikræn leið til þess að stela bíl og betra efni í njósnara því vandfundið. Gillið misheppnast hrapalega og end- ar Bill í klóm yfirvalda eins og fram hefur komið. Jesse Plemons (I‘m Thinking of Ending Things) leikur Roy Mitchell, FBI-liðann sem fær O‘Neal til liðs við yfirvöld og skipar samband þeirra stóran sess innan frásagnarinnar, í raun er það bita- stæðara en sambandið milli Júdasar og frelsarans og er nafngiftin örlítið misvísandi. Framgangi loddarans O‘Neal inn- an pardusaflokksins eru gerð skil, samhliða uppgangi leiðtogans Hamp- tons. Hampton er magnaður ræðu- maður, sem hrífur með sér, og leggur kapp á að bæta sig í þeirri list. Hann er reiðubúinn að leggja allt í söl- urnar, deyja fyrir málstaðinn og leiða saman ólíka hópa til að ná fram breytingum. Athygli myndarinnar er svolítið tvístruð milli aðalpersóna en svikarinn Bill verður ofan á – sem er skiljanlegt út frá dramatúrgískum sjónarhóli. Innri barátta skúrksins verður áþreifanleg í vænisjúkri og magnaðri frammistöðu Stanfield. Frammistaða Kaluuya sem Hampton er af öðrum meiði en hjá Stanfield, stór með stóru essi og tekur hann yfir ræðustólinn eins og sá sem valdið hefur. Þó nær persónusköpunin aldr- ei djúpt í hans tilfelli, heldur fæst að- eins glansandi dýrlingamynd. Leikaraliðið (en Stanfield og Kalu- uya eru án efa upprennandi stór- stjörnur sinnar kynslóðar) er einn helsti styrkleiki en um leið annmarki myndarinnar, eins þversagnakennt og það kann að hljóma. Ekki síst magnað við þessa sögulegu atburði er að persónurnar voru nánast táningar þegar þeir áttu sér stað, en maður verður örlítið ónæmur fyrir þessum þætti með Hollywood-glansinum. Mynd, framleidd af Warner Brot- hers-samsteypunni, getur fjallað um pólitísk átök en þó aðeins innan ákveðins ramma. Þessar þversagnir eru merkjanlegar innan verksins, sem reynir að vera sögulega ná- kvæmt en um leið grípandi. Hápunktar verksins eru þegar ein- blínt er á hugarheim loddarans og vænisýkin tekur yfir myndræna ásýnd – en kvikmyndataka Seans Bobbitts (Hunger, 12 Years A Slave) er frábær. Endalokin eru áhrifamikil, grimmd og tilgangsleysi ofbeldisins verður þrúgandi. Óhætt er að segja að Júdas og svarti messías eigi erindi við samtíma sinn. Úlfur í sauðargæru Frelsarinn Daniel Kaluuya í hlutverki Freds Hamptons, foringja Svörtu pardusanna í Illinois sem var drepinn af lögreglumönnum aðeins 21 árs. Sambíóin Júdas og svarti messías/Judas and the Black Messiah bbbmn Leikstjórn: Shaka King. Handrit: Shaka King, Will Berson, Kenneth Lucas, Keith Lucas. Kvikmyndataka: Sean Bobbitt. Klipping: Kristan Sprague. Aðalleikarar: Daniel Kaluuya, Lakeith Stanfield, Jesse Plemons og Dominique Fishback. Bandaríkin, 2020. 125 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.