Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 72

Morgunblaðið - 15.04.2021, Síða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 Sófar 15. APRÍL - 3. MAÍ WESTON 2JA SÆTA SÓFI með bonded leðri. L164 cm. 169.900 kr. Nú 137.007 kr. WOODSTOCK sófaborð, eik. 80x80 cm. 34.900 kr. Nú 28.143 kr. CHISA hægindastóll. Dökkblár, grænn eða brúnn. 44.900 kr. Nú 36.207 kr. TAX FREE AF ÖLLUM SÓFUM, HÆGINDASTÓLUM, SÓFABORÐUM OGMOTTUM* TAX FREE AF ÖLLUM PÚÐUM OG ÁBREIÐUM* *Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 24% virðisaukaskatt af þessari sölu. Verðlækkunin 19,36% er alfarið á kostnað ILVA *Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði. Gildir á meðan birgðir endast. Tónlistarmaðurinn Björn Kristinsson, þekktur sem „Bjössi sax“, hefur verið val- inn bæjarlistamaður Seltjarnarness 2021. Þetta var í 25. sinn sem bæjarlistamaður Seltjarnarness er út- nefndur. Hlaut Björn viðurkenningarskjal ásamt starfsstyrk að upphæð ein milljón króna sem fylgir nafnbótinni. Tónlist- arferill Björns hófst snemma en hann kom fyrst fram í barnaþáttunum Söngvaborg sem Róbert bangsi. Hann lærði síðar söng og saxófónleik og útskrifaðist frá MÍT árið 2018. Björn hefur komið fram með ýmsum hljómsveitum og vakið athygli fyrir snjalla spilamennsku. Björn Kristinsson valinn bæjar- listamaður Seltjarnarness 2021 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 105. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Mönnum líður eins og þeir séu búnir að vera á hálf- gerðu undirbúningstímabili í eitt og hálft ár. Það er alltaf verið að byrja upp á nýtt, alltaf verið að hlaupa og taka spretti og engir leikir. Þessi gleði sem var komin dofnaði aðeins en það verður bara þeim mun betra að byrja á morgun, vitandi að það er mjög stutt í fyrsta leik,“ segir Rúnar Kristinsson, þjálfari karla- liðs KR í fótbolta, sem getur byrjað að æfa saman á ný í dag. »61 Hálfgert undirbúningstímabil í eitt og hálft ár ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nokkrir framsýnir menn stofnuðu Golfklúbb Selfoss 24. janúar 1971, komu upp svokölluðum Grýlupotta- velli við Engjaveg og lögðu grunn- inn að uppgangi íþróttarinnar á Suð- urlandi, en klúbburinn er einn sá öflugasti innan Golfsambandsins og stendur í stórræðum á 50 ára af- mælisárinu. Mikil uppbygging hefur verið á Selfossi undanfarin ár og þegar ný brú verður reist yfir Ölfusá missir GOS þrjár holur af níu á Svarfhóls- velli. Þess vegna hefur verið unnið við að koma upp þremur nýjum hol- um í staðinn undanfarin tvö ár og verða þær tilbúnar í sumar. „Í byrjun maí hefjum við fram- kvæmdir við níu holur til viðbótar og gerum ráð fyrir að opna 18 holu völl eftir fjögur til fimm ár,“ segir Hlyn- ur Geir Hjartarsson, framkvæmda- stjóri GOS og PGA-kennari. Fjórar holur fyrir 50 árum Fyrsti völlur félagsins var aðeins fjórar holur en undir lok áttunda áratugarins voru þær orðnar sex. Starfsemin var flutt að Alviðru und- ir Ingólfsfjalli skammt frá Þrastar- lundi 1981. Það var skammgóður vermir, því Skógræktin og Land- vernd sögðu leigusamningnum upp 1983. „Forsvarsmenn þeirra töldu að golfvöllur væri ekki hentugur fyrir skógrækt og starfsemin væri ekki náttúruleg en Alviðra hefur verið eyðibýli síðan,“ bendir Hlynur á. Félagið var landlaust í tvö ár, missti kylfinga í nálæga klúbba, en fékk aðstöðu á Svarfhóli 1984 og opnaði níu holu völlinn þar árið eftir. Sveitarfélagið keypti Svarfhól 2012 og lét GOS fá landið til afnota að lágmarki til 100 ára. „Frá upphafi hefur hugmyndin verið að stækka völlinn upp með ánni, vera með 18 holu golfvöll, og nú látum við verkin tala.“ Samfara uppbyggingu í sveitar- félaginu hefur félögum í GOS fjölgað og eru þeir nú um 470. „Ég geri ráð fyrir að þeir verði orðnir að minnsta kosti 700 þegar golfvöllurinn verður 18 holu völlur,“ segir Hlynur. Hann bætir við að Svarfhólsvöllur sé auk þess vinsæll hjá kylfingum á höf- uðborgarsvæðinu og fólk í sum- arbústöðum notfæri sér gjarnan að- stöðuna. Í janúar í fyrra var glæsileg inni- aðstaða með golfhermum, pútt- völlum og netum til að slá í opnuð á Svarfhóli. „Þetta er algjör bylting og nú er golfið orðið heilsárssport hjá okkur,“ segir Hlynur og bendir á að aðstaðan sé í notkun frá klukkan átta á morgnana til 11 á kvöldin. Hann bætir við að hann búist við metþátttöku í golfinu í sumar eins og í fyrrasumar. „Ég á von á sprengingu í golfinu. Um leið og við byrjum úti fer fólkið þangað en við stefnum að því að opna völlinn sum- ardaginn fyrsta, eftir viku.“ Hlynur hefur verið framkvæmda- stjóri GOS undanfarin tíu ár og hann er jafnframt fremsti kylfingur félagsins. Hann var til dæmis Ís- landsmeistari í holukeppni 2007, stigameistari Golfsambandsins 2008, 2010 og 2012, Íslandsmeistari í flokki 35+ 2019 og í A-landsliðinu 2006 til 2010 eða þar til hann varð atvinnumaður og tók við núverandi starfi. Þegar hann var ráðinn skipt- ist vinnan til helminga við fram- kvæmdastjórnina og kennsluna, en vegna framkvæmdanna sinnir hann ekki kennslu næstu árin heldur verður verkstjóri nýframkvæmda auk þess að reka klúbbinn og sjá um veitingasöluna. „Þegar ég tók við starfinu var keppikeflið að byggja upp klúbbinn, völlinn og félags- starfið, en ég hef líka haldið mér við í golfinu og hef ekki slegið minn síð- asta bolta.“ Sprenging í golfinu - Mikil uppbygging og framkvæmdir hjá Golfklúbbi Selfoss Kærkomin viðbót Í húsinu eru golfhermar, púttvellir og net til að slá í. Inniaðstaða GOS Gunnar Marel vallarstjóri, Hlynur Geir framkvæmda- stjóri og Bjarki Þór vallarstjóri tóku fyrstu skóflustunguna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.