BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Page 9

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Page 9
Vonandi raun uppvaxandi kynslóð bera meira úr bítum en launafólk í dag. forvitnilegt að Vinnuveitenda- sambandið skuli kvarta undan háum launakostnaði sem standi íslenskum fyrirtækjum fyrir þrifum. Fjárhagsaðstoð í fullri vinnu Ein hlið láglaunastefnunn- ar er að fullfnskt fólk í fullri vinnu getur ekki séð sér og sínum farborða og þarf því að leita aðstoðar hjá félagsmála- stofnunum. Með því eru sveit- arfélögin í raun að niðurgreiða launakostnaðinn fyrir fyrir- tækin. Samkvæmt upplýsingum frá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar voru 12% þeirra sem fengu fjárhagsað- stoð í fyrra í launaðri vinnu. Einstaklingamir að baki þess- ari prósentutölu eru 369 tals- ins. Af þessum hópi voru 232, eða tæp 70%, í fullu starfi og 101 í hlutastarfi. Upplýsingar vantar um 36 einstaklinga, en að sögn Guðmundar Sigmars- sonar, fulltrúa í Félagsmála- stofnun, er von til þess að með frekari gagnavinnslu skýrist atvinnuþátttaka hluta síðast- talda hópsins. BSR Beiðnir um fjárhagsaðstoð em greindar eftir þeim ástæð- um sem umsækjendur gefa upp, bæði aðalástæðum og öðrum ástæðum. í 62% tilvika var „ónógar tekjur” aðalá- stæða hópsins sem var í fullri vinnu. Aðrar ástæður voru margfalt fátíðari, s.s. „vandi vegna bama” 5,6% og „fjöl- skylduvandi” 5,2%. „Ónógar tekjur” var einnig sú ástæða sem flestir tiltóku sem næst veigamestu ástæðu þess að sótt var um fjárhags- aðstoð. Hlutfallstalan þar var 20% eða 47 einstaklingar. Hver þurfa launin að vera? í apnlhefti blaðs VSÍ, Af vettvangi, er grein eftir Guðna Niels Aðalsteinsson hagfræð- ing sem nefnist ,Borgar sig að vinna?” Þar era borin saman kjör atvinnulausra og vinn- andi eftir að breytingar vora gerðar á reglum um fjárhags- aðstoð. I greininni segir Guðni Niels að eftir þessa breytingu sé stór hluti þjóðarinnar verr settur í vinnu en á bótum. Hann telur þetta hættulega þróun en í stað þess að líta í barm láglaunastefnunnar bein- ir hann spjótum sínum að fé- lagsmálastofnunum. „Þau (þ.e. félagsmálayfirvöld) stæra sig af því að veita um- bjóðendum sínum hærri tekjur en fást af átta stunda vinnu, allt vegna þess að þau hafa svo miklu betri hugmynd um það en atvinnurekendur, hvað það kostar að lifa á íslandi. Þetta er hættulegur misskiln- ingur. Félagsmálastjórar eru ekki Hrói Höttur nútímans,” segir Guðni Niels í grein sinni. Samkvæmt nýju reglunum er miðað við að einstaklingur hafi minnst 53.596 kr. til ráð- stöfunar og hjón 96.472 kr. Atvinnulaus hjón með tvö börn fá 136.900 samkvæmt útreikningum Guðna Nielsar en til þess að hjón með tvö börn sem bæði eru á vinnu- markaði hafi sömu ráðstöfun- artekjur þurfa þau að þéna 240.200 kr. Niels Guðni kemst að því að 40% hjóna með eitt barn sé lakar sett í vinnu en á bótum, 55% hjóna með tvö böm og 70% hjóna með þijú böm. Að hluta til skýrist þetta á- stand af háum jaðarsköttum en meginsskýringin er þó sú að laun á íslandi era alltof lág, þannig að stór hluti þjóðarinn- ar á í stökustu vandræðum að láta enda ná saman. Félags- málayfirvöld eru ekki að reyna að leika Hróa Hött, þau horfa einfaldlega á staðreynd- ir, hver framfærslukostnaður fjölskyldna er á íslandi. Þar inn í er ekki reiknað með að fjölskyldurnar hafi neinar skuldbindingar á herðum sér, en eins og alkunna er hefur skuldaaukning heimilanna aukist mjög á undanförnum áram. Lítil framleiðni Ástæðan fyrir þessum lágu launum hér á landi er fyrst og fremst lág framleiðni íslenskra fyrirtækja, sem skrifast á rangar ákvarðanir atvinnurekenda. Sé litið til landsframleiðslu á íbúa var Is- land í fimmta sæti OECD- ríkjanna árið 1991. Lands- framleiðslan á íbúa er einung- is meiri í Sviss, Svíþjóð, Jap- an og Þýskalandi. Sé skoðuð landsframleiðsla á vinnustund er Island hins vegar í sjöunda neðsta sæti innan OECD-nkj- anna. Þessi mismunur skýrist af því að miklu fleiri vinnu- stundir liggja að baki verð- mætasköpuninni hér en víðast -------------------------9 1

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.