BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Síða 11

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Síða 11
Bjarni Ingvarsson, sálfræðingur: Vinnan og heimilið eru ekki afmörkuð hólf. Ahyggjur á öáru sviöinu smita yfir á hitt og öfugt Vinnum jákvætt úr streitunni - Hæfilegt stress er nauð- synlegt til að halda sér gang- andi. Sumir þurfa á ákveðinni spennu að halda og smávegis adrenalínflæði í blóðinu er allt í lagi. Með því að lifa heil- brigðu lífi - halda sér í formi, vera jákvæður, jafnvel hug- leiða - er hægt að vinna já- kvætt úr streitu, jafnvel mikilli streitu. Þetta segir Bjarni Ingvarsson, starfsmannastjóri Ríkisspítala, en hann er vinnu- sálfræðingur að mennt. Tíð- indamaður BSRB-tíðinda spjallaði stuttlega við Bjama á dögunum. - Stress fer mikið eftir skipulagningu tímans, segir Bjami; hvað þú gerir, hvemig þú lifir og hver forgangsröðin er. Þannig hefur starfsmaður sem aldrei fer í frí tilhneig- ingu til að brenna fyrr upp en aðrir. Neikvætt stress er víta- hringur sem starfsmaður sog- ast inn í. Það tekur sinn líkam- lega toll sem getur til dæmis komið fram í bakverkjum eða höfuðverk. Við ákveðin mörk fer fólk líka að verða pest- sæknara. Oft er neikvætt stress tengt tímapressu og því að hafa ekki stjórn á vinnu- ferlinu. Þegar fólk veit ekki á hverju það getur átt von í vinnunni kemur fyrir lítið að reyna að skipuleggja tímann. Þetta á til dæmis við um lækna og hjúkrunarfólk á á- kveðnum deildum, og einnig lögreglumenn svo dæmi sé tekið úr annarr átt. Besta and- svarið er að vera í góðu formi og leitast með því við að fyrir- byggja hættuna á kulnun, en þegar svo illa er komið hefur viðkomandi starfsmaður enga ánægju af því að mæta í vinn- una á morgnana; vinnan verð- ur kvöl, og eina lausnin getur orðið að finna sér nýtt starf. - Varla er það alltaffýsi- legur lcostur þegar lítið er um vinnu... - Nei, tilhneigingin er frekar að halda í starfið þegar atvinnuástandið er eins og núna. Viðkomandi setur dæm- ið þá gjarnan þannig upp að tryggara sé að ,afplána” enn um sinn starf sem hann er þó búinn að fá nóg af. Fresta því með öðrum orðum að hugsa sér til hreyfings á vinnumark- aðinum þar til svigrúmið eykst á ný. Á krepputímum höfum við líka ákveðinn vítahring þar sem fjárhagsáhyggjur og annað sem bjátar á heima fyrir hefur áhrif á vinnuna og öf- ugt. Vinnan og heimilið eru ekki afmörkuð hólf. Áhyggjur á öðru sviðinu smita yfir á hitt og öfugt. Áður voru þessi svið aðskildari, en nú er meira flæði þama á milli. - Hvað með þátt stjórn- enda í þessu sambandi? - Tillitssemi varðandi þarfir starfsfólksins skiptir vissulega máli. Góður stjórn- andi hvetur starfsfólk til að stunda heilbrigt lífemi og taka sér það frí sem það á. Nútíma- líf krefst þess að fólk sé ekki ofurselt vinnunni. - Gera stjórnendur nóg af því að vinna gegn óhœfdegu stressi með því að hrósa sínu fólki þegar við á og hvetja þaðtildáða? - Upp til hópa sýnist mér við Islendingar sparir á hrósið en miklu ósparari á skamm- imar þegar svo ber undir. Það er því miður of algengt hjá stjómendum að þeir hrósi ekki sínu fólki þegar allt er í lagi. En við eigum nú líka mörg erfitt með að taka á móti hrósi. Kannski erum við svona kreppt. - Manni sýnist að með tölvuvœðingunni verði afger- andi breyting á tímaþœttinum og afstöðufólks til hans... - Það er alveg rétt að með hinni öm tölvuvæðingu hefur tímaskynið breyst og brengl- ast. Skrár sem áður tók tvo til þrjá daga að útbúa er núna hægt að prenta út á kortéri eða svo, en þá bregður svo við að okkur finnst kortérið eilífðar- tími og stressum okkur heil ó- sköp á hægaganginum. Svo fömm við heim eftir vinnu og dettum niður í sjónvarpsgláp í nokkra klukkutíma eins og ekkert sé. Það skiptir máli að setja hlutina í samhengi. — Stundum er sagt að fólk sé stressaðra á einu œviskeiði en öðru, og er þá gjaman til- tekið tímabilið þegar verið er að koma sér upp þaki yftr höf- uðið, bömin ung og lífsbarátt- an hvað hörðust. Skrifarðu upp á þetta? - Jú, vissulega er hún stressandi þessi törn í lífi fólks, en á móti kemur að flestir em í það góðu formi á þessum ámm að þeir ráða við álagið. Þetta æviskeið mætti því gjarnan kalla tímabil já- kvæðrar spennu. Þegar fram í sækir og hægist um er fólki aftur hættara við að lenda í til- vistarkreppu. Þá er spennan vegna innri óróleika. Menn fara að setja spumingarmerki við hvaða stefnu þeir hafi tek- ið í lífinu, hvemig hafi tekist til og þar fram eftir götunum. í fáum orðum sagt er það mjög afstætt hvers eðlis stressið er á hveijum tíma.

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.