BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Side 27

BSRB-tíðindi : fréttabréf - 15.05.1995, Side 27
Skuldaaukning ríkissjóðs Heildarskuldir hins opinbera hafa vaxið hröðum skrefum síðustu árin. I árslok 1994 er falið að þær hafi numið rúm- lega 230 milljörðum króna eða 53,6% af landsframleiðslu. Þá eru lífeyrisskuld- bindingar ríkissjóðs og sveitarfélaga ekki taldar með, en lífeyrisskuldbindingar A- hluta ríkissjóðs námu rúmlega 60 milljörð- um króna í árslok 1993. Rúmleg 53% af skuldum hins opin- bera er hjá erlendum aðilum. Jafnframt því að skuldimar hafa aukist hafa útistand- andi kröfur hins opinbera minnkað á liðn- um árum. I árslok 1994 námu þær um 20% af landsframleiðslu. Hreinar skuldir hins opinbera hafa því margfaldast síðustu árin og mældust 33,5% af landsfram- leiðslu 1994. Sé litið til þróunarinnar undanfarna áratugi þá voru hreinar skuldir hins opin- bera litlar sem engar árið 1982. Árið 1988 ná þær 10% af landsframleiðslu. Árið 1991 eru þær komnar í 20% og árið 1993 fara þær yfir 30%. Opinber lánastarfsemi takmarkast þó ekki við hið opinbera, ríkissjóð og sveitar- félög, því ýmis fyrirtæki og sjóðir hins op- inbera eru þátttakendur í lánastarfsemi. Nokkrir atvinnuvegasjóðir og fjárfestinga- sjóðir em á ábyrgð eða í eigu hins opin- bera og nema skuldir og kröfur þeirra tug- um milljarða króna. Þá em Landsbankinn og Búnaðarbankinn í eigu ríkisins. Þá hefur heildarfjárhæð lána með rík- isábyrgð aukist vemlega á undanfömum ámm. Árið 1990 var upphæðin tæpir 40 milljarðar króna, eða 10,7% af landsfram- leiðslu en árið 1993 var hún komin í rúm- lega 76 milljarða króna, sem samsvarar 18,5% af landsffamleiðslu. Þrátt fyrir stöðuga aukningu skulda hins opinbera hefur lánsfjárþörf hins opin- bera minnkað. Árið 1990 nam lánsfjár- þörfm 27 milljörðum króna en rauk í 40 milljarða árið 1991. Síðan hefur smám saman dregið úr henni og var hún komin í 15 milljarða árið 1994. Húsnæðisstofnun ríkisins minnir á, að markmið laganna um stojhunina er sem hér greinir: ► ► Að stuðla að því með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála og húsbggginga, að landsmenn geti búið við öryggi í húsnæðismálum. Að stuðla aðjafhrétti í húsnæðismálum, þannig að jjármunum verði sérstaklega varið til þess að auka möguleikafólks til að eignast eða leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Þetta eru þau markmið sem Húsnæðisstofnunin starfar að. Þess vegna er hún ein af velferðarstofnunum þjóðfélagsins. Cg3 HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS

x

BSRB-tíðindi : fréttabréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BSRB-tíðindi : fréttabréf
https://timarit.is/publication/1586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.