Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 4

Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 4
2 DULD fræðikennslan var talin standa þar á mjög háu stigi. 1. Voðalegur vágestur. Meðan Nostradamus var við nám í Montpellier, barzt þangað einn mesti vágestur miðaldanna, svarti dauði. Þetta var árið 1425. Montpellier varð hreinasta pestar- bæli. Fólkið hrundi niður, og læknarnir virtust standa gersam- lega ráðþrota gagnvart pestinni. Óttinn greip um sig, og læknarn- ir sjálfir voru ekki síður gripnir geigvænlegri hræðslu gagnvart pestinni en fáfróður almúginn, því þeir brynjuðu sig sem bezt þeir gátu með þvií að íklæðast skósíð- irm úlpum og höfðu hettur yfir höfðinu, sem náðu niður á herð- ar svo að ekki sást í andlit þeirra. Þannig „útrústaðir“ komu þeir til sjúklinganna og úðuðu yfir þá ein- hverjum alveg gagnslausum ilm- vatnsblöndum. Nostradamus horfði á aðfarir þessar og honurn blöskraði fáfræði, hjátrú og heimska læknanna, sem virtust raunverulega ekki vita, hvað þeir voru að gera. Þótt ungur væri, gerði Nostradamus sér ljóst, að engin leið var að ráða við pest- ina nema rannsaka eðli herinar. Hann gerði sjálfstæðar athuganir á veikinni og kom með tillögur um það, hvemig lækna mætti og hefta útbreiðslu hennar. Lækn- arnir glottu og hrisstu höfuðið yf- ir þessum galgopa, sem þóttist vita betur en þeir. Pestin breiddist óð- fluga út, og ástandið varð eink- um alvarlegt í smábæjunum, þar sem engir voru til að hlynna að hinum sjuku, og þar sem allir þeir, er vettlingi gátu valdið höfðu flúið brott í dauðans ófboði- Nostradamus fór nú þangað, sem ástandið var einna verst, til Nar- bonne, Toulouse, Bordeaux og fleiri staða, og tók að meðhöndla sjúklinganna eftir eigin höfði þótt eigi væri.hann nema læknanemi. Það vakti athygli, að hann kom til sjúklinga sinna eins og hann var klæddur, þ. e. án þess að vera hettu- eða hempuklæddur, hress, glaðvær og geislandi af hreysti. Og svo bar við, að víðast hvar, sem hann kom, batnaði mönnum. Hróður hans barst víða, og hann var jafnvel kallaður að sjúkrabeði kardinálans í Chiaramonte, er var fulltrúi páfa i Avignon. Nostradamus hélt sjálfboðaliðs- starfi sínu áfram í fjögur ár, un/ pestin var um garð gengin. Hann settist á skólabekkinn aftur í Montpelliers og lauk þaðan prófi í læknisfræði með ágætiseinkvmn

x

Duld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.