Duld - 01.12.1954, Qupperneq 7
NOSTRADAMUS
5
tamdan úlf, sem var heimagang-
ur í kastalanum, og var hann að
rífa í sig afturpartinn af skrokkn-
um, þegar komið var að honum.
Matreiðslxnnaðurinn sá enga aðra
leið út úr vandræðunum en að
taka svarta svínið og steikja það,
og var það svo borið á kvöldborð-
ið. Lávarðurinn vissi ekki hvað
gerzt hafði, en hann hugsaði því
gott til glóðarinnar, að snúa á
Nostradamus. Þegar máltíðin stóð
sem hæst, mælti hann við Nostra-
damus:
„Jæja, herra minn, þá erum við
nú að snæða hvíta grísinn svo að
ekki verður hann úlfi að bráð“.
„Þvi trúi ég ekki“, svaraði
Nostradamus; „það er svarti grís-
inn, sem er á borðum“-
Lávarðurinn gerði boð eftir
matreiðslumanninum, og hann
reyndi ekki að leyna óhappinu,
sem hann hafði orðið fyrir með
hvíta grísinn.
Saga þessi er ef til vill munn-
mælasaga, en hún á að sýna, að
skyggni Nostradamusar hafi ver-
ið óbrigðul.
4. Talinn undra læknir.
Nostradamus tók sig nú upp frá
Luxemburg og hélt til Provence.
Hermt er, að hann hafi skilið eftir
spádóma í klaustrinu, sem lýstu
ítarlega frönsku byltingunni og
tilkomu Napoleons Bonaparte.
Spádómar þessir eru nú týndir.
Hann var nú búinn að vera á lát-
lausum f erðalögum í tólf ár og er
kominn yfir fertugsaldurinn.
Honum datt í hug, að setjast að í
Marseille og stunda þar lækning-
ar. Hann var mjög eftirsóttur sem
læknir, og margir bæir kepptust
um, að fá hann fyrir borgara
vegna lærdóms hans og þekking-
ar. Hann átti nokkra góða vini
í smábænum Salon de Craux, sem
er um miðja vegu milli Avignon
og Marseille. Þar settist hann að,
og gekk aftur í heilagt hjónaband
Hann gekk að eiga allefnaða konu
af góðum ættum, er bar nafnið
Anna Ponsard Gamelle. Þau áttu
vel saman og þau eignuðust sex
börn.
Tveim árum síðar (1546) barst
svarti dauði til borgarinnar Aix.
Þegar pestin var komin þar í al-
gleyming, var Nostradamus kvatt-
ur á vettvang til að reyna að hefta
útbreyðslu veikinnar. Hann
dvaldist þar í nííu mánuði, og að
þeim tíma liðnum var pestin um
garð gengin. Hróður Nostradam-
usar var á hvers manns vörum, og
ríkisstjórnin í Provence veitti hon-
um lífstíðar eftirlaun fyrir hið