Duld - 01.12.1954, Qupperneq 8
6
DULD
ómetanlega starf, er hann hafði
innt af hendi í almennings þágu.
Ári síðar braust pestin út í Lyon.
Borgarbúar heimtuðu Nostradam-
us og tóku hann fram yfir alla
aðra lækna- Hann dvaldi um tíma
Íí Lyon og vann þar gott og mikið
starf.
5. Alda gömul handrit
um dulræn fræði
Þegar allar þessar ógnir voru
um garð gengnar, settist Nostra-
damus um kyrrt í Salon, Hann
var nú orðinn vel éfnum búinn,
og efnaðir sjúklingar streymdu til
hans hvaðanæva að. Hins vegar
fékk hann ekki að njóta frægðar
sinnar algerlega óáreittur, því að
starfsbróðir hans einn í Lyon, sem
hafði horn í siðu hans, ákærði
hann opinberlega fyrir það, að
fara ékki eftir forskriftum lækna-
deildarinnar, en í þann tíð jafn-
gilti það því, að vera ákærður fyr-
ir kukl. Ákæra þessi virðist ekki
hafa skaðað Nostradamus að neinu
ráði, en hún hafði samt þau áhrif
á hann, að lét minna á sér bera
og reyndi að draga sig sem mest i
hlé frá umheiminum. Svo virð-
ist sem hann hafi farið að gefa sig
meira en áður að dulrænum fræð-
um, og „vísindalegri“ stjörnu-
speki. Eftir formála Nostradamus-
ar að ræða fyrir fyrstu útgáfunni
á spádómum hans (1555), hefur
hann haft í fórum sínum alda-
gömul handrit um dulræn fræði
(science occulture), en hann
brenndi þeim, er hann hafði kynnt
sér efni þeirra, af ótta við það,
er komið gæti fyrir (craignant ce
qui eut pu arriver). Hann lét út-
búa sér herbergi uppi á þaki húss
síns, sem enn er til, og þar eyddi
hann tómstundum sinum, einkum
á kvöldin og fram eftir nóttu við
athuganir og stjarnspekilega út-
reikninga.
6. Frægur spámaður.
Það fór að verða almennur
orðrómur, að hann gæti séð
inn í framtíðina og fengist við
spádóma. Ýmsar fullyrðingar voru
hafðar eftir honum, sem reynd-
ust i flestum tilfellum hreinasta
fásinna, og það kom jafnvel fyrir,
að gefin voru út spádómakver
í hans nafni, og sem hann bar
enga ábyrgo á. Þetta gerði Nostra-
damusi gramt i geði og varpaði
rýrð á hann. En þetta varð samt
þess valdandi, að hann fór að gefa
út almanak, og voru í því veður-
spár og ýmis fróðleikur fyrir fólk-
ið. Fyrsta almanakið kom út 1550.