Duld - 01.12.1954, Page 11
Bruce sagði: „Ég hef aldrei trúað á drauga, en ef satt
skal segja, vildi ég helzt ekki mæta þessu einn míns Iiðs“.
„Siýrið í 7iorð~'l9cslur“
Úr bókinni Footfalls on the Boundary of Another
World, — Fótatak á landamærum annars heims.
Eftir R.
RoBERT BRUCE var fyrsti
stýrimaður á seglskipi, sem ann-
aðist kaupferðir milli Liverpool
og New Brunswick. Eitt sinn, er
skipið var á vesturleið og hafði
verið fimm eða sex vikur í hafi
og nálgaðist austurströnd Ný-
fundnalands, voru skipstjóri og
stýrimaður á þilfari við athug-
anir á afstöðu sólar, en að þvi
búnu gengu þeir undir þiljur til
að semja yfirlit yfir dagsverk sitt.
Lítill skipsstjóraklefi var fast
við skut skipsins, og stuttur stiga-
gangur, sem farinn var þangað
niður, lá þvert yfir skipið. Beint
á móti þessum stigagangi og hin-
um megin við lítinn ferhymdan
pall var svefnklefi stýrimanns, en
frá pallinum lágu tvennar dyr
með stuttu millibili, aðrar aftur
eftir inn i skipstjóraklefann, en
hinar andspænis stigaganginum
inn i svefnklefann. Skrifborð var
D. OWEN.
í fremri hluta svefnklefans rétt
við dyrnar, svo að sá, sem sat við
það, gat séð inn í skipstjóraklef-
ann með því að líta um öxl.
Stýrimaðurinn sökkti sér nú
niður í útreikninga sina, sem gófu
ekki þá útkomu, sem hann hafði
vænt, og komu ekki heim við stöðu
skipsins, og gaf hann þvi ekki
gaum ferðum skipstjórans. Þegar
hann svo hafði lokið útreikning-
unum, kallaði hann án þess að
líta við: „Ég hef reiknað lengdar-
og breiddargráðu þannig. Getur
það verið rétt? Hverjar eru þínar
niðurstöður, herra?“
Er hann fékk ekkert svar, end-
urtók hann spuminguna og leit
um öxl sér og þóttist sjá skipstjór-
ann önnum kafinn við að skrifa á
spjald sitt. En enginn svaraði enn.
Hann stóð þá á fætur, og þegar
hann kom að dymm skipstjóra-
klefans, leit sá upp, sem hann