Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 12

Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 12
ÍO DULD hafði í misgripum haldið vera skipstj órann, og varð hann nú furðu lostinn, er í ljós kom andlit algerlega ókunnugs manns. Bruce var enginn hugleysingi, en honum var nóg boðið, þegar hann mætti hinum einbeittu aug- rnn, sem horfðu beint á hann i alvöruþögn, og hann varð þess vís að þar var maður, sem hann hafði aldrei áður séð, og í stað þess að staldra við til að bera upp spum- inguna við þennan að því, er virt- ist, óboðna gest þaut hann upp á þilfar í augljósri æsingu, sem skip- stjórinn veitti þegar athygli. „Hvað er þetta, herra Bruce?“ sagði hann. „Hvað í ósköpunum gengur að þér?“ ,,Hvað að mér gengur, herra? Hver situr við skrifborðið þitt?“ „Enginn að því er ég bezt veit“. „En það er einhver þar, herra. Það er ókunnugur maður“. „Ókunnugur maður? Hvað er þetta, maður? Þig hlýtur að dreyma. Þú hefur eflaust séð hryt- ann þar eða annan stýrimann. Hverjir aðrir hefðu vogað sér þangað niður án fyrirskipana?“ „En, herra, hann sat í hæginda- stólnum þíniun beint á móti dyr- unum og var að skrifa á spjaldið þitt, Svo leit hann upp fyrir aug- unum á mér, og hafi ég nokkum tíma séð mann skýrt og greinilega í þessum heimi, þá sá ég hann“. „Hann. Hvern?“ „Það má Guð vita, herra. Ég veit það ekki. Ég sá mann, sem ég hafði aldrei séð fyrr á ævi minni“. „Þú hlýtur að vera að tapa vit- inu, herra Bruce. Ókunnugur mað- ur, og við höfum verið fast að sex vikum í hafi“. ,,Það veit ég, herra. En samt sá ég hann“. „Farðu niður og gáðu að, hver er þar“. Bmce hikaði: „Ég hef aldrei trúað á drauga“, sagði hann, „en ef satt skal segja, yildi ég helzt ekki mæta þessu einn rníns liðs“. „Farðu maður. Farðu niður taf- arlaust, og gerðu þig ekki að fífli fyrir skipshöfninni“. „Ég vona, að þú hafir alltaf reynt mig fúsastan til að gera það, sem hefur verið skynsamlegt", svaraði Bmce og skipti litum, „en ef þér stendur á sama, herra, vildi ég helzt, að við fæmm báðir tveir“. Skipstjórinn gekk niður stigann og stýrimaðurinn á eftir. Enginn var í klefanum. Þeir athuguðu svefnklefann, og enginn var þar finnanlegur. „Jæja, herra Bruce", sagði skip-

x

Duld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.