Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 17
15
„STÍRIÐ I NORÐ-VESTUR"
bjarga skipbrotsmönnunum frá
þeim örlögum, sem virtust óum-
flýjanleg.
* * *
Frásögn þessi var mér flutt
(s’egir söguritarinn)'- af J. S.
Clarke skipstjóra á skonnortunni
Júlíu Hallock, en liann hafði sög-
una beint frá Bruce sjálfum. Ég
spurði Clarke skipstjóra, livort
hann þekkti Bruce vel og hvers
konar maður hann væri.
„Ég hef aldrei á ævi minni
hitt áreiðanlegri og heiðarlegri
mann“, svaraði hann. „Við vorum
eins samrýndir og bræður, og
tveir menn geta ekki verið saman
innilokaðir í sautján mánuði í
sama skipinu án þess að komast
að því, hvort þeir geti treyst orð-
um hvors annar. Hann talaði allt-
af um þessa atburði með lotning-
arfullum orðum, og það var eins
og þeir hefðu fært hann nær Guði
og öðrrnn heimi. Ég gæti lagt líf
mitt að veði fyrir þvi, að það var
engin lygi, sem hann sagði mér“.
Helgi Sveinsson þýddi.
§—□—§
Föstudagur.
Fullyrt er, að fyrr á tímum hafi sjómerm yfirleitt haft ótrú á bvi
að leggja í sjóferðir á föstudögum. Hvort svo er ennþá vitum við ekki.
Sagt er, að Kólumbus hafi lagt upp í hina miklu sjóferð sina til Nýja
Heimsins á föstudegi. Á 17. öld var þessi hjátrú mjög útbreidd meðal
sjómanna á brezka flotanum. Þeir voru svo tregir að sigla á föstu-
dögum, að flotamálaráðuneytið sá sér ekki annað fært en að reyna að
kveða þessa hjátrú niður. Það ákvað að láta smíða skip, og var kjölur-
inn að því lagður á föstudegi. Því var hleypt af stokkunum á föstu-
degi og nefnt Friday (föstudagur). Ráðinn var skipstjóri á skipið og
hét hann Friday. Skipið lagði úr höfn á föstudegi, enda þótt skipshöfn-
in væri óánægð og ferðin leggðist illa í menn. Vinir og vandamenn
skipverja komu niður að höfninni til að kveðja þá og horfa á Friday
láta úr höfn. Horft var á eftir skipinu, unz það hvarf sjónum út við
sjóndeildarhringinn — og það sást aldrei frarnar. Það fórst í hafi með
allri áhöfn.
★—
Margir munu kannast við sögu Robert Louis Stevensons: Dr. Jekyll
and Mr. Hyde, sem til er í íslenzkri þýðingu. Færri munu vita það,
að efni sögunnar er draumur, sem Stevenson dreymdi.