Duld - 01.12.1954, Síða 21

Duld - 01.12.1954, Síða 21
HVAÐ VAR ÞARNA AÐ GERAST? VAR ÞARNA EINHVER ENSKUR „GENTLEMAÐUR“ ENN AÐ BIÐJA FYRIR SÉR? OG NAUT ÉG FYRIRBÆNA HANS? ,KROj3j5INN HELQF HEILAGUR GRIPUR í EIGU MINNI. Kafli úr óprentaðri œvisögu OSCARS CLAUSEN. FyRIR RÚMUM 30 ÁRUM þurfti ein vinkona miín á aSstoð minni að halda, og var mér á- nægja að því að láta henni hana í té. Við vorum æskuvinir, en hún hafði horfið af æskustöðvunum og fluzt til Englands og dvalið þar 2 áratugi, hjá ættfólki sínu. Nú hafði gamla ættfólkið hennar dáið og hún erft eftir það talsvert af lausafé, sem hafði verið sent hing- að til Reykjavikur. Vinkona mín átti nóg af góðum innanstokks- mimum í búi föður síns, og vildi því koma erfðafénu í peninga, og til þessara hluta þótti henni og skyldfólki hennar ég vera til val- inn. Hún hað mig því um að hjálpa sér með þetta og tók ég það að mér og framkvæmdi eftir beztu getu. — Þetta tókst — svo vel, að þegar kassinn var gerður upp, hafði minni góðu æskuvinkonu á- skotnast helmingi meira fé fyrir lausaféð, en áætlað var í byrjun. Nú vildi hún endilega borga mér fyrirhöfn mína í peningum, en ég neitaði að taka við nokkrum eyri, þar sem ég hafði tekið þetta að mér sakir gamallar vináttu. Þá vildi hún gefa mér gamla silf- urskál, en ég neitaði hexmi. Ég hafði ekkert með hana að gjöra. Loks jöfnuðum við þessi viðskipti okkar í allri vinsemd þannig, að ég þáði að gjöf frá vinkonu minni, lítið krossmark, sem ég á enn, og hefi ekki hugsað mér að láta fara á neinn flæking. Krossmarkið er handmálað með ljósgrænum vatnslitum á gulan pappír. Utan um krossinn vefja sig mjallhvitar dala-liljur, sem vaxa upp úr grænni þúfu, sem bindur krossinn við jörð. — Þessi mynd er inurömmuð ií einfaldann

x

Duld

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.