Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 27

Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 27
ÖRLAGAVALDURINN það að verkum, að hann var um- setinn frá morgni til kvölds af ótal fólki, sem ýmist kom til að leita ráða hjá honum eða svala forvitni sinni. Orðstír hans barst um allt Alsace eins og vindgára á vatnsfleti. Hann var talinn hafa yfirnáttúrlega hæfileika til að lækna sjúka, en þó var þessi hæfi- leiki hans ekki nema brot af þeim hæfileikum, sem hann var talinn gæddur. Hann var talinn þekkja leyndardóminn, að breyta óæðri málmum í gull, og dýrustu eðal- steinar urðu til d höndum hans úr hinum allra algengustu efn- um. Hann var talinn geta yngt menn upp, gefið farlama mönn- um æskuna aftur; og hann átti að þekkja hinn sanna elixír lífs- ins. Auk þess var hann skygn og gæddur spádómsgáfu, og hann gat lesið hugsanir manna eins auð- veldlega og unnt er að sjá geð- brigði á andlitum manna. Hann hafði svo gífurlegt vald á þeirri list, sem Mesmer*) hafði opinber- *) FRIEDRICH ANTON MESMER er höfundur kenningarinnar um hið svo- nefnda dýrseglumagn. Hann uppgötvaði mátt dáleiðslunnar, sem fyrst framan af var kölluð Mesmerismi. Mesmer vakti mikla athygli á sér í Paris fyrir dá- leiðslulækningar. Hann fæddist 1733 í Þýzkalandi, en andaðist í Meersburg, Baden, 1815, gleymdur og frægðarlaus. 23 að undrandi mannfólkinu, að hann var talinn geta náð tökum á sálum manna. Og hann sýndi það áþreifanlega, hversu langt Mesmer var frá því að skiija upp- sprettu þeirra afla til hlýtar, sem hann hafði af tilviljun fundið. 1 fáum orðum sagt, Cagliostro greifi, sem enginn vissi nein deili á né hvaðan hann var kominn, var tal- inn guðlegum gáfum gæddur. Hinn háttsetti aðalsmaður, hans hágöfgi Prins de Rohans, kardí- náli, sem hafði konunglegra blóð í æðum en konungurinn sjálfur, því að hann gat rakið ætt sína til allra þeirra konunga, er setið höfðu á veldisstóli Frakklands, hafði fengið sögusagnir ran öll þessi undur og furðuverk, og hjá honum vaknaði löngun til þess að kynnast þessu af eigin reynd. Hann hafði raunar alla tíð haft brennandi áhuga á alkemíu, grasa- fræði, stjörnuspeki og dulrænum fræðum almennt, svo að í þessum málum var hann frjálslyndur og hleypidómalaus. Hann leit svo á, að væri Cagliostro sannur hæfi- leikamaður, en ekki svikahrappur, eins og fjölmargir voru i Frakk- landi i þann tíð, þá mundi hann geta leyst úr ýmsum ráðgátum, sem hans hágöfgi hafði glímt við árangurslaust. En svo bárust hon-

x

Duld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.