Duld


Duld - 01.12.1954, Qupperneq 28

Duld - 01.12.1954, Qupperneq 28
26 DULD um til eyrna hin undarlegu orð, sem greifinn hafði látið sér um munn fara á torginu i Strassbourg og þau riðu baggamuninn. Cagliostro greifi hafði farið út kvöld eitt til þess að fá sér frískt loft. Þjónn hans, sem var grann- ur maður, dökkur á hár en fölur yfirlitum, og bar hið kynlega nafn Abdon, gekk í humátt á eftir hon- um ií hæfilegri fjarlægð. tJtlit greifans bar vott um það, að hann væri á bezta aldri, milli þrítugs og fertugs. Hann var meðalmað- ur á hæð, þrekvaxinn og krafta- legur. Fas hans allt var fyrir- mannlegt, og hið velmótaða höfuð hans sat tígulega á stæltum herð- um. Klæðaburður hans var áber- andi íburðarmikill. Hann var klæddur blárnn, gullbrydduðum frakka, og hann bar sverð við hlið. Hann hafði rauðhælaða skó á fótrnn með sporum, sem settir voru dýrum steinum. Gimsteinar glóðu í knipplingaslifsi þvi, er féll í fellingum niður á bringu hans, og rúbinsteinar glitruðu í spenn- unni, sem hélt hvítu fjöðrinni i hattinum hans á la musquetaire. Allir þeir, sem þekktu hann, og allir þeir, sem skilið hafa eftir sig ritaðar heimildir um hann, eru sammála um, að fáir hafi mátt standast hið dularfulla og seið- magnaða augnaráð hans. Hvar sem hann fór, veittu menn honum athygli og slóust jafnvel í fylgd með honum, í hæfilegri fjar- lægð. Þess vegna hafði hann hóp af forvitnu tfólki á hælum sér, og það var engan veginn óalgengt. En hann virtist sjálfur algerlega blindur fyrir þeirri athygli, sem hann vakti á sjálfum sér. En svo var það, að hann nam staðar andspænis myndinni af Kristi á krossinum í hinu opna helgiskríni á torginu í Strassbom'g. Hann hallaði sér fram á hinn gimsteinum prýdda göngustaf sinn, sem var úr dýrum íbenviði, og þannig stóð hann nokkur augnablik í djúpum þönkum. „Það er furðulegt, Abdon“, mælti hann við þjón sinn, sem stóð fyrir aftan hann, „að maður, sem aldrei hefur séð Hann, skuli hafa getað mótað andlitsdrætti Hans svona nákvæmlega". Þessi orð hans fólu í sér ákveðna ábend- ingu, sem vakti hrollkennda til- finningu á brjóstum fólksins, sem stóð álengdar í lotningarfullri þögn. Eftir alllanga þögn varpaði Cagliostro öndinni og tók aftur til orða: „Manstu eftir kvöldinu í Jerúsalem, þegar Hann var kross- festur?“

x

Duld

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.