Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 30

Duld - 01.12.1954, Blaðsíða 30
28 DULD fór að heimsækja þennan furðu- verka mann í Strasbourg, eins og hver annar almúgamaður. Og hann gerði sér að góðu að bíða í troðfullu biðherberginu ásamt de Planta, þar til röðin kæmi að hon- um, en húsráðandi hélt fast við þá reglu, að gera engan mannamun. Hvernig svo sem þær hugmynd- ir kunna að hafa verið. sem kardí- nálinn gerði sér um Cagliostro greifa, þá voru þær jafnskjótt roknar út í veður og vind þegar hann kom í návist greifans. Undir hinu magnþrungna og skerandi augnaráði þessa manns, fór ein- hver geigur um kardínálann, svo að hann varð að líta undan i auð- mýkt. Þegar hann var seztur á stól, sem honum var boðið, varð hann gramur með sjálfum sér yf- ir því, að hann, er horft gat í augu konunga sem jafningi þeirra, skyldi svona auðveldlega gefa öðr- um færi á, að horfa niður á sig. Hann leit aftur framan í greif- ann, staðráðinn í þvii, að láta hann lúta augnaráði sínu. En hann varð þess brátt var, að það var Cagli- ostro, sem hafði yfirhöndina, en hann stóð fyrir framan hann í sömu sporum og talaði með dimmri, hljómlausri rödd á máli, sem bar örlítinn vott þess að vera franska. Hann fann, að hann var algerlega á valdi þessara glitrandi augna, sem virtust ýmist stækka eða minnka og héldu honrnn ríg- bundnum. Það fór smám saman að færast um hann einhver óraun- veruleikakennd. Það var þvií lík- ast sem allur hans viljakraftur væri að engu orðinn. Það var eins og öll skilningarvit hans væru svæfð til skilyrðislausrar hlýðni af hinu sefjandi hljómfalli radd- arinnar, sem talaði til hans á máli, sem var sambland af ítölsku og frönsku. „Nú, þegar ég virði yður fyrir mér, verður mér ljóst hvaðan þrá- kelkni yðar er sprottin, Við höf- um hitzt áður“. Kardínálinn, sem var ekki með sjálfum sér, gat ekki rifjað upp neinar endurminningar um þetta. „Þess minnist ég ekki“, svaraði hann. „Hvernig má það vera? Á því tímabili, sem síðan er liðið, hafið þér dáið margoft og fæðst aftur. Minningin, er leynist í fylgsnum sálar yðar, kemst ekki upp i vit- undina sökum allra þeirra mynda holdsiris, er hún hefur á sig tekið, með öllum þeim löstum, ástríðum og girndum, sem sérhver þeirra er undirorpin. Það var í Antiochiu fyrir sextán öldum. Þér voruð rómverskur skattlandsstjóri, en ég

x

Duld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.