Duld - 01.12.1954, Page 32

Duld - 01.12.1954, Page 32
30 DULD mundi hafa borið á borð fyrir yður ávextina af lífsins tré og gert yður ódauðlegan eins og ég er sjálfur. En þér dróguð dár að mér af þrákelknisfullum hroka. Þess vegna snéri ég baki við yð- ur og lét yður einan í helsi yðar likamlegu takmarkana". Kardínálinn var orðinn fölur sem nár, og starði sljóum augum fram fyrir sig. Að lokum reyndi hann að grípa fram í fyrir greif- anum. Hann varð að beita öllu afli sínu til þess að brjótast út úr þeim vef, sem skilningarvit hans voru flækt í, og að ná tökum á talfærum sínum, eins og stundum kemur fyrir í draumi. En hann hafði orðið fyrir hugsýn, og hann varð að láta hana í ljós, hvað sem það kostaði. „Nú þekki ég þig“, hrópaði hann. „Þú ert Gyðingurinn gang- andi, hinn fordæmdi skóbætari frá Jerúsalem, sem atyrti og skirpti á drottinn vom og frelsara, og sem dæmdur er til að eigra um jörðina, þangað til. Hann kemur aftur“. Veikt bros færðist eins og skuggi yfir hið ólympska og rólega and lit Cagliostros. Hann horfði á pre- látann með hryggð í augum. „Sannlega endurtekur sagan sig! Þetta sama sögðuð þér fyrir fimmtán hundruð árum. Þegar vitsmunir yðar standa magnþrota gagnvart sönnununum um hið ó- skiljanlega langlífi mitt, þá flýja þeir brott frá sannleikanum og grípa til gamallar munnmæla- sögu til skýringar. En yður skjátl- ast, nú sem fyrr. Ég er ekki Gyð- ingurinn gangandi. Ég er eldri en Cartaphilus, eldri en Jerúsalem, því að ég var með Salomon við byggingu musterisins. Og ég mun verða langlífari en þetta tvennt. Því að ég hef étið ávexti af lífs- ins tré. Minn elixer vitae (lífsel- ixer) er búinn til úr ávöxtum þess. Gagnvart mér er tilveran ekki eins og perlur á þræði, ekki eins og samhangandi brot úr vitundar- augnablikum í eilífðinni, og ver- öldin birtist mér ekki eins og tví- ræð og skammvinn sjónhending. Gagnvart mér er tilveran sem einn óslitinn straumur, sem er sýnilegur allt !frá upptökum hans og til hins takmarkalausa eilífðar- hafs, er hann rennur í og samlag- ast. Gagnvart mér er þessi sjón- hvenfing, sem menn kalla tíma, ekki til. Því að ég er Sá, sem Er“. CagHostro mætli seinustu orðin með þrumandi rödd, en lækkaði sig svo niður í eðHlega tónhæð. „En það, að þér segið við mig nú hið sama og þér sögðuð við

x

Duld

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.