Duld - 01.12.1954, Síða 38

Duld - 01.12.1954, Síða 38
36 DULD nægilega áberandi. Enda þótt klæðnaður hans væri full áburðar- mikill, — en hann var í áberandi gullbrydduðum jakka úr svörtu satíni, og rauðu vesti innan undir, — skreytti sig um of með eðal- steinum, og þótt setja mætti út á borðsiði hans, þá var hann aldrei afkáralegur eða hversdagslegur í fasi, þvi að á fari hans var eitthvað konunglegt öryggi. Þegar prinsinn sá, hvilik töfra- áhrif þessi maður hafði á þá, sem umhverfis hann voru, og þegar hann varð fyrir augnatilliti hans i eitt eða tvö skipti, og stóðst það ekki, gerði hann sér Ijóst, að átök- in, sem framundan væru, mundu reyna óspart á krafta hans. Þrátt fyrir þetta, lagði hann óragur til orrustu við frænda sinn í hinni miklu bókhlöðu, en kardí- nálinn fylgdi honum þangað að kvöldverði loknum. Hans hágöfgi settist við hið gullslegna skrifborð sitt, en frændinn settist á hægindastól með háu baki, og rauðu áklæði, en i það var saumaður stafurinn R með kórónu. Monsieur Guémenée var á þri- tugsaldri. Hann var grannur og hávaxinn eins og frændi hans. Hann líktist kardinálanum i and- liti, en hann skorti hið blíðlega og hjartnæma viðmót kardínálans. Hann hallaði sér aftur á bak i stólnum, krosslagði fæturna, og snéri sér rakleitt að efninu. er kominn Monseigneur, til þess að ræða við yður um þenn- an mann, sem kallar sig Cagli- ostro greifa“. Kardínálinn horfði ljúfmann- lega á frænda sinn. „Hvað mundir þú vilja kalla hann, Charles?“ „Ósvífirm þorpara“, svaraði hann blátt áfram. „Óbreyttan svindilbraskara og skottulækni, sem ætti hvergi að vera nema i Point Neuf; hann er bragðarefur, sem hefur yðar hágöfgi að leik- soppi. Hvað hann heitir réttu nafni, hefur mér ekki ennþá tekist að fá vitneskju um“. Það bar ekki á neinum geð- brigðum á hinu fríða andliti kardínálans. En það var sársauka- svipm- í augum hans, „Ég get tek- ið því með glöðu geði, að vera leiksoppur Cagliostros greifa; ég get jafnvel verið þakklátur fyrir það. Og þannig, kæri Charles, ætti einnig viðhorlf þitt að vera, þegar þess er gætt, hversu mikið við munum eiga honum upp að unna, ef að líkum lætur“. „Höh! Og hversu mikið skyldi hann mega þakka yður, um það

x

Duld

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.