Duld - 01.12.1954, Page 49

Duld - 01.12.1954, Page 49
ÖRLAGAVALDURINN 47 enée stóð upp úr stólnum og gekk inn til frænda siíns. Það fór um hann skelfingar- kennd, en þó annars eðlis en sú fyrri. Hjartað hamaðist i brjósti hans, honum fannst hann ætla að kafna. Hann stóð andspænis ein- hverjum öflum, sem hann þekkti ekki. Og hann var sleginn nýrri ógn, þegar dómgreind hans fór að vakna. Hann var leiksoppur einhverra blekkmgarafla. Það var hægt að þvo hendurnar; það var hægt að færa klukkuvísinn aftur á bak, en það var ekki unnt að lífga mann frá dauða. Það var eins og Cagliostro læsi hugrenningar hans, hann gekk þvert yfir gólfið að lágu dyrunum, og opnaði þær og mælti: „Yðar hágöfgi, ég held að þér munuð nú sannfærast um, að Monsieur de Guémenée sé búinn að koma auga á villu sín.s vegar og það óréttlæti, sem hann hefur gert mér“. Innan úr herberginu barst hljóð, eins og skrjáf í silkiklæðum, og fyrir augum Monsieur de Guém- enée, sem sat agndofa í stólnum og með galopin augun af skelf- ingu, birtist kardinálinn í dyrun- um og stóð þar kyrr. Hans há- göfgi var með rólegu yfirbragði, og jafn mildur og ástúðlegur og hann átti vanda til. Ánægjubros lék um varir hans. „Ég vissi, að honum mundi ekki verða skotaskuld úr því að sann- færa þig, Charles, og það gleður mig líka. Menn, sem hafa sama blóð í æðum, verða að halda sam- an d öllu því, sem mestu máli skiptir“. Hann lagði sína nettu hönd á öxl Cagliostros. „Þú munt sjá það, Charles, að hans hátign er erkióvinur alls óheiðarleika og fávizku. Treystu honum, eins og ég, og hjá því fer ekki, að það verði þér til góðs“. ,,f’.g held, að hann hafi þegar sannanir fyrir því“, mælti Cagli- ostro þýðlega. Monsieur de Guémenée, sem stóð hálfgert á öndinni, svaraði engu. Hann spurði .sjálfan sig, hvort hann hafi aðeins verið að dreyma, eða hvort hann væri enn- þá að dreyma; eða hafði eitthvað óskiljanlegt kraftaverk átt sér stað. En þegar kardínálinn, frændi hans, gekk inn í herbergið, þá mundi hann eftir þeirri lotningu, sem sldkum tignarmanni bar, og hann reis upp úr stólnum riðandi á fótunum. Mörgum árum síðar, þegar töfrabrögðin voru búin að koma Cagliostro í klærnar á Rannsókn-

x

Duld

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Duld
https://timarit.is/publication/1587

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.