Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Já við tollfrelsi Nei við ESB Nánar á xd.is Alexander Kristjánsson Guðni Einarsson Eldgosið í Geldingadölum hefur nú staðið í sex vikur og engin merki eru um að farið sé að draga úr eldvirkni. Magnús Tumi Guðmundsson jarð- eðlisfræðingur segir að hraun- rennslið í gosinu hafi verið merki- lega stöðugt allan þann tíma. Meðalrennsli frá því gos hófst er um 5,6 rúmmetrar á sekúndu og rennsl- ið hefur aldrei vikið meira en 40% frá því. Þótt aðeins sé einn gígur gossins virkur af þeim sex sem eru á svæð- inu er það ekki til marks um það að farið sé að hægja á kvikustreymi, segir hann. „Það eru engin merki um að kvika sé að safnast saman í jarðskorpunni,“ útskýrir Magnús Tumi. Þess í stað streymi hún beint upp á yfirborð. Hinir ólíku gígar sem myndast hafa eru aðeins blátopp- urinn á jarðskorpunni, en undir niðri er rennslið nokkuð stöðugt. Því sé ekki víst að hinir gígarnir séu kuln- aðir þótt ekkert streymi úr þeim núna. Magnús líkir streyminu við vatn sem flæðir út um götótta garð- slöngu. Sé lokað fyrir eitt gat flæði bara meira vatn út um hin götin. Magnús Tumi segir að gos geti hætt snögglega ef einhver hreyfing í jarðskorpunni veldur þrýstings- breytingum. Líklegra sé þó að dragi hægt og rólega úr hraunflæðinu. Segir hann nærtækast að líta til Surtseyjargossins, sem stóð í þrjú og hálft ár. Kvikuflæðið þar var að vísu mun meira í upphafi en í gosinu við Fagradalsfjall, en síðar fór að draga úr flæðinu mjög rólega þar til því lauk loks í júní 1967. Fagrahraun eða Fagradalshraun? Hraunið þekur orðið um 1,13 fer- kílómetra og er rúmmál þess um 18,5 milljónir rúmmetra. Grindavíkurbær hefur lagt til að hið nýja hraun fái annaðhvort nafnið Fagrahraun eða Fagradalshraun og voru þau nöfn send örnefnanefnd til umsagnar. Nefndin gerir ekki at- hugasemd við nöfnin og telur hvort tveggja ganga. Fjallað verður um málið á fundi bæjarráðs Grindavíkur í næstu viku og endanleg ákvörðun um hvort nafnið verður fyrir valinu væntan- lega tekin á fundi bæjarstjórnar undir lok mánaðar að höfðu samráði við eigendur jarðarinnar Hrauns, en Geldingadalir og Fagradalsfjall eru í landi hennar. Hraunrennsli merkilega stöðugt - Jarðeðlisfræðingur segir líklegast að gosvirkni dragist saman hægt og rólega þegar þar að kemur 100m 74,5m Hæð kvikustróka Samanburður á stærð hraunsins Gígur 5a Gígur 5b (lítil virkni) 124m 40-45m 3 21 5 6 4 1. Gígrimi 2. Bakflæði (kleprahraun sem rennur til baka ofan í gíginn) 3. Kvikustrókur 4. Hrauná 5. Gjóskufall 6. Skeljaskorpu helluhraun 42m Kvikustrókarnir úr gíg 5a í Geldingadölum hafa verið 50-100metra háir að jafnaði og þeir hæstu teygt sig í upp undir 250metra hæð Til samanburðar þá er Sívaliturn í Kaupmannahöfn um 42metra hár og Hallgrímskirkja 74,5metrar á hæð HallgrímskirkjaSívaliturn Nokkur hugtök og stærðir Heimild: Þorvaldur Þórðarson prófessor 26. apríl var flatarmál hraunsins orðið um 1,13 ferkílómetrarsem er á við meira en 160 Laugardalsvelli Hraunið er orðið um 18,5 milljónirrúmmetra og myndi því fylla 18.500 Laugardalslaugar Hraunrennslið í Geldingadölum er um 6-7 rúmmetrar ásekúndu sem eru milli 25 og 30 vörubílshlöss á mínútu „Þetta hefur verið góður tími,“ segir Auður Jónsdóttir sem síðdegis í gær stimplaði sig út á Morgunblaðinu eftir að hafa starfað þar í í 41 ár, 11 mánuði og 16 daga. Langur starfs- ferill er að baki. „Í öll þessi ár hefur mér liðið afar vel á þessum góða vinnustað sem hefur alltaf reynst mér vel. Ég tel mig líka heppna að hafa fengið að vinna með frábærum hópi starfs- manna. Hef líka haft einstaka yfir- menn. Ég kveð bæði þakklát og glöð. Í öll þessi ár hefur aldrei verið dauð stund í vinnunni, sem gefið hefur starfinu mikið gildi,“ segir Auður sem lengi sinnti símsvörun. Hún var einnig í ýmsum öðrum störfum, svo sem á myndasafni, sá um dagskrá útvarps og sjónvarps, minningar- greinar og var um skeið ritari frétta- stjóra. Allt fram streymir endalaust og nú tekur eitthvað nýtt við, sem Auð- ur segist hreinlega ekki vita hvað verði. „Mér finnst ég enn ekki vera hætt á Mogganum, en nú bara held ég út í vorið og geri eitthvað skemmtilegt. Ég hef að mörgu að hverfa við starfslokin og kvíði ekki neinu. Næsta mál á dagskrá núna verður til dæmis að kaupa og koma mér fyrir í nýrri íbúð,“ segir Auður Jónsdóttir. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Valdís Takk Auður Jónsdóttir stimplar sig út á Mogganum í síðasta sinn. Kveður Morgun- blaðið eftir 42 ár - Er þakklát og glöð, segir Auður Talsverðar annir voru í Vínbúðum á höfuð- borgarsvæðinu í gær. Í dag er 1. maí, frídag- ur verkalýðsins, og því er lokað í Vínbúð- unum. Því hugsuðu margir sér gott til glóðarinnar í gær en um leið þurftu þeir að sætta sig við að bíða í biðröð. Við Álfrúnu í Hafnarfirði gekk þó allt hratt og örugglega fyrir sig og fólk þurfti ekki að bíða lengi. Morgunblaðið/Eggert Raðir mynduðust fyrir utan Vínbúðir síðdegis í gær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.