Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 38
38 UMRÆÐAN Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Fermt verður í athöfninni. Prestur er Jóhanna Gísladóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Söngnemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Fermingarguðsþjónust- ur sunnudaginn 2. maí. kl. 11, 12.30 og 14. Sr. Þór Hauksson og sr. Petrína Mjöll Jóhann- esdóttir þjóna fyrir altari. Organisti Krizstina Kalló Szklenár. Félagar úr kirkjukórnum leiða safnaðarsöng. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Athugið nýjan og breyttan messutíma! Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Jóhönnu Maríu Eyjólfsdóttur djákna. Kór Ás- kirkju syngur, organisti er Bjartur Logi Guðna- son. Kaffi og með því í Ási á eftir. Heimilt er að 100 manns sæki guðsþjónustur. Grímuskylda er í Áskirkju við athafnir. Guðs- þjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13. BESSASTAÐAKIRKJA | Íhugunarganga um Bessastaðanesið. Gangan hefst kl. 17 við Bessastaðakirkju með bænastund og kynn- ingu á því hvernig íhugunarganga fer fram. Við göngum 5 kílómetra hring og endum aftur við kirkjuna. BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Fé- lagar úr Kór Breiðholtskirkju syngja undir stjórn Arnar Magnússonar organista. Alþjóðlegi söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl. 14. Prestur er Toshiki Toma. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa sunnudag kl. 11. Sóley Adda, Jónas Þórir og prestarnir leiða stundina. Guðsþjónusta kl. 13. Kór Bústaðakirkju og kantor Jónas Þórir annast tónlist. Messuþjón- ar og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir annast þjónustu. DÓMKIRKJAN | Prestsvígsla kl. 11. Agnes M. Sigurðardóttir vígir Snævar Jón Andrésson til prests. Vígsluvottar eru sr. Arnór Bjarki Blomsterberg, sr. Hans Guðberg Alfreðsson, sr. Henning Emil Magnússon, sr. Sigrún Ósk- arsdóttir. Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason lýsir vígslu. Sr. Elínborg Sturludóttir þjónar fyrir alt- ari. Kári Þormar er dómorganisti og Dómkór- inn syngur undir hans stjórn. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar og predik- ar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Hulda Jónsdóttir syngur einsöng. Kaffisopi eftir stundina. Með- hjálpari er Helga Björg Gunnarsdóttir. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta 2. maí kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur leiðir stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni. Ferm- ingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta. GARÐAKIRKJA | Kyrrðar- og bænaguðsþjón- usta kl. 14. Sr. Henning Emil Magnússon leið- ir stundina. Jóhann Baldvinsson og félagar úr kór Vídalínskirkju sjá um tónlistina. Róleg íhugunarstund þar sem fólk getur borið fram bænir sínar. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónustan kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hákon Leifsson. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Sunnudagaskólinn er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón með honum hafa sr. Sigurður Grétar Halldórsson, Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undir- leikari er Stefán Birkisson. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. María Guðrúnar Ágústsdóttir þjónar ásamt Ástu Haraldsdóttur kantor, félögum úr Kirkju- kór Grensáskirkju og messuþjónum. Þriðju- dagur: Kyrrðarstund kl. 12. Fimmtudagur: Nú- vitundarstund kl. 18.15-18.45, einnig á netinu. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferming- arguðsþjónusta sunnudaginn 2. maí kl. 10.30. Prestur er Leifur Ragnar Jónsson sem þjónar og predikar fyrir altari. Organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syng- ur. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir og meðhjálpari er Guðný Aradóttir. HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messu- þjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Fé- lagar í Kordíu kór Háteiskirkju leiða messu- söng. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Hjúkrunarheimilið Skjól | Guðsþjónusta kl. 13. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Almennur söngur. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 20 sunnudag. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari, Arnór VIlbergsson er organisti og félagar úr kór Keflavíkurkirkju syngja. KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund kl. 11 í safnaðarheimilinu Borgum (skáhallt gegnt Gerðarsafni). Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, prédik- ar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópa- vogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. LANGHOLTSKIRKJA | Messa, sunnudaga- skóli og aðalsafnaðarfundur. Messa og sunnudagaskóli kl. 11, Guðbjörg Jóhannes- dóttir sóknarprestur þjónar, Marta og Pétur taka á móti börnunum í sunnudagaskólanum. Gradualekór Langholtskirkju syngur undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur og við und- irleik Magnúsar Ragnarssonar organista. Að- alsafnaðarfundur safnaðarins verður haldinn að messu lokinni. Hefðbundin aðalfundar- störf. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kammerkór Reykjavíkur annast tónlistarflutn- ing. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu á meðan. Mánudagur 3. maí. Kyrrðarkvöld kl. 20. Kirkj- an opnuð kl. 19.30. Sr. Hjalti Jón Sverrisson leiðir stundina. Fimmtudagur 6. maí. Opið hús í Áskirkju. Helgistund, léttur hádegisverður og samvera. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Næsta sunnu- dag, 2. maí, verður sunnudagaskólinn með hefðbundum hætti kl. 11. Regína og Svenni sjá um stundina ásamt sr. Guðna Má Harð- arsyni. Um kvöldið kl. 20 verður opin guðs- þjónusta þar sem Óskar Einarsson stýrir Kór Lindakirkju og sr. Guðni Már þjónar. NESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudaga- skóli kl. 11. Guðsþjónustan er í kirkjunni, fé- lagar úr Kór Neskirkju leiða söng með Stein- grími Þórhallssyni organista. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Sunnudaga- skólinn er í safnaðarheimili og er gengið beint inn í það. Umsjón hafa Kristrún Guðmunds- dóttir og Hilda María Sigurðardóttir. Ari Agn- arsson leikur undir Gætt er að sóttvörnum. SELJAKIRKJA | Fermingarguðsþjónusta kl. 11, prestar kirkjunnar þjóna. Guðsþjónusta kl. 13, sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju syngur og Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgelið, messukaffi í lokin. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg- unn kl. 10. Magnús frater Eiríksson og guð- fræði hans. Sr. Eiríkur Jóhannsson talar. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan safnaðarsöng. Ritningar- lestra lesa þau Erna Kolbeins og Sigurður Júl- íus Grétarssson. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnu- dag kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarna- son. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa með fermingar- börnum kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar. Félagar úr kór Vídalínskirkju syngja, organisti er Jóhann Baldvinsson. Einnig syngja félagar úr Gospelkór Jóns Vídalíns við undirleiks Davíðs Sigurgeirssonar. Messunni verður streymt. Kl. 12. Netfundur í streymi með foreldrum fermingarbarna. Kl. 10. Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla og kl. 11 í Vídalínskirkju, ath. gengið inn um Safnaðar- heimili. Biblíusögur, brúðuleikhús og söngur. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Reyniskirkja Mark32net skrifborðsstóll Fjölstillanlegur skrifborðsstóll með netbaki og bólstraðri setu. Fjöldi áklæða í boði. VORTILBOÐ 30% afsláttur 68.957 kr. með örmum 60.255 kr. án arma Verð m. vsk. Sigurður Ingi Jó- hannsson samgöngu- ráðherra hyggst með pennastriki kafsigla íslenska farmenn sem fært hafa þjóðinni varninginn heim í öll- um veðrum N- Atlantshafsins, jafnt á friðar- sem stríðs- tímum. Frumvarp samgönguráðherra um alþjóðlega skipa- skrá gerir ráð fyrir því að störf á annað hundrað farmanna verði rústuð og færist úr landi til þess að „… tryggja vöruflutninga til og frá landinu“. Hvaðan ætli þessi rök- leysa komi, tryggja flutninga? Ís- lendingar vita að íslenskir sjómenn eru hinir bestu í heimi og tryggja vöruflutninga til og frá landinu. Ríkisstjórnin ætlar að koma á fé- lagslegum undirboðum og manna kaupskip okkar skipverjum með lögheimili landa þar sem verkalýðs- félög þvælast ekki fyrir. Það á að nýta neyð fólks í fátækum löndum til undirboða á Íslandi í gróðaskyni. Þeir ætla að taka vinnuna af far- mönnum fyrir þriðja heims fólk á 130 þúsund krónum á mánuði. Þeim finnast farmenn okkar sumsé vera með of há laun. Þeir ætla að manna íslensk kaupskip mönnum sem þekkja ekki válynd veður norðurslóða til að tryggja öryggi! Því verður ekki trúað að Alþingi samþykki þessa aðför að farmönn- um. Mótmæli ASÍ og FÍA Sjómannafélag Íslands hefur mótmælt og tekur undir mótmæli Alþýðusambands Íslands sem og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Um er að ræða augljós brot gegn mannréttindaákvæðum stjórn- arskrárinnar, 65., 74. og 75. greina, sem og ákvæðum laga nr. 97/1995, nr. 55/1980 og nr. 19/1979 og al- þjóðasamninga og alþjóðaréttar sem Ísland hefur skuldbundið sig til að fylgja. Peningaöflin og hand- bendi þeirra munu ekki láta staðar numið. Frumvarp ráðherra breytir íslenskum vinnumarkaði í grund- vallaratriðum. Það er að sjálfsögðu ekki hægt að samþykkja breytingar á lögum sem hafa í för með sér endalok heillar stétt- ar. Innan vébanda ASÍ eru 133 þúsund félagar og FÍA tæp- lega eitt þúsund sem hafa tekið höndum saman með sjómönn- um um að mótmæla þessari árás á íslenskt launafólk. Greinargerð með frumvarpinu er illa rökstudd og varhugavert for- dæmi sett án samtals við verka- lýðsfélög. Að segja að ríkisstjórnin „tryggi vöruflutninga“ til og frá landinu er sem blaut tuska framan í sjómenn. Íslenskir sjómenn hafa tryggt stykkjavöruflutninga til og frá Ís- landi í rúma öld frá því þjóðin tók forráð mála í eigin hendur. Það er óásættanlegt að á Íslandi gildi þriðja heims kjarasamningar með 130 þúsund króna mánaðarlaun til að þóknast skipafélögunum og auka arðgreiðslur hinna ríku. Nokkurs konar villta vesturs ástand skapast. Ég hef sagt að þetta sé gjörsamlega galið og stend við þau orð. Menn ættu að kynna sér kaup- skipaflota Dana og Norðmanna. Málið er ekki flókið. Norsk far- mannastétt er útdauð. Þegar Danir innleiddu sína alþjóðlegu skipaskrá gengu danskir sjómenn í land og upp landganginn röltu þriðja heims skipverjar. Ekki verður horft framhjá því að íslensk skip sem flytja stykkjavöru til og frá landinu eru skráð í Færeyjum. Nýlega fjallaði Kringkast Færeyinga um skráningu namibískra áhafna Sam- herja í Færeyjum til þess að stinga skatti í eigin vasa og losna við skatta í Namibíu, einu fátækasta ríki heims. Hvað má segja um það? og Eimskip varð að biðjast afsök- unar á því að senda skip í brota- járn á Indlandi með tilheyrandi mannréttinda- og umhverfis- brotum. Alþýðufólk þvælist fyrir þessum greifum og efst á forgangs- lista nú er að svipta farmenn starfi sínu. Eimskip og Samskip fagna því að þurfa ekki að greiða íslensk laun sem þau kalla „takmarkandi“. Tækifæri felist í því fyrir sjómenn að fara á 130 þúsund króna mán- aðarlaun. Í ljósi umræðunnar í samfélaginu má gera ráð fyrir því að Samherji sem er með ráðandi hlut í Eimskip sé að pressa á að frumvarp þetta verði að veruleika. Þernurnar á Herjólfi Ráðherra kvartar undan karl- lægri sjómennsku og segir brýnt að jafna kynjahlutföll. Það er gott út af fyrir sig en þegar bæjarstýra Vestmannaeyja pönkaðist á þern- um Herjólfs sumarið 2020 af því þær væru á of háum launum, þá ákölluðu þernurnar ráðherrann um hjálp því bæjaryfirvöld í Eyjum voru að nota eigur ríkisins; rík- isferjuna Herjólf til verkfallsbrota. Ráðherrann lét ekki svo lítið að svara þernunum. Ráðherrann og bæjarstýran með vel á þriðju millj- ón í laun á mánuði sáu ofsjónum yfir launum þernanna á Herjólfi. Finnst þér, kæri lesandi, orð og efndir fara saman? Ég bara spyr. Íslenskir pólitíkusar eru sagðir meðal hinna hæst launuðu í víðri veröld. Aðförin er ekki bara að farmönn- um heldur öllum launþegum í land- inu. ASÍ veit af hættunni og flug- menn vita að næst er það flugbransinn þegar Icelandair bankar á dyr ráðherra. Ég tek undir með Drífu Snædal, forseta ASÍ, að frumvarp ráðherra sé launafólki hættulegt. Skilaboð ráð- herra eru skýr. Á Íslandi er fé- lagslegum undirboðum fagnað. Alþingi verður að hafna þessari aðför samgönguráðherra að fólkinu í landinu. Á að kafsigla farmenn? Eftir Berg Þorkelsson » Íslendingar vita að íslenskir sjómenn eru hinir bestu í heimi og tryggja vöruflutn- inga til og frá landinu. Bergur Þorkelsson Höfundur er formaður Sjómannafélags Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.