Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Tjarnargata 11, 245 Suðurnesjabæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Mikið endurnýjuð 4ra herbergja neðri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr í Sandgerði. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 32.000.000 141,7 m2 ATH. Vantar allar tegundir af eignum á söluskrá. H jörvar Steinn Grétarsson, 27 ára, varð í gær skák- meistari Íslands í fyrsta sinn er hann lagði Sig- urbjörn Björnsson að velli í spenn- andi lokaumferð. Þetta var fimmta sigurskák Hjörvars í röð á mótinu en helsti keppinautur hans, Jóhann Hjartarson, vann einnig sína skák. Framan af virtist Jóhann ætla að stinga aðra keppendur af því að hann var með fullt hús eftir þrjár umferðir og unnið tafl í þeirri fjórðu en andstæðingur hans, Björn Þor- finnsson, sneri taflinu sér í vil og vann. Í næstsíðustu umferð vann Bragi Þorfinnsson einnig Jóhann svo segja má að þeir bræður hafi átt stóran þátt í sigri Hjörvars. Vignir Vatnar Stefánsson, sem er 18 ára gamall, náði öðrum áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Hann tefldi vel en missti af jafntefli í skák- um sínum við Jóhann og Guðmund Kjartansson. Lokaniðurstaðan varð þessi: 1. Hjörvar Steinn Grétarsson 7 v. (af 9) 2. Jóhann Hjartarson 6½ 3 Guðmundur Kjartansson 6 v. 4. Bragi Þorfinnsson 5 ½ v. 5.-6. Vignir Vatnar Stefánsson og Helgi Áss Grétarsson 5 v. 7. Hannes Hlífar Stefánsson 4 v. 8. Björn Þorfinnsson 3½ v. 9. Sigurbjörn Björnsson 10. Alexander Oliver Mai ½ v. Bestu skák Íslandsmeistarans má hiklaust telja viðureign hans við Helga Áss Grétarsson í næstsíðustu umferð. Helgi tefldi fremur mein- laust afbrigði gegn Nimzo-indversku vörninni og áður en varði hrifsaði Hjörvar til sín frumkvæðið, öflugur peðsleikur hans setti Helga í mikinn vanda. Undir lokin gaf hann Helga Áss þó eitt tækifæri en tíminn var naumur og Helgi lét sér það úr greipum ganga: Skákþing Íslands 2021; 8. um- ferð: Helgi Áss Grétarsson – Hjörvar Steinn Grétarsson Nimzo-indversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 O-O 5. Bd2 b6 6. Rf3 Bb7 7. Bd3 d6 8. a3 Bxc3 9. Bxc3 Re4 10. Bxe4 Bxe4 11. d5 Rd7 12. O-O e5 13. He1 a5 14. f3 Bf5 15. e4 Bg6 16. g4? Reynir að hindra framrás f- peðsins sem eykst að afli fyrir vikið. Eftir 16. Rc2 er staðan í jafnvægi. 16. … h5 17. h3 Dh4 18. Kg2 Rc5 19. De2 hxg4 20. hxg4 - Sjá stöðumynd 1 - 20. … f5! Með hugmyndinni 21. exf5 Bxf5 22. gxf5 Hxf5 og hvítur ræður ekki við hótunina 23. … Hg5+. 21. Hh1 Dg5 22. Bd2 f4 23. Hh3 Rb3 24. Hd1 Kf7! 25. Kg1 Hh8 26. Dh2 Hh6! 27. Hxh6 gxh6 28. Rg2 h5 29. gxh5 Bxh5 30. Dh3 Rd4 31. Kf2 Hg8 32. Rxf4 exf4? Þótt einkennilegt sé þá er þessi leikur ónákvæmur. Best var 32. … Bxf3 með vinningsstöðu. 33. Bxf4 Dg2+ 34. Dxg2 Hxg2+ 35. Kxg2? Hér missir Helgi af góðu tæki- færi. Eftir 35. Kf1! rekja „vélarnar“ stöðuna í jafntefli: 35. … Bxf3 36. Hxd4 Kf6 37. Bd2 Ke5 38. Bc3 Hg4 39. Hd3+ Kxe4 40. Hd4+ Ke3 41. Hxg4 Bxg4 42. Bf6 og biskupinn læðist inn á d8 og uppskipti verða á nær öllum peðunum. 35. … Bxf3+ 36. Kd1 Bxd1 37. e5 Rf5 38. b4 a4 39. exd6 cxd6 40. Bg5 Bb3 - og hvítur gafst upp. Mótið fór fram við góðar aðstæður í samkomusal Siglingafélagsins Ým- is við Naustavör í Kópavogi. Aðal- skákstjóri var Ingibjörg Edda Birg- isdóttir, alþjóðlegur skákdómari. Ingvar Þ. Jóhannesson bar hitann og þungann af beinum útsendingum frá skákstað. Mikilvægt framlag þar sem ekki var gert ráð fyrir áhorf- endum á skákstað. Honum til halds og trausts við útsendingar voru Björn Ívar Karlsson og Arnar Ingi Njarðarson. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Hjörvar Steinn Grétarsson Íslands- meistari í fyrsta sinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íslandsmeistari Hjörvar Steinn Grétarsson við taflið á Kársnesinu. Stöðumynd 1. Alþingiskosningar í haust verða haldnar eftir einhverja mestu umbrotatíma lýðveld- issögunnar. Til þess að verjast heilsuógn höf- um við af illri nauðsyn lokað samfélaginu og gengið afar nærri borgaralegum rétt- indum fólks og frelsi þess til að ráða eigin lífsháttum. Það er óumdeilt að hér á landi hefur okkur gengið betur en víðast hvar annars staðar að halda veirunni í skefjum. Við höfum bitið á jaxlinn og staðið þétt saman. En ver- öldin stendur á krossgötum. Víða um heim hafa verið reistar hindranir og múrar, bæði áþreifanlegir og huglægir, og persónufrelsi á undir högg að sækja á æ fleiri vígstöðvum. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að berjast fyrir því að það samfélag sem rís upp eftir heimsfaraldurinn verði opið og frjálst, þar séu mann- réttindi fólks virt og allir hafi jöfn tækifæri. Um þetta verður m.a. kos- ið í haust. Við erum enn þá í miðri baráttu við heimsfaraldurinn þótt við sjáum nú til lands. Bólusetningar ganga hægt en örugglega og árang- urinn næstu vikur og mánuði mun eflaust hafa mikil áhrif á viðhorf margra kjósenda. Í haust verða var- anleg áhrif djúprar efnahagslægðar ekki komin fram og því mun skipta sköpum hvernig sumarið þróast. Það ætti því ekki að koma stórkostlega á óvart þótt fjölmargir eftiráspakir sérfræðingar skjóti upp kollinum og leggi mat á aðgerðir stjórnvalda undanfarna mánuði þótt áhrif þeirra verði enn um margt óljós. Það verð- ur því fróðlegt að sjá hvaða mynd kosningabaráttan mun taka á sig. Vertíðin er auðvitað hafin og stjórn- málaflokkarnir eru þegar teknir að dreifa skilaboðunum sínum. Margir bíða spenntir eftir nýjasta útspili Sigmundar Davíðs en þau eiga það til að setja svip sinn á kosningabar- áttur. Sá svipur verður án efa sterk- ari en Evrópusambandsumræðan sem Viðreisn gerði tilraun til að vekja nú á dögunum. Það virðist nokkuð ljóst að aðild að ESB verður ekki kosninga- mál í haust og heldur því áfram að vera fjar- lægur draumur örfárra Íslendinga. Í haust verður einnig kosið um heilbrigðismál og vel- ferðarmál, ekki síst öldrunarmál. Eldra fólk er ört stækkandi hópur og við þurfum að hlúa vel að og hlusta á þann hóp sem á undan hefur gengið. Efnahags- og atvinnumál verða einnig í forgrunni. Hér á landi eru góðar aðstæður til verðmætasköp- unar. Alþjóðlegar tengingar og sam- starf eru jafnframt forsenda þess að Íslendingar búi við lífskjör í hæsta gæðaflokki. Það er að sjálfsögðu að mörgu að huga fyrir alþingiskosn- ingar. Ég tel mikilvægast að við horfum á stóru myndina – að við kjósum að vera aftur frjálst og opið samfélag og höfnum sívaxandi af- skiptum af lífi venjulegs fólks, for- ræðishyggju og þeirri hugmynd að lokað samfélag til frambúðar sé öruggt samfélag. Til lengri tíma verður óttinn nefnilega okkar versti óvinur. Í frjálsu samfélagi er hags- munum okkar best borgið, þar nýtur hvert og eitt okkar sín best – fjöl- breytileiki mannlífsins er okkar helsti styrkleiki. Við höfum staðið okkur vel. Nú eigum við að horfa björtum og óhræddum augum til framtíðar. Um hvað verður kosið í haust? Eftir Diljá Mist Einarsdóttur » Í frjálsu samfélagi er hagsmunum okkar best borgið, þar nýtur hvert og eitt okkar sín best – fjölbreytileiki mannlífsins er okkar helsti styrkleiki. Diljá Mist Einarsdóttir Höfundur er hæstaréttarlögmaður, aðstoðarmaður utanríkis- og þróunar- samvinnuráðherra og frambjóðandi til 3. sætis í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. diljamist@gmail.com Magnús Ingimarsson tónlist- armaður og prentsmiður fædd- ist 1. maí 1933 á Akureyri, ólst upp á Dalvík en flutti til Reykjavíkur 12 ára gamall. Foreldrar hans voru hjónin Ingimar A. Óskarsson kennari, f. 27.11. 1892, d. 2.5. 1981, og Margrét K. Steinsdóttir, hús- freyja, f. 10.3. 1896. Magnús var þríkvæntur og átti sex börn og þrjú stjúpbörn og afkom- endurnir eru orðnir margir. Hann starfaði hjá prentsmiðj- unni Eddu 1952-60 og aftur 1978-94. Hann spilaði á píanó í fjölda hljómsveita og var þekktur fyrir snjallar útsetn- ingar. Árið 1960 gekk hann til liðs við Svavar Gests, en stofn- aði síðan eigin sveit árið 1966 sem starfaði mestmegnis á Röðli. Þá hófst einnig samstarf hans við Jón Múla og Jónas Árnasyni og stjórnaði Magnús hljómsveit og útsetti marga söngleiki þeirra bræðra. Fjöldi þekktra listamanna lék og söng með Magnúsi, bæði á sviði og inn á hljómplötur, og má þar m.a. nefna Önnu Vilhjálms, Vil- hjálm og Ellý Vilhjálms, Þuríði Sigurðar, Ómar Ragnarsson og Flosa Ólafsson. Magnús lést 21. mars 2000 í Reykjavík. Merkir Íslendingar Magnús Ingimars- son
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.