Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 36
Hvetjandi var að heyra Joe Biden, for- seta Bandaríkjanna, tilkynna það verðuga markmið að dregið yrði úr losun gróðurhúsa- lofttegunda þar í landi um helming fyrir 2030. Á alþjóðlegri ráðstefnu um loftslagsmál sem forsetinn átti frum- kvæði að lögðu 40 þjóð- arleiðtogar áherslu á mikilvægi þess að bregðast við lofts- lagsvánni og lofuðu aðgerðum. Fyrr höfðu leiðtogar Evrópusam- bandsins samþykkt að Evrópa myndi draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda um að minnsta kosti 55 % nærri 2030, miðað við árið 1990. Ísland og Noregur miða að sama marki. Grænir orkugjafar og verð- mætasköpun Takmörkun gróðurhúsaloftteg- unda er öðrum þræði umræða um orkumál. Vilji Ísland taka þátt í þess- um markmiðum er nærtækast að stuðla að framþróun og nýtingu grænna orkugjafa. Ég er sann- færður um að við Íslendingar eigum stór tækifæri sem felast í loftslags- vænum fjárfestingum er miða að kol- efnishlutleysi, og nýtingu grænna orkugjafa til verðmætasköpunar með framleiðslu vetnis sem bygging- arefni fyrir rafeldsneyti, til að mynda metan, metanól og ammoníak eða annað eldsneyti. Sífellt fleiri þróa leiðir til geymslu á orku og breyta henni síðan í fær- anlega orku. Evr- ópuþjóðir hafa lagt fram metnaðarfullar áætlanir á þessu sviði. Þannig var nýlega spáð að Þjóð- verjar muni nýta 50.000- 80.000 megavött til vetnisvæðingar í sam- göngum fyrir árið 2050. Til samanburðar er Kárahnjúkavirkjun 690 megavött. Frændur okkar Danir sjá hér tæki- færi og ætla sér stóran hlut í grænum umskiptum. Þeir hyggjast ganga lengra en flestir og ætla að draga úr heildarkolefnislosun um 70 prósent árið 2030, sé miðað við 1990. Þeir munu byggja að fullu á endurnýj- anlegri orku, einkum vindorku. Danir leggja mikla áherslu á þróun tækni til framleiðslu og nýtingar á rafelds- neyti, með sérstakri áherslu á vetni. Umhverfismarkmið kalla á virkjun orku Það er því ljóst að alþjóðleg eft- irspurn eftir vetni eykst. Lands- virkjun hefur sagt að útflutningur vetnis geti orðið umfangsmikil út- flutningsgrein í nánustu framtíð. Þannig yrði framleitt vetni og um- breytt í raforku og aðra orkugjafa fyrir samgönguiðnaðinn. Fram hafa komið hugmyndir um mikla fram- leiðslu á fljótandi vetni og vetnisbera við Finnafjörð. Það gæti orðið verk- efni hér á landi upp á tugi eða hundr- uð milljarða króna. Fyrir liggja metnaðarfull mark- mið stjórnvalda um svokölluð orku- skipti í vegasamgöngum á Íslandi. Samorka, samtök orku- og veitufyr- irtækja, hafa bent á að núverandi áætlanir um orkuskipti kalli á 300 MW viðbótarframleiðslu á rafmagni fyrir árið 2030. Það samsvarar 10 prósent aukinni framleiðslugetu miðað við hvað nú er til staðar í land- inu sé önnur notkun óbreytt. Vilji menn setja allan bílaflotann á raf- eldsneyti þurfi um 600 MW, sem er tæplega vinnslugeta Fljótsdals- stöðvar. Að skipta alfarið öllu jarð- efnaeldsneyti út í vegasamgöngum, innanlandsflugi og haftengdri starf- semi kallar á um 1.200 MW í viðbót- arorku. – Það er því ljóst að um- hverfismarkmiðin kalla á virkjun orku. Slíkar áætlanir sem krefjast auk- innar orkuframleiðslu, liggja ekki síst í nýtingu vindorku. Í marslok síðastliðnum sendi verkefnisstjórn 4. áfanga rammaáætlunar frá sér sam- antekt. Þar segir: „Íslendingar standa á tímamótum varðandi nýt- ingu orkuauðlinda því virkjun vind- orku er að hefjast af fullum krafti. Þótt vindurinn sé óþrjótandi er land undir vindorkuver það ekki. Landið er hin takmarkaða auðlind,“ segir í samantektinni. Verkefnisstjórninni bárust 34 kostir um vindorkuver en fimm þeirra fylgdu gögn til að taka þá til mats. Mikill fjöldi vind- orkukosta bíður því næstu verkefn- isstjórnar. Af þessum 34 vindorkukostum sem verkefnisstjórnin nefnir eru 13 á norðausturhorni landsins með alls 1.559 MW í uppsettu afli: Ólíklegt verður að telja að öll þessi verkefni muni ná fram að ganga. Að auki þarf að byggja upp mun traust- ara flutningskerfi raforku og aðra innviði á norðausturhorninu. En sé raunverulegur vilji til loftslags- vænna fjárfestinga og nýtingar grænna orkugjafa til verðmæta- sköpunar er ljóst að umtalsverðar framkvæmdir verða í virkjun vind- orku á Norðausturlandi. Þar liggur stórt og ónytjað tækifæri fyrir landsbyggðina og Ísland allt. Stórt tækifæri í loftslagsvænum fjárfestingum Eftir Njál Trausta Friðbertsson Njáll Trausti Friðbertsson Höfundur er þingmaður Norðausturkjördæmis. ntf@althingi.is » Vilji Ísland ná al- þjóðlegum mark- miðum um losun gróð- urhúsalofttegunda er nærtækast að þróa og nýta græna orkugjafa. 36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Í dag höldum við upp á alþjóðlegan baráttudag launa- fólks, 1. maí, líkt og í fyrra við óvenjulegar samfélagslegar að- stæður. Covid- faraldurinn hefur markað djúp spor hvarvetna um allt samfélagið. Þrátt fyr- ir það er byrjað að létta til og við finnum fyrir já- kvæðum straumum. Um víða ver- öld eru bólusetningar hafnar og á Íslandi stendur heilbrigðisstarfs- fólk loksins betur varið fyrir veir- unni. Það gefur okkur von um að fram undan séu betri tímar. Víða um heim stendur fólk í sambæri- legri baráttu og við á Íslandi, en við miklu verri aðstæður. Við stöndum líka með þeim því bar- áttan gegn Covid er alþjóðlegt við- fangsefni. Lykilstarfsmenn Nýliðinn vetur sýndi með skýr- um hætti hversu mikilvægt heil- brigðiskerfið er velferð þjóð- arinnar. Íslendingar geta og eiga að vera stoltir af öflugu og fórnfúsu starfsfólki al- mannaþjónustunnar. Sjúkraliðar sýndu það enn og aftur að þeir gegna lykilstörfum innan heilbrigðisþjón- ustunnar. Um allt land hafa þeir staðið vaktina og tekist á við ógnvekjandi aðstæður vegna Covid. Álagið var á köflum gríð- arlegt, bæði á sjúkraliða og annað starfsfólk heilbrigðiskerfisins. Gleymum ekki fjölskyldum þeirra. Á tímabili stóð þetta tæpt, en öll vorum við saman í þessu og færð- um fórnir. Við skulum heldur ekki gleyma fjölskyldum þessa fólks sem fóru ekki varhluta af hinu mikla álagi og færðu sömuleiðis fórnir. Þegar kallað var eftir fagfólki í bakvarðasveit heilbrigðisþjónust- unnar létu sjúkraliðar ekki sitt eftir liggja. Fjölmargir sjúkralið- ar, sem störfuðu ekki lengur sem slíkir, skráðu sig sem bakverði og voru kallaðir til starfa. Sjálf stóð ég vaktina á Covid-deild Landspít- alans á yfirlýstu neyðarstigi. Ég upplifði þar samtakamáttinn og baráttuandann sem einkenndi starfsemina. Stolt fylgdist ég með samstarfsfélögum mínum skipu- leggja fjölskyldulífið að þörfum spítalans. Síðastliðið ár sannar að bakverðirnir og öll sjúkraliðastétt- in eru til taks þegar óvættur eins og Covid-19 sprettur upp. Krefjandi innleiðingarferli Veturinn var sjúkraliðum líka þungur vegna innleiðingar á styttri vinnuviku sem samið var um í síðustu kjarasamningum. Um er að ræða sögulega og umfangs- mikla kerfisbreytingu á vinnutíma sem ekki hefur verið hróflað við í nær hálfa öld. Útfærslan á þessum breytingum er ólík hjá dag- vinnufólki og vaktavinnufólki, og hefur breytingin hjá vaktavinnu- fólki krafist mikils undirbúnings. Styttri vinnuvika hjá sjúkraliðum í dagvinnu tók gildi um um síðustu áramót þar sem samið var um að vinnutíminn styttist um allt að fjórar klukkustundir á viku. Í vaktavinnu verður vinnuvikan stytt að lágmarki um fjórar klukkustundir, en að hámarki um átta miðað við fullt starf hjá þeim sem eru með þyngstu vaktabyrð- ina. Á vaktavinnustöðum þar sem manna þarf vaktir hluta úr sólar- hring eða allan sólarhringinn mun styttingin kalla á aukin útgjöld frá launagreiðendum. Á mörgum vaktavinnustöðum verður til mönnunargat og þá þarf að fjölga stöðugildum. Það hefur verið vitað frá upphafi og var gert ráð fyrir því í kostnaðarmati áður en kjara- samningar voru undirritaðir. Þá er sérstaklega kveðið á um það að starfsfólk eigi ekki að lækka í launum við þessar breytingar. Krefjandi innleiðingarferli þess- ara umfangsmiklu kerfisbreytinga er loksins að ljúka. Breyting- arferlið mun engu að síður halda áfram og þróast í takt við breytta vinnustaðamenningu. Breytingin tekur gildi í dag, 1. maí, bar- áttudag launafólks. Það er sann- arlega vert að gleðjast yfir því. Samstaða launafólks Fram undan eru áframhaldandi krefjandi tímar. Kerfisbreyting um vinnutíma er breytingarferli sem krefst þess að fólk sýni sveigjanleika og umburðarlyndi. Við þurfum að taka höndum sam- an um þetta samvinnuverkefni og hjálpast að svo við öll getum notið ávinningsins af styttri vinnuviku. Við sjúkraliðar þurfum áfram að standa þétt saman því samhliða krefjandi breytingum stöndum við áfram vaktina gegn Covid um leið og við treystum á bólusetta fram- tíð. Sjúkraliðar vinna krefjandi starf, sem oft er ekki metið að verðleikum. Við höfum metnað fyrir okkar starfi, viljum eiga kost á meiri fagmenntun, meiri ábyrgð og fá laun í samræmi við vinnu- framlag. Breytingar á vinnutíma skila okkur drjúgum árangri, en baráttunni er hvergi nærri lokið. Til hamingju með baráttudag launafólks – til hamingju með 1. maí! Sjúkraliðar – til hamingju með 1. maí Eftir Söndru B. Franks » Við sjúkraliðar þurf- um áfram að standa þétt saman því samhliða krefjandi breytingum stöndum við áfram vakt- ina gegn Covid. Sandra B. Franks Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands. sandra@slfi.is Eftir erfiða tíma í skugga Covid sem einkennst hafa af óvissu á flestum svið- um mannlífs og menn- ingar gefst nú loksins tækifæri til þess að horfa fram á veginn og marka stefnu í at- vinnuþróun til fram- tíðar. Mikilvægt er að við byggjum á þeirri reynslu sem safnast hefur síðasta árið og nýtum hana til að fóta okk- ur í breyttum heimi eftir heimsfar- aldurinn. Sú vinna er nú þegar hafin og má sem dæmi nefna auk- inn stuðning stjórn- valda við verkefni tengd rannsóknum og þróun og nýsköp- unarsjóðinn Kríu. Það hefur aldrei verið mik- ilvægara en nú fyrir okkur Íslendinga að huga að nýsköpun og gera atvinnulífið fjöl- breyttara og skapa um leið störf á nýjum grunni. Ísland hefur einstaka stöðu, við erum með hátt menntunarstig og í þjóðinni býr hugvit og kraftur sem þarf að virkja til frekari uppbyggingar. Við verðum að velja leiðina þar sem all- ir fá að njóta sín og skapa verðmæti á þeim grunni sem við höfum þegar byggt. Við svona tímamót gefst tækifæri til að endurskoða ýmsa hluti og ég tel mikilvægt að einstaklings- framtakið fái að njóta sín og að ein- staklingurinn hafi frelsi til athafna án mikillar aðkomu stjórnvalda. Með einföldun regluverka og mark- vissum aðgerðum til að skapa frjó- an jarðveg geta framtakssamir ein- staklingar og fyrirtæki hafið eða aukið rekstur sinn. Með þessu skapa þau mikilvæg ný störf og auknar tekjur. Bæði einstaklingar og fyrirtæki hafa orðið fyrir neikvæðum áhrifum af heimsfaraldrinum. Margir hafa misst vinnuna og fyrirtæki farið í gjaldþrot. Þrátt fyrir þetta er áhugavert að sjá hvað einka- framtakið lifir sterku lífi í þessu ár- ferði. Frá apríl 2020 til mars 2021 voru stofnuð 2.832 einkahlutafélög sem er þriðjungi meira en á sama tímabili árið áður skv. tölum Hag- stofunnar. Þetta sýnir okkur að þrátt fyrir allt er fólk bjartsýnt og tilbúið að horfa til framtíðar og finna nýjar leiðir til að koma at- vinnulífinu í fulla keyrslu. Því er mikilvægt að stjórnvöld greiði götu þeirra sem vilja hefja rekstur og hvetji þá áfram með því að hafa regluverkið einfaldara og lágmarka gjaldtöku svo fyrstu skref í rekstri verði ekki þung. Hefjum nú öll tímabil uppbygg- ingar og vinnum saman að fjöl- breyttu atvinnulífi þar sem allir geta tekið þátt. Frelsi til uppbyggingar Eftir Guðbjörgu Oddnýju Jónasdóttur Guðbjörg Oddný Jónasdóttir » Grein þessi er um mikilvægi þess að byggja upp fjölbreytt og öflugt atvinnulíf til framtíðar eftir heims- faraldurinn. Höfundur er varabæjarfulltrúi. gudbjorgjo@hafnarfjordur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.