Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar – tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í dag, 1. maí, eru 30 ár frá því starf- semi kjötvinnslu Sláturfélags Suður- lands hófst á Hvolsvelli. Forsaga málsins er sú að um 1990 glímdi SS við mikla rekstr- arerfiðleika og framtíð félagsins var tvísýn. Félag- ið átti stórbygg- ingu í Laugarnesi í Reykjavík sem það hafði ekki bolmagn til að ljúka. Eignir fé- lagsins að Skúla- götu 20 höfðu ver- ið seldar til Reykjavíkurborgar og leigutími var að renna út. Góð ráð voru dýr. Peningarnir dugðu Við þessar aðstæður kom upp sú hugmynd hjá SS að selja ríkinu Laugarneshúsið fyrir Þjóðminja- safn, sem myndi jafnframt gefa Há- skóla Íslands möguleika í húsnæðis- málum. Ef af þessu yrði ætlaði SS að breyta nýjasta og fullkomnasta slát- urhúsi sínu á Hvolsvelli í kjötvinnslu. Atvinnuástand í Rangárvallarsýslu var slæmt á þessum tíma og fast- eignaverð lágt. Flutningur vinnsl- unnar yrði ígildi stóriðju. Fjármálaráðherra, Ólafi Ragnari Grímssyni, voru kynntar þessar hug- myndir, sem tók þeim vel. Niður- staðan varð þó sú að nýr Listaháskóli Íslands flutti í húsið í Laugarnesi. Í lok árs 1990 keypti ríkið Laug- arneshúsið af SS á 430 millj. kr en þá þegar hafði eignin kostað Slátur- félagið 650 milljónir króna. Upphæð- ina greiddi ríkið með 11 fasteignum og 130 millj. kr. í peningum. Eign- irnar seldust á nokkrum árum og peningarnir dugðu til að koma fyr- irætlununum á Hvolsvelli í fram- kvæmd. Verkefnið unnið með hraði Verkefnið allt var unnið með miklu hraði. Á innan við sex mánuðum var hönnuð kjötvinnsla með breytingum og stækkun á sláturhúsinu. Miðviku- daginn 24. apríl, daginn fyrir sum- ardaginn fyrsta, var framleiðslu hætt á Skúlagötu og vélar og bún- aður tekið niður og flutt til Hvols- vallar. Heimild fékkst til að hefja starfsemina á frídegi verkalýðsins, miðvikudaginn 1. maí, og því var vinnslan stopp í aðeins þrjá virka daga. Um 110 heilsársstörf urðu til á Hvolsvelli við flutninginn og í fram- haldi hefur bærinn dafnað. Nú liggur nærri að hjá SS á Hvolsvelli séu unn- in 150 ársverk. Samstæðu SS til- heyrir einnig Reykjagarður sem er með mikla starfsemi á Suðurlandi. Í heild eru á vegum samstæðu SS unnin um 320 ársverk sem gerir fyrirtækið að stærsta vinnuveitand- anum í landshlutanum. Um 40 starfs- menn SS í Reykjavík fluttu með á Hvolsvöll Af þeim eru nú, 30 árum síðar, enn þrír starfsmenn við störf hjá fyrirtækinu. Þeir eru Oddur Árnason fagmálastjóri, Björgvin Daníelsson, verkstjóri í afgreiðslu- deild, og Ingvar Guðmundsson, starfsmaður í pökkun. Olga Mörk Valsdóttir er verksmiðjustjóri. Fluttu kjötvinnslu og fjölda starfa - SS 30 ár á Hvolsvelli - Sala á Laugarneshúsi leið úr vanda - Hófu starfsemi 1. maí - Ígildi stóriðju Hvolsvöllur Kjötvinnslan er langstærsti vinnustaður byggðarlagsins. Starfsmenn Björgvin Daníelsson og Oddur Árnason, hjá SS í 30 ár.Olga Mörk Valsdóttir „Flutningur kjötvinnslunnar á sínum tíma heppnaðist vel og skipti miklu máli fyrir Hvolsvöll og byggðina þar,“ segir Steinþór Skúlason. „Það er vandalaust fram- kvæmdaatriði að flytja vélar og tækjabúnað en talsverð áskorun fólst í því að fá mikilvægt fagfólk með okkur, sem þó tókst með því að bjóða stuðning við flutninga austur. Í dag vinnum við um 4.000 tonn af afurðum á ári á Hvolsvelli og vörunúmerin skipta hundruðum. Hluti starfsmanna er frá Póllandi, fólk sem hefur unnið lengi hjá okkur og fest rætur á Íslandi. Skilyrði til bú- setu úti á landi í dag eru allt önnur en voru fyrir þrjátíu árum. Nú er beinlínis orðið eftirsóknarvert að búa á stöðum eins og Hvolsvelli og þar í grennd, enda er á svæðinu nú öll sú þjón- usta og gæði sem fólk gerir kröfur um í nútímasamfélagi, svo sem góð íþróttaaðstaða, ljósleiðaratengingar í sveitum og fleira.“ Eftirsóknarverður staður FLUTNINGURINN HEPPNAÐIST VEL Steinþór Skúlason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.