Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
lega til þess að ræða um það sem
fólk vill sjá í nýrri bók og hefjast svo
handa í haust af fullum krafti.
- - -
Grágæsir eru komnar í tún og
nýræktir sem aldrei fyrr og velta
bændur því fyrir sér hvernig eigi að
koma í veg fyrir allt það tjón sem
þær valda. Svo virðist sem stofninn
sé enn að stækka og dæmi eru um að
í einu litlu túni séu um 800 fuglar á
beit á sama tíma. Sáðgresi hlýtur að
láta undan slíku álagi, sem er við-
kvæmt fyrir ágangi. Sums staðar
eru álftirnar líka til staðar og þær
sötra í tjörnum og rífa vall-
arfoxgrasið í sig með rótum og öllu
saman.
- - -
Hollvinasamtök Húsavíkur-
kirkju hafa nú hafið störf og við-
tökur hafa verið framar vonum. Um-
ræðan um ástand kirkjunnar virðist
hafa hreyft við mörgum og allir vilja
sjá þetta hús í betri búningi. Von er
á fólki frá Minjastofnun í næstu viku
til þess að meta ástandið í samvinnu
við sóknarnefnd og stjórn hollvina-
samtakanna. Hvernig fram-
kvæmdum verður fram haldið á
komandi árum þarf að ákveða en
ljóst er að kostnaðurinn er gríðar-
legur.
- - -
Ferðamenn eru fáir á ferli en svo
virðist sem allir séu bjartsýnir á að
úr rætist þegar líður á sumarið. Alla-
vega eru ferðaþjónustuaðilar í fram-
kvæmdum sem vilja klára hús og
herbergi áður en umferðin byrjar.
Það þýðir að það er erfitt að fá iðn-
aðarmenn og sumir hafa orðið að
bíða í eitt til tvö ár eftir smiðum. Þá
þarf oft að sækja múrara og pípu-
lagningamenn í önnur héruð enda
eru þeir ekki á hverju strái og biðin
löng. Þetta stendur ýmsu fyrir þrif-
um og nýframkvæmdir ganga hægar
fyrir vikið.
- - -
Laxárfélagið hefur lagt árar í
bát eftir 80 ára veiðiskap í Aðaldal.
Þetta þýðir miklar breytingar á
bökkum árinnar og stöngum verður
fækkað á komandi sumri. Laxár-
félagið skilur eftir sig margar minn-
ingar í hugum bænda og gömlu góðu
veiðimennirnir settu svip sinn á
mannlífið. Þeirra verður sárt saknað
en það er von allra að veiðin aukist á
ný eftir mörg mögur ár og að aftur
verið líflegt á bökkum árinnar.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Húsavík Fallegt og fjölskrúðugt fé sem frístundabændur á Húsavík eiga. Sauðburður er nú í fullum gangi.
Fjölskrúðugt frístundafé
ÚR BÆJARLÍFINU
Atli Vigfússon
Norðurþing
Sauðburður er hafinn og því fylgir
auðvitað mikil tilhlökkun hjá mörg-
um. Þetta er tími langra vökunótta
en einn sauðfjárbóndi sagði að þetta
væri rosalega gaman og hann myndi
bara sofa seinna í sumar. Hann
mætti ekki missa af neinu á þessum
tíma árs. Á Húsavík eru þó nokkuð
margir frístundabændur og þar er
fallegt fé og litskrúðugt. Þetta er
góður félagsskapur og kindurnar
prýða umhverfið þegar þær eru að
kroppa úti rétt við þéttbýlið.
- - -
Byggðir og bú er heimildarrit
um bújarðir og bændafólk í Suður-
Þingeyjarsýslu sem hefur komið út
þrisvar frá árinu 1963 á vegum bún-
aðarsambandsins. Full af myndum
og ártölum. Nú hefur verið ákveðið
að hefja undirbúning að fjórðu bók-
inni og er ætlunin að hún verði tilbú-
in árið 2025. Ritnefndin hefur þegar
hafið störf með það að markmiði að
leggja meiri metnað í útgáfuna en
áður hefur verið gert.
Ætlunin er að koma saman fljót-
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Íslensku jöklarnir hafa tapað um 750
ferkílómetrum af flatarmáli sínu frá
aldamótunum 2000. Stærri jöklarnir
hafa tapað 10-30% af flatarmálinu en
miðlungsstóru jöklarnir, sem voru 3-
40 ferkílómetrar árið 2000, hafa tap-
að allt að 80% flatarmálsins. Á
fyrstu tveimur áratugum 21. aldar
hafa jöklarnir minnkað um það bil
um 40 ferkílómetra á ári. Margir litl-
ir jöklar hafa horfið með öllu á þessu
tímabili.
Þetta kemur fram í grein í nýjasta
hefti Jökuls 2020, tímarits Jökla-
rannsóknafélags Íslands og Jarð-
fræðafélags Íslands. Höfundar
greinarinnar eru þau Hrafnhildur
Hannesdóttir, Oddur Sigurðsson,
Ragnar H. Þrastarson, Snævarr
Guðmundsson, Joaquín M.C. Belart,
Finnur Pálsson, Eyjólfur Magnús-
son, Skúli Víkingsson, Ingibjörg
Kaldal og Tómas Jóhannesson.
Gögnum um útbreiðslu íslenskra
jökla var safnað saman frá nokkrum
rannsóknarhópum, stofnunum og
nemendaverkefnum. Þau voru sam-
ræmd og yfirfarin og send til al-
þjóðlegs gagnasafns fyrir slík gögn
(GLIMS – https://nsidc.org/glims).
Flestir jöklar á Íslandi fóru að
hörfa frá ystu jökulgörðum um 1890
eftir litlu ísöld sem var á Íslandi um
1450-1900. Þeir náðu ekki allir há-
marksútbreiðslu á sama tíma.
Heildarflatarmál jöklanna árið
2019 var um 10.400 ferkílómetrar.
Jöklarnir hafa minnkað um meira en
2.200 ferkílómetra frá lokum 19. ald-
ar. Það samsvarar 18% flatarmáls
þeirra um árið 1890.
Þá segir í greininni að þó að fram-
hlaup, eldgos undir jökli og jökul-
hlaup hafi áhrif á stöðu einstakra
jökulsporða hafi jöklabreytingar á
Íslandi verið fremur samstiga og
fylgt að mestu leyti veðurfarsbreyt-
ingum frá lokum 19. aldar.
Jöklarnir hafa
minnkað mikið
- Jöklabreytingar í takti við veðurfar
Morgnblaðið/Ásdís
Jökulsárlón Íslensku jöklarnir hafa
minnkað frá lokum 19. aldar.
Umhverfisstofnun telur að ekki hafi
verið sýnt fram á brýna nauðsyn
fyrir byggingu Hnútuvirkjunar í
Hverfisfljóti með tilheyrandi raski á
Skaftáreldahrauni, sem hafi vernd-
argildi. Kemur þetta fram í umsögn
stofnunarinnar við tillögu að breyt-
ingu á aðalskipulagi og deiliskipu-
lagi sveitarfélagsins vegna Hnútu-
virkjunar.
Bændur á Dalshöfða, austan við
Kirkjubæjarklaustur, hafa í mörg
ár haft uppi áform um virkjun
Hverfisfljóts við Hnútu. Áform um
2,5 MW virkjun voru fyrst tilkynnt
til Skipulagsstofnunar árið 2006.
Áformin breyttust og voru orðin að
15 MW tveimur árum síðar. Í um-
hverfismatsferlinu breyttust áætl-
anir enn og nú er miðað við rúmlega
9 MW virkjun.
Rask á litlu svæði
Umhverfismatsferlinu er lokið.
Skipulagsstofnun taldi að þar hefði
ekki verið sýnt fram á brýna nauð-
syn fyrir röskun á Skaftárelda-
hrauni og taldi nauðsynlegt að gera
með afdráttarlausari hætti grein
fyrir því máli í væntanlegri vinnu
við gerð nýs skipulags.
Í greinargerð með deiliskipulagi
Skaftárhrepps kemur fram að þótt
eldhraun sem njóta verndar verði
fyrir áhrifum vegna framkvæmdar-
innar séu uppi áform um að draga
úr þeim áhrifum. Einnig er bent á
að raskið nái aðeins til brots af því
600 ferkílómetra svæði sem Skaft-
áreldahraunbreiðan er. Þá er vakin
athygli á því að samhliða fyrirhug-
aðri virkjun og tengingu hennar við
flutningskerfið muni Rarik styrkja
dreifikerfi raforku á svæðinu og það
muni bæta spennugæði.
Telja aðrar leiðir betri
Umhverfisstofnun gerir lítið úr
síðarnefndu rökunum í umsögn
sinni. Segir að hægt sé að ná mark-
miðum framkvæmdarinnar með ein-
faldari hætti og mun minni um-
hverfisáhrifum með endurbótum á
dreifikerfi raforku og auknum flutn-
ingi raforku inn á svæðið.
helgi@mbl.is
Telja ekki brýna
nauðsyn á virkjun
- Umhverfisstofnun leggst gegn raski
á Eldhrauni vegna Hnútuvirkjunar
Ljósmynd/Zairon
Jökulá Hverfisfljót er jökulá sem rennur undan Síðujökli. Hún rennur sam-
an við Núpsvötn á leið til sjávar. Hringvegurinn fer yfir ána á brú.