Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Kleppsmýrarvegur 8 | 104 Reykjavík | 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is
Faglegar heildarlausnir – allt á einum stað.
Samkeppnishæf verð.
Með tilheyrandi verkefnum, háþrýsti- og gluggaþvotti,
þrifum á bílakjöllurum, hreingerningum og viðhaldi gólfa.
VORIÐ ER KOMIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Staðan er óbreytt. Það hafa engin
viðbrögð komið frá heilbrigðisráðu-
neytinu önnur en þau að skipa Hall-
dór Guðmundsson í eins manns nefnd
til að skila skýrslu í ágúst um það
hvernig öldrunarþjónusta á Íslandi
eigi að vera til framtíðar. Mér finnst
það stórfurðu-
legt,“ segir Gísli
Páll Pálsson, for-
stjóri Grundar-
heimilanna og for-
maður Samtaka
fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu
(SFV). Hann varð
spurður um stöðu
mála í kjölfar
skýrslu verkefn-
isstjórnar sem
ráðherra skipaði til að greina rekstr-
arkostnað hjúkrunarheimila.
Verkefnishópurinn sem starfaði
undir forystu Gylfa Magnússonar
prófessors komst að þeirri niðurstöðu
að halli af rekstri hjúkrunar-
heimilanna í landinu var á árunum
2017 til 2019 samtals 3,5 milljarðar,
án meðgjafar sveitarfélaganna, eða
rúmur milljarður á ári. Daggjöld
þeirra sem voru rekin með halla árið
2019 hefðu þurft að hækka að meðal-
tali um 6,3%, eða kostnaður að lækka
samsvarandi, til þess að endar hefðu
náðst saman.
Gísli Páll getur þess að Gylfi
Magnússon hafi komið með þau
skýru skilaboð inn á fund velferð-
arnefndar Alþingis í vikunni, fund
sem þeir báðir mættu á, að bæta þurfi
verulegum fjármunum í rekstur
hjúkrunarheimila ef ekki eigi illa að
fara. Fram hafi komið í máli allra
nefndarmanna sem til máls tóku að
það þyrfti að bæta inn í daggjalda-
grunn heimilanna. Ekki hafi verið
ágreiningur um það.
„Heilbrigðisráðherra drepur mál-
inu á dreif með því að svara ekki lykil-
spurningunni sem er hvort og þá
hversu miklu hún vill bæta inn í
grunninn. Ráðherra hefur einnig bor-
ið fyrir sig að fjárlög ársins hafi verið
afgreidd frá Alþingi og ekki sé hægt
að breyta þeim. Ég vil benda á að
fjárlögum var breytt fimm sinnum
með fjáraukalögum á Alþingi í fyrra.
Þetta eru því rök sem við tökum ekki
gild,“ segir Gísli Páll.
Aukin útgjöld ófjármögnuð
Miklar breytingar hafa orðið á for-
sendum rekstrar hjúkrunarheimila á
síðustu árum, ekki síst vegna launa-
hækkana, og framundan er stór-
hækkun útgjalda vegna styttingar
vinnuviku vaktavinnufólks sem sam-
ið hefur verið um í kjarasamningum.
„Þessi kostnaður er ófjármagnaður
eins og fjármálaráðuneytið hefur
staðfest við SFV. Sjúkratryggingar
vísa á heilbrigðisráðuneytið sem
svarar engu.“
Gísli Páll segir að staða heimilanna
sé misjafnlega þröng. Sum séu komin
í alvarlega stöðu á meðan önnur
stefni í þá stöðu. Aðeins 13% heim-
ilanna höfðu tekjur fyrir útgjöldum á
árinu 2019. Segir Gísli að mismun-
andi skýringar kunni að vera á því
sem ekki hafi komið fram. Hugs-
anlega minni mönnun eða minni
þjónusta. Hægt sé að vanrækja við-
hald húseigna og spara þannig út-
gjöld tímabundið en það hefni sín
síðar.
Hann segir að stytting vinnuviku
vaktavinnufólks hafi í för með sér
mörg hundruð milljóna króna útgjöld
sem bætist við hallann sem fyrir er
vegna of lágra daggjalda. Ef ekki fá-
ist fljótt leiðréttingar vegna þess fari
flest fyrirtækin í þrot í byrjun sum-
ars.
Treysta skynsemi ráðherra
Spurður að því hvað stjórnendur
heimilanna geti gert, segir Gísli Páll:
„Það er ekki margt. Við verðum að
treysta á skynsemi ráðherra heil-
brigðismála og fjármála. Fjármála-
ráðuneytið hefur staðfest að ekki sé
gert ráð fyrir auknum útgjöldum
vegna vaktavinnu í daggjöldum
heimilanna en enginn virðist taka
ábyrgð á því.“
Enginn tekur ábyrgð á vandanum
- Formaður SFV segir að engin viðbrögð hafi komið frá stjórnvöldum vegna Gylfaskýrslu um halla
hjúkrunarheimilanna - Heimilin í þrot í byrjun sumars ef ekki fást bætur vegna vinnutímastyttingar
Morgunblaðið/Eggert
Eir - hjúkrunarheimili Enn ríkir óvissa um það hvernig rekstur hjúkrunarheimila verður tryggður. Heimilin eru
mörg rekin með halla og nú um þessi mánaðamót bætist við kostnaður vegna styttingar vinnuviku vaktavinnufólks.
Gísli Páll
Pálsson