Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það er ekki daglegt brauð að sjá hús
í Slippnum í Reykjavík. En í vikunni
var viðlega dráttar- og lóðsbáta
Faxaflóahafna dregin á land. Þetta
er gert á 3-4 ára fresti, að sögn Gísla
Jóhanns Hallssonar yfirhafnsögu-
manns. Framkvæmt er reglubundið
viðhald á prammanum, botnmálning,
zinkun og annað tilfallandi viðhald.
Viðlegan er staðsett í Austurhöfn-
inni fyrir framan hin nýju glæsihús á
Hafnartorgi. Er þetta eitt örfárra
fljótandi húsa á Íslandi.
„Viðlegan heitir Móði og var í
gamla daga keypt af Reykjavíkur-
höfn og var búin bómu til hífinga,
m.a. á spennum úr skipum, en þeir
fóru í Búrfellsvirkjun á sínum tíma,“
segir Gísli Jóhann. Bóman var svo
tekin af þegar hætt var að nota Móða
til hífinga og síðar var hann útbúinn
sem viðlega fyrir dráttarbátana.
„Í fyrstu var sett á hann lítið
hús þar sem geymdur var ýmis bún-
aður fyrir bátana og því festist við
hann nafnið Sléttan (tilvísun í Húsið
á sléttunni) sem er enn notað þrátt
fyrir að pramminn heiti Móði í skipa-
skrá, þar sem hann er skráður.“
Gísli segir að fyrir nokkrum ár-
um hafi verið skipt um hús og komið
fyrir stærra húsi en áður. „Við létum
klæða dekkið upp á nýtt en þörf var
á að fá stærri hirslur undir ýmislegt
sem tilheyrir rekstri bátanna. Þar er
einnig lítil skrifstofuaðstaða auk
geymslu fyrir vinnufatnað og sér
rýmis fyrir ýmis efni sem haldið er
aðgreindum frá öðrum,“ segir Gísli.
Húsið á slétt-
unni í slipp
Morgunblaðið/sisi
Hús í slippnum Pramminn Móði er í reglubundnu viðhaldi. Í baksýn er varðskipið Týr sem nú er þar til viðgerða.
- Reglubundið viðhald á Móða
VERIÐ
VELKOMIN Í
SJÓNMÆLINGU
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
TRAUST
Í 80 ÁR
Kr. 29.900
Voryfirhöfnina
færðu í Laxdal
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Nýjar vörur
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vel hefur gengið að gangsetja fyrri
ljósbogaofn kísilvers PCC á Bakka
við Húsavík. Fyrstu afurðirnar
voru að koma úr ofninum í gær.
PCC stöðvaði rekstur ljósboga-
ofna kísilversins tímabundið á síð-
asta ári til að gera endurbætur á
reykhreinsivirki verksmiðjunnar
og var meirihluta starfsfólks þá
sagt upp störfum. Endurræsing
frestaðist vegna erfiðra markaðsað-
stæðna út af kórónuveiru-
faraldrinum.
Sjötíu starfsmenn ráðnir
Hóf PCC endurráðningar fyrr á
þessu ári. Í upphafi var 70 starfs-
mönnum bætt við þá 50 sem fyrir
voru og höfðu unnið að undirbún-
ingi og endurbótum í verksmiðjunni
á stöðvunartímabilinu.
Rúnar Sigurpálsson, forstjóri
PCC Bakki Silicon, segir að ofninn
sé nú að komast í stöðugan rekstur.
Í framhaldinu verði farið að huga
að gangsetningu seinni ljósboga-
ofnsins. Markaður fyrir afurðir
verksmiðjunnar hafi verið að þróast
á jákvæðan hátt, líkt og álverð, að
sögn Rúnars. Hann segir að þokka-
lega hafi gengið að ráða starfsfólk
en þó vanti fleiri iðnaðarmenn.
Keðjuverkandi áhrif
Aðalsteinn Árni Baldursson, for-
maður Framsýnar – stéttarfélags,
segir gleðilegt að PCC hafi verið að
ráða mannskapinn að nýju. Jafn-
framt sé gleðilegt að sama fólkið sé
að koma til baka, að miklu leyti. Vel
sé að málum staðið. Starfsfólkið
gangi í gegnum þjálfun og mikið sé
unnið að fræðslu.
Segir Aðalsteinn að rekstrar-
stöðvun kísilversins hafi haft keðju-
verkandi áhrif í samfélaginu. Minna
hafi verið að gera hjá undirverktök-
um og ýmsum þjónustuaðilum og
minni fyrirtæki þurft að fækka fólki
af þeim sökum. Þá séu laun í verk-
smiðjunni tiltölulega góð, miðað við
það sem almennt gerist á vinnu-
markaði, og það skili sér til sam-
félagsins, sveitarfélagsins og ríkis-
ins, þegar starfsemin er komin
aftur af stað.
Aðalsteinn segir að Húsavík hafi
fengið sinn skerf af atvinnuleysinu.
Það birti yfir mönnum þegar PCC
er komið í gang og sjávarútvegsfyr-
irtækin og kjötvinnslur hafi staðið
erfiðleikana af sér. Hins vegar sé
ferðaþjónustan enn í erfiðleikum.
Vonast hann til að athyglin sem
Húsavík hefur fengið með Eurovisi-
on-kvikmyndinni og tilnefningu
Húsavíkur-lagsins til Óskarsverð-
launa hjálpi til og Húsavík fyllist á
ný af ferðafólki á næstu mánuðum.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Bakki Kísilver PCC er á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Þar er starfsemin smám saman að færast til fyrra
horfs. Fyrri ljósbogaofninn er kominn í gang og verið að undirbúa gangsetningu seinni ofnsins.
Kísilver PCC fram-
leiðir málm á ný
- Enn atvinnuleysi á Húsavík vegna erfiðleika ferðaþjónustu
Atvinna