Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 18
Tölvuteikning/Basalt Arkitektar
Skógarböðin Starfsemin mun nýta allt það tæra heita vatn sem rennur úr Vaðlaheiðargöngum en það er um 61 sekúndulítri af 49,7° heitu vatni. Til þessa hefur það runnið óhindrað til sjávar.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Nú um helgina verður byrjað að
sprengja fyrir sökkli nýs mann-
virkis við rætur Vaðlaheiðar, aust-
an megin í Eyjafirði. Þar er á ferð-
inni Finnur Aðalbjörnsson
jarðvinnuverktaki en hann hefur
ásamt konu sinni, Sigríði Maríu
Hammer, lagt út í stórtæka upp-
byggingu á jörð sem þau festu
kaup á í september í fyrra. Þar er
ætlunin að opna svokölluð Skógar-
böð hinn 11. febrúar næstkomandi.
Spurður út í hver hafi átt hug-
myndina að þessu verkefni segir
Finnur að hann hafi lengi gengið
með hugmyndina að þessu verkefni
í maganum.
„Ég er fæddur og uppalinn á
Laugalandi en þangað sækja Akur-
eyringar mikið af sínu vatni. Ég
hef því verið hálfgerður vatnakarl
alla tíð og sótt marga baðstaði vítt
og breitt um heiminn. Mig hefur
því lengi langað til að ráðast í upp-
byggingu af þessu tagi.“
Hann segir að staðsetning
Skógarbaðanna hafi komið upp í
hendur þeirra hjóna í fyrrahaust
en að þau hafi áður reynt að festa
sér annað byggingarland en það
hafi ekki gengið.
„Það var mikið búið að ræða um
hvernig nýta mætti heita vatnið úr
Vaðlaheiðargöngunum en ekkert
gerðist. Þá var ekki annað í stöð-
unni fyrir okkur en að stökkva á
þetta. Við gengum á fund Eyja-
fjarðarsveitar nokkrum dögum eft-
ir að við keyptum lóðina og það
hefur allt gengið eins og í sögu.
Engin vandkvæði og bærinn reynst
okkur mjög vel.“ Þau hjónin eiga
nú meirihluta í félaginu en hafa
fengið fleiri fjárfesta að verkefn-
inu. Þau segja ekki tímabært að
greina frá því hverjir þeir eru.
„Við gátum valið okkur sam-
starfsmenn í þessu verkefni og
þetta er einfaldlega landsliðið í
þeim efnum. Við erum mjög ánægð
með hvernig það hefur spilast,“
segir Finnur sem rekur verktaka-
fyrirtækið Finnur ehf. á Akureyri
en það sinnir jarðvegsvinnu fyrir
Norðurorku, Akureyrarbæ og fleiri
aðila, sinnir vegaframkvæmdum og
þá hefur Finnur einnig reist nokk-
ur hús. Það kemur sér vel nú því
hann heldur sjálfur utan um fram-
kvæmdahluta verksins.
Nú þegar hillir undir að sökkull
verði steyptur að húsinu eru aðeins
10 mánuðir þar til áætluð opnun
er. Finnur segir að það muni tak-
ast.
„Konan mín vildi opna í mars og
ég í janúar og þarna fórum við bil
beggja. Ég hef fulla trú á því að
þetta takist.“
Hann segir að vonir standi til að
taka á móti 50 þúsund gestum
fyrsta árið en að aðstaðan muni
ráða við gestakomur 75-80 þúsund
manna á ári.
„Þessi starfsemi mun veita 20-25
manns heilsársatvinnu á svæðinu
og húsið gerir einnig ráð fyrir
stækkunarmöguleikum ef ástæða
þykir til,“ segir Finnur.
Reynslumiklir arkitektar
Það eru Basalt Arkitektar sem
annast hönnun mannvirkisins.
Hrólfur Karl Cela hjá Basalt segir
verkefnið mjög spennandi og að
mikil reynsla stofunnar af hönnun
baðstaða hafi komið að góðum not-
um. Arkitektar hjá Basalt hafa
haft veg og vanda af hönnun Bláa
lónsins, Guðlaugu á Langasandi,
GeoSea á Húsavík, Vök á Egils-
stöðum og sundlauginni á Hofsósi.
Þá vinnur fyrirtækið einnig að
hönnun fjallabaða í Þjórsárdal,
endurgerð Jarðbaðanna á Mývatni
og hálendisbaða í Kerlingarfjöllum.
„Verkefnið er mjög krefjandi því
byggingin er reist inni í skógi og
við viljum valda sem minnstu raski.
Skógurinn og umhverfið leika aðal-
hlutverk í upplifun gestanna.
Áherslan er á að maður sé inni í
skóginum að baða sig en að þó sé
útsýni inn og út Eyjafjörðinn og
yfir til Akureyrar. Trén skjóta sér
inn á milli glugga og fólk baðar sig
í raun í landslaginu.“
Það er fleira en skógurinn sem
gerir verkefnið krefjandi því bygg-
ingin er utan í fjallshlíð og rennur
að einhverju marki saman við
hana.
„Við viljum stíga létt inn í lands-
lagið en það eru aðrar áskoranir,
t.d. að þarna er mjög snjóþungt á
veturna. Þetta er ævintýraveröld.“
Hrólfur segir að sá hluti bygg-
inganna sem snúi að gestum, veit-
ingasalur og móttökusalur, verði
reistur úr krosslímdum timburein-
ingum sem sé mjög vistvænn bygg-
ingarmáti.
„Búningsklefarnir sjálfir og
tæknirými þar sem er mikið um
vatn og hita eru reistir úr for-
steyptum veggjum sem eru fluttir
á staðinn til að lágmarka álag á
þetta viðkvæma svæði.“
Bendir hann á að stór hluti
klæðningar hússins að innan og ut-
an verði úr frekar grófsöguðu eða
tilhöggnu timbri sem minni á og
kallist á við skóginn í kring.
Segir Hrólfur að samstarfið hafi
gengið einkar vel um hönnun
Skógarbaðanna og að þar verði um
að ræða nýtt og öðruvísi tækifæri
fyrir fólk að njóta í sívaxandi bað-
menningu þjóðarinnar.
Skógarböðin opnuð í febrúar 2022
- Heita vatnið úr Vaðlaheiðargöngum nýtt í starfsemina - Gera ráð fyrir 50 þúsund gestum á næsta
ári - Geta tekið á móti 75-80 þúsund gestum árlega - Mun skapa allt að 25 heilsársstörf í Eyjafirði
Finnur
Aðalbjörnsson
Hrólfur Karl
Cela
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS
Tatjana Latinovic
var endurkjörin
formaður Kven-
réttindafélags Ís-
lands á aðalfundi
félagsins í gær,
sem fór fram raf-
rænt. Á sama
fundi var aðild
Trans Íslands
staðfest. Trans Ís-
land eru stuðnings- og baráttu-
samtök fyrir transfólk á Íslandi og
bætist í hóp annarra aðildarfélaga.
Tatjana var fyrst kjörin formað-
ur Kvenréttindafélagsins árið 2019,
en hún er fyrsta konan af erlendum
uppruna sem gegnir því embætti,
segir í fréttatilkynningu.
Í embættistíð sinni hefur Tatjana
lagt áherslu á að raddir úr öllum
áttum fái að heyrast í baráttunni og
unnið markvisst að því að eiga í
samtali við fjölbreytt samtök sem
starfa að kynjajafnrétti, hvert á
sínu sviði. Tvær nýjar konur setjast
í stjórn, þær Lára Aðalsteinsdóttir
og María Hjarðar.
Tatjana Latinovic
áfram formaður
Tatjana Latinovic